Sýnir færslur með efnisorðinu músin. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu músin. Sýna allar færslur

fimmtudagur, október 23, 2008

SETTUR DAGUR!

Langar bara að benda ykkur á litla barnið sem liggur hérna til vinstri á síðunni. Þar segir sem sagt "0 weeks and 0 days to go". Ótrúlegt hvað þetta hefur liðið hratt. Nú er bara að sjá hvort drengurinn verði jafn stundvís og systir hans sem fæddist á settum degi. Ég man að ég vakti til kl. 2 nóttina áður en ég átti Önnu Dúfu, þá sat ég reyndar og skrifaði í lokaverkefninu mínu en núna sit ég og sinni mjög svo óprófessjónal verkefni; sit og er að hlusta á Queen í bland við Ragnhildi Gísladóttur syngja "Eitt lítið jólalag" í riiiiisastórum heddfónum! Mér finnst einhvern veginn mjög svo viðeigandi að vaka til 2 þessa nótt fyrir settan dag. Maður veit aldrei nema það hafi verið vakan sem gerði gæfumuninn 14. janúar 2007! Hvað veit maður?!

Dagurinn var annars mjög fínn, byrjaði á því að fara með lúsina mína á leikskólann og svo fór ég ásamt ferfætlingnum í morgunkaffi til Völu. Eftir það hélt ég heim á leið og lagði mig í heila 2 tíma, sem er líklega ástæðan fyrir hinum ótrúlega hressleika akkúrat núna. Sótti síðan leikskólaskottið og við fórum heim að dunda okkur og svo út að leika. Eyddi síðan kvöldinu í að baka snúða sem ég einhverra hluta vegna er búin að vera með á heilanum undanfarna daga; kanelsnúða með marsípani eftir uppskrift frá Brynhildi bestaskinni vinkonu. Það var greinilega vel þess virði að hafa verið með þessa snúðaþráhyggju því þeir bragðast hreint wunderbar vel! Magnið varð reyndar brjálæðislegt, er að hugsa um að fara með ca. 20 stykki á vöggustofuna á morgun og fara svo bara út í strætóskýli og deila ca. 100 stykkjum út til þreyttra og svangra nemenda sem hanga og bíða eftir hinum vonlausa strætisvagni sem kemur iðulega of seint. Nú, restina, ca. 40 stykki, get ég svo dundað mér við að borða sjálf.

Nú ætla ég hins vegar að fara að bursta tennur og fara að sofa enda klukkan farin að nálgast 2 og músin vaknar víst alveg ábyggilega á sínum vanalega tíma þótt mamma hennar sé í syngjandi sveiflu langt fram á nótt, núna að hlusta á Stevie Wonder syngja "Isn't she lovely" sem var einmitt spilað á Rás 1 eða 2 daginn sem ég fæddist með kveðju til mömmu frá fyrrum vinnufélögum hennar á Útvarpinu.

...og svo að lokum þá var bumbumyndin að þessu sinni tekin í kvöld, sem sagt 39 vikna og 6 daga gömul bumba takk fyrir. Á barnalandi eru síðan fullt af nýjum og gömlum bumbumyndum ásamt myndum af aðalstjörnu þeirrar síðu.

laugardagur, október 18, 2008

Barnseignarleyfið og bumban 39 vikna og 2 daga gömul

Jæja. Það var ýmislegt sem ég ætlaði mér að gera í barnseignarleyfinu en bjóst einhvern veginn við að ég myndi ekki nenna að framkvæma allt sem stóð á what-to-do-listanum sem ég var búin að gera (ég ELSKA lista og geri lista yfir allt!). Nú er ég hins vegar búin með hvert einasta atriði á listanum sem er dálítið sorglegt því nú tekur bara biðin við. Þetta er það sem ég er búin að dunda mér við undanfarnar 2 vikur síðan leyfið hófst:

  • Ganga frá fötum litla bróður og gera herbergið hennar AD endanlega klárt

  • Fara í klippingu

  • Fara í plokkun og handsnyrtingu

  • Fara í bíó með eiginmanninum

  • Fara í bæjarferð og á kaffihús

  • Klára að skrifa útdrátt úr grein (grein sem ég er ekki búin að skrifa reyndar, þannig að þetta var svona ímyndaður útdráttur)

  • Ljúka síðustu smáatriðum í vinnunni, alls konar lítil verkefni sem náðist ekki að klára fyrir leyfið

  • Baka fílakaramelluköku (hún var lovely, takk fyrir uppskriftina Arngunnur mín)

  • Klára sænsku krimmabókina mína

  • Stooppa í gat á nýja sængurverinu hans litla snúðs

Þetta er svona það sem ég man eftir. Mikið af tímanum hef ég nú bara eytt í tölvugláp en því miður ekki nógu mikið í svefn og hvíld. Ég lofa sjálfri mér því t.d. á hverjum morgni þegar ég skreiðist fram úr með Önnu Dúfu upp úr klukkan 7 að ég muni fara snemma að sofa að kvöldi þess tiltekna dags. Það gerist því miður mjög sjaldan, ég veit ekki hvaða hangs er á mér öll kvöld. Það kannast víst margir við þetta, ekki satt?

