...að kveða burt snjóinn á Íslandi, sá ég á mbl.is. Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir ykkur sem búið á Íslandi, ekki satt? Þetta er nú hreinlega það alíslenskasta í heimi, vorboðinn ljúfi á landinu fagra í norðri. Oh hvað ég get ekki beðið eftir að flytja heim! HEIM!Annars er allt prýðilegt að frétta úr Danaveldi og ekkert hægt að kvarta. Anna Dúfa svaf í ALLA nótt án þess að rumska, var í ekstra þykkum náttgalla og var fyrir vikið eins og Michellin maðurinn en svaf líka eins og steinn. Henni er nefnilega oft svo kalt á nóttunni því botninn á rúminu hennar er næstum því niðri við gólf og það er oft ansi kalt í svefnherberginu okkar :( Við erum nefnilega í endaíbúð í raðhúsinu svo svefnherbergið er við 2 útveggi og það er ansi erfitt að ná upp almennilegri hlýju í herberginu. En Michellin músin svaf sem sagt vel og ég er bara nokkuð spræk sjálf fyrir vikið, var mætt kl. 7.40 í vinnuna. Takk fyrir.
Heyrðu, svona til að gera ykkur endanlega rugluð þá eru hér nýjar fréttir af rúmamálum okkar hjónanna. Við enduðum á því að kaupa sólgula prinsessurúmið. Við ætlum að bíða með að kaupa okkur nýjar dýnur þar til við flytjum til Íslands því við vitum auðvitað ekkert hvernig húsnæði við verðum í á Lóulandi og hvursu stórt svefnherbergi við eignumst. Hvur veit nema við kaupum okkur Kingsize rúm ef plássið leyfir í framtíðinni! Er það ekki þetta sem er sagt um sambönd fólks, því lengra sem líður á sambandið, því breiðara verður hjónarúmið? Ég myndi nú frekar segja að því fleiri sem börnin verða, því breiðara verður hjónarúmið. Anyway, það sól/hlandgula kostaði bara 250 kall sem er nú ekki meira en 15 frostpinnar eða svo þannig að við ákváðum bara að kaupa það og nota gömlu góðu dýnuna okkar. Þetta verður án efa draumlekkert og þegar ég verð búin að setja seríuna á rammann upp, þið skiljið, þá veit ég að hann Hjörtur minn mun liggja gjörsamlega heillaður uppi í rúmi á kvöldin og sofa vært allar nætur, sæll og glaður með nýja prinsessurúmið sitt.
Jæja, farin að vinna og svo er morgunkaffi með rúnstykkjum kl. 9. Föstudagshefð í vinnunni, Danirnir kunna þetta, ha? Hyggehyggehygge...