Annars er allt gott að frétta af mér svona heilsufarslega séð. Ég var að vonast til að allt færi af stað eftir gærdaginn en þá fór ég í bæinn með Völu og gekk allt Strikið, fór í búðir og mátaði skó, borðaði heavy kryddaðan börger á BurgerKing en það virðist ekki hafa virkað. Ég er samt alltaf að fá einhverja litla verki en samt ekkert "alvöru". Ég er farin að bíða mjöööög spennt eftir því mómenti sem ég fæ fyrstu hríðina, get hreinlega ekki beðið! Við erum búin að ordna öllu með pössun fyrir AD og það er almennt allt tilbúið fyrir komu litla snúðsins; rúmið hans er tilbúið og vagninn sömuleiðis, búið að sjóða fyrir hann pínuaggalitlar snuddur, pakka heimferðarfötum fyrir hann niður í tösku (og sömuleiðis á mömmuna). Nú tekur þess vegna bara biðin við...

Læt að lokum fylgja með bumbumynd vikunnar sem sýnir hversu praktísk bumban er orðin; ég get notað hana sem hillu undir músina! Þetta er samt vonandi ein af síðustu bumbumyndunum. Góða helgi öll sömul.

þriðjudagur, október 14, 2008

21 mánaða og bráðum (?) stóra systir

Litla músin mín er 21 mánaða í dag, til hamingju með það hjartans dúfan mín :)

þriðjudagur, september 02, 2008

Halló! Halló, er e-r heima?!

Það er líklega ekki það allra sniðugasta að leyfa 19 mánaða dóttur sinni að leika sér með gsm síma foreldra sinna; alla vega hefur minn eitthvað skaddast í höndunum-eða munninum-á skottinu því hann er hættur að virka. Þegar ég hringi í fólk þá heyri ég í viðkomandi þegar hann svarar en fólk heyrir ekkert í mér-mjög draugalegt! Ég er samt svo mikill lúði með svona hluti að mér var eiginlega slétt sama og sendi bara sms í staðinn. Hjörtur er ögn skynsamari því það er auðvitað hreint ekkert sneddí að vera á síðustu vikum meðgöngunnar með bilaðan síma. Hann pantaði þess vegna handa mér nýjan síma áðan, ansi stelpulegan og sætan. Hér er hann litla krúttið, síminn sem sagt, ekki Hjörtur...

Bumban: 32 vikna og 1 dags gömul

Bumban að elda, hvað annað?

miðvikudagur, maí 21, 2008

Mynd dagsins

Litla bláa músin mín í ljósameðferð þegar hún var 6 daga gömul og ansi lasin af gulu :(

Annars er fátt í fréttum, ég pantaði flugmiða fyrir okkur mús í fyrradag; við fljúgum til Osló 3. júní og komum aftur heim 28. júní. Fjölskyldufaðirinn keyrir hins vegar á áfangastað því við erum með svo mikinn farangur; barnastól, leikföng, ferðatöskur... og svo verður líka gott að vera á bílnum svo við getum farið í stuttar ferðir um helgar og reynt að hafa þetta svolítið sumarfríslegt. Við erum ekkert í miklu stuði fyrir lestar og strætó, æ það er ósköp leiðinlegt finnst okkur. Hundurinn fer á hótel sem búið er að panta fyrir hana, voðalegur lúxus. Hún hefur verið þarna áður og leiddist það alls ekki, alla vega var hún ekkert spennt að koma með okkur aftur heim þegar við sóttum hana eftir síðasta frí (það segir vonandi meira um gæði hótelsins en bresti okkar sem hundaeigendur!). Henni finnst eflaust gaman og mikil tilbreyting í því að vera með heilum flokk af hundum á hverjum degi í stað þess að hafa nær eingöngu kompaní af okkur gamla settinu og smábarninu.

Nú, svo förum við til Íslands 6. júlí. Á dagskránni er eins og áður sagði að borða fullt af fiski og bragðaref frá Snælandi á hverjum degi (minnst 1 á dag), fara í sund, hitta vini og ættingja, fara í bústað... Þetta verður voða næs. Ekki er verra að mín kæra vinkona Abba verður búin að eignast frumburðinn (það ætti nú að gerast á næstum tveimur vikum) og Loftur frændi og Hildur kærastan hans eignast sitt fyrsta barn í júní. Svo á Birna vinkona von á sínu fyrsta barni í ágúst og sömuleiðis Daníel frændi og Halla kærastan hans. Við frændsystkinin ákváðum að gera þetta svona, eignast börn með tveggja mánaða millibili; Loftur byrjar í júní, svo kemur Daníel í ágúst og svo ég í október. Tveimur mánuðum seinna, um jólin sem sagt, ætlum við svo að halda sameiginlega veislu með þemanu frjósemi. Þetta síðastnefnda er nú reyndar bara bull. Kom meira að segja frekar illa út á prenti.

Farin að vinna...

miðvikudagur, maí 07, 2008

Plön sumarsins

Í tilefni sólríks dags ákvað ég að setja inn nokkrar myndir af kátu mús sætu lús sem voru teknar í mars þegar hún var nýbyrjuð að æfa sig að borða með skeið.











































Ég var annars að velta því fyrir mér í morgun hvað tíminn flygi áfram, hann gerir það reyndar alltaf en að undanförnu hefur mér fundist hver vika líða eins og 2 dagar. Mér finnst t.d. mjög stutt síðan ég tók óléttuprófið en þá var ég bara gengin 6 vikur með. Núna er ég gengin 16 vikur með, svo 10 vikur hafa liðið á hraða ljóssins. Finnst mér alla vega. Nú fer líka að styttast í að við förum til Noregs og ég er líklegast búin að finna handa okkur íbúð, meira að segja tvær. Við ætlum nefnilega að búa á sitthvorum staðnum við Hjörtur, þolum ekki að vera svona margar vikur saman frá morgni til kvölds, þið skiljið. Nei, þetta er nú bara létt spaug, ég er sem sagt búin að finna 2 íbúðir; önnur er pínkupons með engu herbergi en voðalega sæt og þægileg í nýuppgerðu húsi. Hin er frekar dimm, kjallaraíbúð í fúnkishúsi með grenitrjám í garðinum og rosalega ljótu eldhúsi en hún er stærri og með sér svefnherbergi sem er auðvitað þægilegra upp á það að gera að Anna Dúfa getur sofið vært á kvöldin og við þá setið skvaldrandi inni í stofu án þess að þurfa að hvíslast á. Ég er að vona að leigjandinn segi já, hann sendi mér póst í gærkvöldi og virtist jákvæður en þurfti samt að hugsa sig um því hann er eiginlega að leita að leigjanda fyrir lengri tíma. Ef hann segir nei þá tökum við bara litlu skonsunni, við hljótum að lifa þrengslin af í rúmar þrjár vikur.
Nú, svo komum við til Íslands í júlí og þá tek ég það sumarfrí sem ég á inni, 2 vikur, og fer þess vegna beint aftur að vinna þegar við Annsí Dúfa komum aftur til Köben 21. júlí. Svo fer í einn áfanga hér við skólann í ágúst og svo er 3 daga námskeið í kennslufræðum í september og svo barnseignarleyfi í október! Svei mér þá hvað þetta verður skemmtilegt!

Jæja, farin að vinna-hafið það gott, hvernig sem veðrið er þar sem þið eruð stödd kæru lesendur.

miðvikudagur, apríl 30, 2008

Passaporte a la mús

Jæja, þá er Anna Dúfa búin að fara í sína fyrstu passamyndatöku. Við fórum í íslenska sendiráðið í morgun og sóttum um fyrsta passann hennar og sömuleiðis um nýjan fyrir pabba hennar. Myndin var alveg hreint ágæt sem var tekin af henni, hún var þó ekki eins glaðleg og hér að ofan enda dálítið alvarlegt mál að sækja um svona passa. Við fáum síðan nýju passana þeirra feðginanna senda með pósti eftir ca. viku. Aldeilis fín afgreiðsla.

Annars er alltaf voðalega gott og hressandi að fara niður í miðbæ þegar maður býr svona í úthverfi eins og við. Ég myndi ekki vilja búa með Önnu Dúfu og komandi litla systkini niðri í miðbæ Kaupmannahafnar en það er alveg dásamlegt að fara í smá göngutúr þar, eins og við gerðum eftir myndatökuna. Við fórum á kaffihús sem heitir Lagkagehuset, æðislegur staður! Þetta er svona sambland af bakaríi og kaffihúsi þar sem maður getur sest niður úti við glugga og fylgst með mannlífinu fyrir utan. Við hjónin plöntuðum okkur niður á barstóla við gluggann en passaportemúsin settist í gluggakistuna og fylgdist spennt með því sem fram fór á götum bæjarins. Hún er svo mikil urban-mús í sér, eins og ég hef alltaf sagt (annað en mamma hennar, alin upp í gettóinu, langt frá siðmenningu og kúltúr miðbæjarins), að hún hentist á fætur á kaffihúsinu þegar þjófavörn á nærliggjandi bíl fór af stað, og tók nokkur vel valin dansspor. Músík miðbæjarins sem sagt.

Nú erum við mæðgurnar komnar aftur heim í úthverfið í glampandi sól, barnið sefur úti í vagni undir sólfhlífinni en ég held mig innan dyra enda ekki mikill bógur í hita. Ég held ég lagi mér einn bolla af góðu kaffi og horfi svo á eins og eitt stykki Dr. Phil á meðan ég brýt saman þvottinn. Já, ég er sem sagt heima í dag út af verkfallinu á leikskólanum. Svo verðum við heima bæði á morgun (1. maí+uppstigningardagur, remember) og svo fer ég í vinnuna á föstudaginn. Frekar skrýtin vinnuvika. Í næstu viku tekur síðan rútínan aftur við því þá fer Anna Dúfa aftur á leikskólann.
Jæja, best að nýta tímann á meðan barnið sefur og slappa svolítið af og hafa það næs.
Takk fyrir lesturinn og munið endilega eftir að kvitta svo ég viti hver kemur hingað inn...

mánudagur, apríl 21, 2008

Sumarið er tíminn...

...þegar þjófar far´á stjá. Þannig söng Bubbi í fyrrum uppáhalds laginu mínu, ef ég man rétt. Hér hafa kannski ekki margar þjófar verið á stjá en sumarið er alla vega komið í mínum huga. Í hugum Dana er þetta bara milt vor en fyrir mér er þetta tryllt sumar og mjög stutt í að ég dragi fram minipilsið og pínu-bikiníið (jiii hvað ég yrði smart í svoleiðis átfitti!). Helgin var full af sól, sumaryl og góðum stundum. Á laugardaginn fórum við á ströndina, hundinum og Önnu Dúfu til mikillar gleði og svo keyptum við okkur heimsins besta ís í tilefni góða veðursins. Ég fékk mér ísrétt sem samanstóð af þremur ískúlum og ís úr vél ofan á og að lokum einni krembollu ofan á öll herlegheitin! Mar er óléttur sko (lesist með Gyðu Sólar-tóni). Í gær fórum við á sveitabæ eigi svo langt frá heimili okkar, hálftíma akstur eða svo, á vorhátíð í tilefni þess að beljunum var hleypt út í gær. Þetta var ægilegt upplifelsi, aðallega fyrir litlu mús sem hefur aldrei séð kýr öðruvísi en á prenti. Svo fengum við mjólk og heimabakað brauð með spægipylsu sem gerð var á staðnum, óskaplega gott, og svo keyptum við okkur danska eplaköku með heilum haug af rjóma. Mmm! Ég þarf að fara að gera svoleiðis jömmí. Ákveðin í að bjóða upp á svoleiðis í næsta saumaklúbbi á Íslandi.

Nú, svo borðuðum við fullt af góðum mat heima fyrir, ég gerði ansi gott ossó búkkó á laugardaginn og í gær vorum við með svínakótelettur. Á föstudaginn bakaði ég heimsins verstu gulrótaköku sem sykurgrísirnir alræmdu komu ekki einu sinni niður og þá er nú eitthvað mikið að!

Annars hef ég það fínt þessa dagana en ég er ansi lúin oft. Ég var að rifja það upp með sjálfri mér hvernig mér hefði liðið á meðgöngunni með Önnu Dúfu og komst að þeirri niðurstöðu að ég hefði verið miklu sprækari. Við nánari tilhugsun komst ég þó að því að líklega hefði ég verið alveg jafn þreytt en munurinn var sá að ég gat lagt mig þegar mér hentaði. Ég var í fyrsta lagi að vinna að lokaverkefninu mínu svo ég stjórnaði vinnutíma mínum gjörsamlega sjálf, öfugt við vinnuna í dag þar sem ég sit frá 8-15.30 eða 9-16.30. Svo er líka töluverður munur að eiga eitt lítið kríli sem þarf að hugsa um að loknum vinnudegi og þá getur maður ekki alltaf lagt sig þótt maður sé lúin og orkulítill. Síðustu viku hefur verið viðbjóðslega mikið að gera hjá mér við að klára skýrslu sem ég var að skrifa um meðhöndlun á rusli á Grænlandi, og Hjörtur þurfti að nýta hverja frístund um helgina til að vinna að skilaverkefni sem hann á að skila í dag kl. 13hundruð sharp! Það er þess vegna búið að vera pínu stress heima fyrir og lundin hjá mér oft búin að vera frekar ólétt-í bókstaflegri merkingu, haha! Æ ég vona samt að ég fari að hressast með hækkandi sól og að lund mín fari að léttast. Ég er að hugsa um að skella mér í sund x2 í viku og kaupa mér kannski e-a járnblöndu sem ég sá auglýsta sem á að vera góð í maga. Það kannski hressir mig við.
Jæja, áður en þetta verður of sjálfmiðað, sem þetta er nú þegar orðið, þá ætla ég að slútta þessari færslu og óska ykkur bara góðs vinnudags og almennt góðs dags.
Sjáumst svo í júlí, kæru vinir og ættingjar á Íslandi :)

laugardagur, apríl 05, 2008

Vandamál vikunnar...

...leystust farsællega. Ég lét klippa mig og þótt ég sé enn að venjast "stutta" hárinu þá er ég bara nokkuð ánægð. Svo fór ég í gær og pantaði... KÚLUgleraugun :) Hlakka mikið til að fá þau á nefið eftir ca. viku. Talandi um atburði komandi viku þá er von á góðum gestum á fimmtudaginn, Arngunnur og Brynhildur mínar ástkæru vinkonur koma í heimsókn og Brynhildur verður að þessu sinni Æsulaus. Síðast þegar þær systur komu í heimsókn, í nóvember (er það ekki rétt munað hjá mér?) þá kom Æsa Sigurbjörg með en nú er hún orðin svo stór að hún verður heima hjá pabba sínum sem ætlar að fóðra hana á suðusúkkulaði og sykurdjúsi á meðan mamma hennar er í úgglöndum ;) Ég hef þetta beint frá pabba stúlkunnar (sem var reyndar að grínast).

Af okkur er annars allt gott að frétta. Anna Dúfa fór að ganga í vikunni og vá hvað hún er dugleg! Hún er svo stöðug á litlu löppunum og dettur nánast aldrei. Ég var líka búin að segja það við Hjört að hún var löngu tilbúin til að fara að ganga svona líkamlega séð, ég sá að á henni þegar hún sleppti húsgögnunum og tók nokkur skref í "lausu lofti". Hún er hins vegar mjög varkár í eðli sínu (á ekki langt að sækja það, foreldrarnir ekki beint mestu wildcats í heimi!) svo hún fór sér hægt í þetta en svo var hún líka farin að ganga eins og stálpuð stúlka allt í einu. Nú gengur hún um allt og þvílíkt frelsi fyrir hana! Hún er svo montin og ánægð og hlær og skríkir í hverju skrefi. Það erfiða er hins vegar að fá hana til að vera í kerrunni sinni eða í fanginu á manni þegar maður fer með hana eitthvert út því nú vill hún einungis ganga. Við fórum t.d. út að versla í gær og eftir að hafa haldið henni rólegri alla búðarferðina með vínberjum og jarðarberjum sem ég hafði náð í, frekar frústreruð, í ávaxtadeildinni, þá var Göngu-Hrólfur (eða Reynir Pétur, eins og pabbi hennar kallaði hana um daginn) búin að fá nóg af þessari smábarnalegu kerru og vildi ganga. Ég tók hana þess vegna upp úr og ætlaði að leiða hana um verslunarmiðstöðina en nei takk, hún vildi ganga sjálf og þá fann ég "nýjan" og áður óþekktan ótta læðast að mér-hvað ef ég missti sjónar af henni í bara nokkrar sekúndur og einhver stæli henni eða hún týndist?! Svona er það að eiga barn; maður er stanslaust með lífið í lúkunum. Þegar hún var nýfædd þá var ég lengi vel hrædd um að hún andaði ekki ef hún lá sofandi í rúminu sínu (og believe me, ég er ekki eina móðirin sem hefur upplifað þetta, þetta virðist vera afar útbreitt meðal nýbakaðra foreldra) og þegar hún fór að eldast og átti að byrja á vöggustofunni þá gat ég tárast bara við tilhugsunina um að nú gæti ég ekki lengur haft auga með henni allan daginn heldur þyrfti að treysta öðru fólki fyrir henni helminginn af deginum. Nú þegar hún er farin að ganga og hefur öðlast meira frelsi verð ég enn hræddari! Ég talaði einu sinni um þetta við mömmu, þennan stanslausa ótta sem býr innra með manni og hvort þetta yrði skárra því eldri sem börnin yrðu. Hennar svar var að hún væri enn jafn "hrædd" um okkur systkinin og við erum á bilinu 29 til 47 ára! Ef við yrðum veik eða værum einhvers staðar á ferðalagi þá væri henni aldrei alveg sama, sérstaklega ef við værum ein. Já, það er skrýtið að vera foreldri, maður elskar þessa litlu rassálfa frá því augnabliki sem maður sér þá, gjörsamlega skilyrðislaust og mun alltaf gera og maður breytist í raun og veru í lamað tilfinningabúnt daginn sem maður eignast þau. Það gerði ég alla vega. En um leið er þetta líka það besta og mesta undur sem ég hef upplifað og líf mitt hefur aldrei verið viðburðarríkara en eftir að ég varð mamma. Það gerist einfaldlega eitthvað nýtt á hverjum degi! Betra en að fara í sirkus kvöld eftir kvöld... hver yrði nú ekki leiður á því eftir ca. þrjú kvöld?

Jæja, áður en ég verð of tilfinningarík á þessum laugardagsmorgni fyrir klukkan níu þá ætla ég að skella mér í eitthvað praktískt eins og að setja krúsönt í ofninn og laga kaffi latte og ferskan ávaxtasafa fyrir familíuna. Ég átti nefnilega morgunvakina frá því að lukkutröllið vaknaði kl. 6.40 en eftir morgunmatinn tekur rafmagnsverkfræðingurinn við og ég fæ að leggja mig með blöðin í nýja rúminu okkar. Mmmmm!
Góða helgi öll sömul!
Ragnhildur með taugaendana eins og slör á eftir mér...

föstudagur, mars 28, 2008

Lóan er komin...

...að kveða burt snjóinn á Íslandi, sá ég á mbl.is. Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir ykkur sem búið á Íslandi, ekki satt? Þetta er nú hreinlega það alíslenskasta í heimi, vorboðinn ljúfi á landinu fagra í norðri. Oh hvað ég get ekki beðið eftir að flytja heim! HEIM!

Annars er allt prýðilegt að frétta úr Danaveldi og ekkert hægt að kvarta. Anna Dúfa svaf í ALLA nótt án þess að rumska, var í ekstra þykkum náttgalla og var fyrir vikið eins og Michellin maðurinn en svaf líka eins og steinn. Henni er nefnilega oft svo kalt á nóttunni því botninn á rúminu hennar er næstum því niðri við gólf og það er oft ansi kalt í svefnherberginu okkar :( Við erum nefnilega í endaíbúð í raðhúsinu svo svefnherbergið er við 2 útveggi og það er ansi erfitt að ná upp almennilegri hlýju í herberginu. En Michellin músin svaf sem sagt vel og ég er bara nokkuð spræk sjálf fyrir vikið, var mætt kl. 7.40 í vinnuna. Takk fyrir.

Heyrðu, svona til að gera ykkur endanlega rugluð þá eru hér nýjar fréttir af rúmamálum okkar hjónanna. Við enduðum á því að kaupa sólgula prinsessurúmið. Við ætlum að bíða með að kaupa okkur nýjar dýnur þar til við flytjum til Íslands því við vitum auðvitað ekkert hvernig húsnæði við verðum í á Lóulandi og hvursu stórt svefnherbergi við eignumst. Hvur veit nema við kaupum okkur Kingsize rúm ef plássið leyfir í framtíðinni! Er það ekki þetta sem er sagt um sambönd fólks, því lengra sem líður á sambandið, því breiðara verður hjónarúmið? Ég myndi nú frekar segja að því fleiri sem börnin verða, því breiðara verður hjónarúmið. Anyway, það sól/hlandgula kostaði bara 250 kall sem er nú ekki meira en 15 frostpinnar eða svo þannig að við ákváðum bara að kaupa það og nota gömlu góðu dýnuna okkar. Þetta verður án efa draumlekkert og þegar ég verð búin að setja seríuna á rammann upp, þið skiljið, þá veit ég að hann Hjörtur minn mun liggja gjörsamlega heillaður uppi í rúmi á kvöldin og sofa vært allar nætur, sæll og glaður með nýja prinsessurúmið sitt.
Jæja, farin að vinna og svo er morgunkaffi með rúnstykkjum kl. 9. Föstudagshefð í vinnunni, Danirnir kunna þetta, ha? Hyggehyggehygge...

miðvikudagur, mars 19, 2008

Mmmm...

Var að borða dásamlegan hádegismat, bjó mér til ótrúlega frísklegt salat með alls kyns lituðum tómötum og hnetum, sýrðum rjóma og sítrónu og bakaði mér kartöflu sem ég stútfyllti af dönsku ekta smjöri. MMMMM! Borðaði þetta með bestu lyst og drakk íííískalt vatn með! Af hverju fær maður sér ekki alltaf svona góðan mat í hádeginu? Verst hvað ég varð syfjuð eftir matinn, nú langar mig helst að fleygja mér í smá stund en þarf samt að vinna. Kannski hefði ég átt að nýta tímann sem fór í þetta blogg til hvíldar? Hmmm, nú er það alla vega orðið of seint, bara tveir tímar rúmir þar til ég sæki litla skott svo það er eins gott að nýta tímann.


Hún er annars mjög spræk þessa dagana-næturnar eru ekki eins skemmtilegar hjá henni og mig grunar að ástæðan sé vökvi í eyrunum. Hún er farin að dansa eins og henni sé borgað fyrir það, á svona leikfang sem spilar 15 mismunandi melódíur og þessu stillir hún upp á sófaborðið og kveikir á þessu og dansar af sér skóna! Svona er hún víst líka á leikskólanum og hin börnin gleðjast svo yfir þessu að þau skella sér á gólfið með henni líka. Litli gleðigjafinn minn og sólargeisli :) Ég verð alveg meyr bara af því að skrifa um hana, ég get svo svarið það.
Jæja, nú ætla ég að nýta tímann og skrifa um ruslameðhöndlun á Grænlandi. Helvíti skemmtileg skýrsla hjá mér í uppsiglingu. Þið getið pantað eintak hjá ritaranum mínum.

Gleðilega páska!

mánudagur, mars 17, 2008

Páskavinnuekkifrí


Í dag ákvað ég að vera heima og vinna. Það eru nánast allir í vinnunni farnir í páskafrí, taka sér aukafrí þessa þrjá daga fram að löglegu páskafríi og skella sér á skíði til Svíþjóðar eða eitthvað. Mér fannst þess vegna frekar kuldalegt að sitja aaaalein úti í vinnu svo ég fór bara í morgun og sótti tölvuna mína-fartölvu sem sagt, ekki stóra hlunkaheimilistölvu ef þið voruð að sjá það fyrir ykkur-og kom svo aftur hingað heim. Ég komst reyndar að því þegar ég kom í vinnuna að það voru 3 konur í vinnunni svo þetta hefði nú ekkert verið svo trist en þar sem ég hafði leyft Söshu að koma með í bílinn þá varð ég að fara heim aftur. Á leiðinni heim ákvað ég að koma við í bakaríi og þá liggur leið manns fram hjá hinum svokallaða hundaskógi, þ.e.a.s. skóginum þar sem Sasha fær að hlaupa laus og hittir oft fullt af öðrum hundum. Hún þekkir þetta svæði og var löngu farin að hágráta af æsingi og taugatrekkingi í skottinu svo ég hafði ekki hjarta í mér til að bruna fram hjá skóginum án þess að koma aðeins við. Svona lætur maður allt eftir þessum "börnum" sínum :) Nú, það var svo sem ekki slæmt að komast aðeins út í náttúruna í þessu líka dásamlega veðri sem er hérna í dag, yndislega hlýtt en samt smá gola og sólskin. Mmmm, ekki dónalegt að byrja daginn á stuttum göngutúr í skóginum í svona rjómablíðu. Svo fórum við í bakaríið og keyptum rúnstykki og súkkulaðiskonsur sem reyndust vera gjörsamlega nýbakaðar með stökkri skorpu og lungamjúku innihaldi... þið skiljið. Nú, svo er ég bara komin heim í huggulegheitin og ætla að sitja hér og vinna af kappi þar til þær hringja af leikskólanum þegar Anna Dúfa er vöknuð upp úr kl. 14, þá fer ég út og sæki skottið.

Fengum annars páskaeggjasendingu frá mömmu og pabba í síðustu viku, við hjónin fengum egg nr. 7 frá Nóa og Síríus og unginn fékk egg nr. 2. Páskaeggin komu í þessum líka fína kassa sem litla páskakanínan er búin að dunda sér mikið við :) Sjá ofangreinda ljósmynd...
Nú, best að snúa sér að alvöru lífsins. Mér þykir ekki líklegt að ég bloggi aftur fyrr en í næstu viku svo ég óska ykkur bara gleðilegra páska!
Halló halló, hvað varð um vorveðrið sem ég var að monta mig af nokkrum línum ofar? Það er farið að snjóa takk fyrir! Oh well, huggulegt samt sem áður...

miðvikudagur, febrúar 27, 2008

Oooohhh.....

...hvað ég á eftir að sakna músarinnar minnar þessa fimm daga sem ég verð burtu. Ég er löngu orðin vön því að vera aðskilin frá Hirti í margar vikur þess vegna en ég hef aldrei verið lengur frá Önnu Dúfu en eina nótt! Ég er strax farin að hlakka til að kyssa hana og faðma á mánudagskvöldið! Gúdd næt evvrívonn...

föstudagur, febrúar 22, 2008

Helgarfrí hjá Bellu símamær

Það er ansi kalt í DK finnst mér þessa dagana, veit ekki alveg hvað við eigum að gera um helgina. Mér datt í hug að fara í dýragarðinn en það er full kalt fyrir litlar mýs að vera úti við nema í stuttan tíma í einu. Eitthvað þarf ég að æfa mig á þessari kynningu fyrir næstu helgi, ég á að kynna mitt efni á sunnudagsmorgninum kl. 9.30 eða 10 ef ég man rétt. Ég er alla vega fyrsta manneskja á dagskrá á ráðstefnunni þann daginn.

Jæja, best að vinna eitthvað svo ég geti farið í helgarfrí kl. 16.30 með góðri samvisku. Set inn nokkrar myndir af músinni að borða Nóa Kropp svona í tilefni dagsins. Værsgo'

þriðjudagur, febrúar 12, 2008

Í fyrsta skipti í 1½ mánuð...

...svaf Anna Dúfa vært frá klukkan 20.30 til klukkan að verða 6 í morgun! Jeiiiii! Þá fékk hún að drekka hjá mömmz og svaf svo vært til kl. 8. Kannski er vökvinn að minnka í litlu eyrunum og kannski fer hún barasta að sofa betur litla músin? Hún var líka einkar kát þegar hún vaknaði og borðaði heil ósköp af bæði graut og brauði sem hún bleytti samviskusamlega í mjólkinni í könnunni sinni. Og munurinn á manni sjálfum þegar maður sefur almennilega! Jeminn eini! Mér leið hreinlega illa í gær, Anna Dúfa vaknaði nefnilega x4 þarsíðustu nótt og ég þarf á þessari önn að mæta kl. 7.30 á mánudögum og fimmtudögum til að geta farið heim kl. 15 (vinnuskyldan er bara 7,5 tímar hér í DK, lúxus?) því HJ er í áfanga á þessum dögum. Nú, meiningin er sem sagt að það okkar skilar Önnu Dúfu á vöggustofuna sé á bílnum, því strætóinn í sveitinni sem við búum í gengur bara x2 á klukkutíma og það má ekki miklu muna að maður missi af honum; ein óvænt bleyja þegar maður er að hlaupa út úr dyrunum og þá er maður allt í einu orðin mega seinn fyrir! Ég átti þess vegna að fara með strætó og eitthvað var ég taugaveikluð yfir því að þurfa að vakna svona snemma og að ég myndi þá missa af sveitabússinum, sem ég hef ekki tekið í meira en ár og var þess vegna alltaf að vakna þess á milli sem Anna Dúfa vaknaði æpandi. Úff. Ég get svo svarið það, ég var eins og undin tuska í vinnunni í gær og svona svefnleysi fer beint í taugakerfið á mér. Ég var últra viðkvæm allan daginn, mistúlkaði allt sem Hjörtur sagði og var stressuð og sveitt. Ekki bætti úr sök að ég hafði ekki tíma til að fara í sturtu og fór í vinnuna í ljótustu fötum í heimi! Ég sofnaði þess vegna glöð með Önnu Dúfu kl. 20.30 í gærkvöldi og er hreint eins og nýsleginn túskildingur í dag. Ekkert stress, bara sultuslök og engar ranghugmyndir og mistúlkanir hjá frúnni. Ég fer hins vegar að verða stressuð ef ég fer ekki að sinna vinnunni... Have a nice day öll sömul, vonandi ósveittan og óstressaðan!

föstudagur, febrúar 08, 2008

ÞREYTT.IS


Anna Dúfa vaknaði kl. 3 í nótt og vildi fá að drekka. Pabbi hennar bauð henni vatn og hún gargaði sig hása af móðgun. Ég var því rekin fram í stofu svo pabbi hennar gæti róað hana niður og eftir ca. kortér (sem mér fannst líða álíka hægt og klukkutími) var hún orðin róleg aftur og sofnaði svo rétt fyrir kl. 4. Og þau bæði reyndar feðginin. En ég? Sofnaði ég?? NEI! Ég gerði allt mögulegt til að bæði þreyta mig og láta tímann líða; tók úr þvottavélinni og hengdi upp, fékk mér óskaplega lekkerar hnetusmákökur og mjólk, las ca. 2 tímarit spjaldanna á milli en aldrei kom helvítið hann Óli Lokbrá með töfradraumaduftið sitt til að strá yfir augnlokin á mér. Það endaði með því að ég drattaðist aftur inn í rúm kl. ca. 6 þegar Hjörtur fór á fætur og þá loksins sofnaði ég með músina við hliðina á mér. Og var ég hress þegar hún vakti mig kl. 7.15? Ekkert mjög. Er ég hress núna yfir lestri á greinum um bakteríur í skólpi? Ekkert mjög. Thank God fyrir þessa snjöllu uppfinningu sem verkalýðsforingjarnir í old days fundu upp, helgina. Ég held ég fari bara heim á eftir og sofi fram á mánudag... zzz

þriðjudagur, febrúar 05, 2008

Anna Dúfa

Elsku músin mín, hún var svo óhamingjusöm þegar ég kvaddi hana í morgun á vöggustofunni, hágrét og var svo kvefuð að hún náði varla andanum! Ég fór alveg heartbroken út í bíl og hún er mér enn efst í huga. Þess vegna datt mér ekkert annað í hug fyrir blogg dagsins en að útbúa myndasýningu með þemanu "elsku hjartans dóttir mín". Værsgo'



mánudagur, janúar 28, 2008

Hvernig finnst ykkur heimasíða músarinnar?

Ég verð reyndar að viðurkenna að ég stal bakgrunninum frá annarri heimasíðu en útbjó merkimiðana sjálf. Ef eigandi síðunnar sem ég stal frá rekst á þessa færslu þá biðst ég velvirðingar á stuldinum, mér fannst þetta bara svo fallegt að ég varð eins og krummi þegar hann sér glitrandi muni, augun í mér urðu kringlótt og starandi og yfir andlitið færðist fjarrænt og örlítið hálfvitalegt bros. Anyway... endilega kíkið í heimsókn :)



fimmtudagur, janúar 17, 2008

Heia Norge!

Eða réttara sagt heia Köbenhavn því ég kom heim í gærkvöldi eftir tveggja daga ferð til Noregs. Ég fór ásamt þremur vinnufélögum mínum, m.a. öðrum danska leiðbeinandanum mínum (ég er með tvo danska leiðbeinendur sem báðir vinna við deildina mína) en ferðin var farin fyrir mig og verkefnið mitt. Fórum sem sagt til að hitta þriðja leiðbeinandann minn sem er norskur prófessor við Umhverfis- og lífvísindaháskólann í Ási í Noregi; Universitetet for Miljø- og Biovitenskap i Ås i Norge fyrir ykkur sem hatið fólk sem íslenskar alla skapaða hluti (eins og ég geri...). Við lögðum af stað kl. 6 á þriðjudagsmorguninn, keyrðum þetta sem sagt og vorum komin á áfangastað rúmlega 14. Eyddum deginum í að skoða rannsóknarstofur við norska háskólann og fórum svo í mat til leiðbeinandans um kvöldið. Mjög huggulegt! Vorum hins vegar svo lúin að við fórum snemma heim og sofnuðum, eða ég hefði átt að sofna, kl. 22 en ég naut hins vegar "frelsisins" og las í jólabókinni minni Óreiða á striga til kl. 1, vitandi það að ég gat sofið án truflana alla nóttina. Þetta var einmitt fyrsta nóttin mín frá Önnu Dúfu mús og ég var búin að kvíða því svolítið en þetta reyndist mér nú bara nokkuð létt skal ég segja ykkur.
Á miðvikudagsmorgninum fórum við að skoða fleiri rannsóknarstofur og var svo boðið í hádegismat á þeirri síðustu sem við skoðuðum, ekki inni á rannsóknarstofunni þó en í matsalnum. Fengum brauð með norskum mysuosti sem bragðast nákvæmlega eins og sá íslenski, salat og jógúrt og kaffi og meira brauð og det ene og det andet. Lögðum svo af stað aftur til Köbenhavn kl. 13, komum við á sænsku hraðbrautarklósetti sem hefur fengið verðlaun fyrir að vera það snyrtilegasta sinnar tegundar í Sverige og brunuðum svo áfram og komum heim kl. 21. Mikið skelfing var ég fegin að hitta músarögnina mína (og Hjört auðvitað líka!) og hún fegin að hitta mig. Var greinilega farin að sakna þess að fá mjólkursopa hjá mömmu því hún "drakk yfir sig" og steinsofnaði með stútfulla bumbuna af mjólk og vaknaði svo upp úr miðnætti og kastaði einhver ósköp upp, litli ljúfingurinn minn! Hún fór þess vegna í miðnæturbað og við skiptum á rúminu og fórum svo að sofa. Er samt ekki laust við að ég sé bara ansi hreint sybbin orðin núna og klukkan rétt að verða sjö. Ja hérna hér. Jæja, ætli við Hjörtur förum ekki að koma okkur út í búð ásamt Önnu Dúfu og fáum okkur kannski bara eitthvað í gogginn á Pizza Hut, það er alltaf svo ágætur staður. Uppáhalds staðurinn minn reyndar :) Fyrir utan McDonalds... það þarf svo lítið til að gleðja Fellavillinga, farið þið með okkur á McDonalds og við setjum upp sparibrosið og vatnsgreiðum okkur og líður eins og á frönsku veitinahúsi með hvítum dúkum. Jæja, hætt þessu bulli. Takk fyrir lesturinn. Munið að kvitta og góða helgi.