Sýnir færslur með efnisorðinu skóli. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu skóli. Sýna allar færslur

sunnudagur, september 14, 2008

Bumban: 34 vikna og 2 daga gömul

Þessi mynd var tekin úti á háskólasvæði í gær í göngutúr með familíunni.

mánudagur, ágúst 11, 2008

Konan sem gat ekki hætt...

...að kaupa föt á litla lukkutröllið sitt. Enn er ég að sjoppa á snúðinn og allt af þessari góðu síðu þar sem notuð og ný föt eru seld á spottprís. Þetta er það nýjasta í fataskápnum:



Anna Dúfa á einmitt þessar neðstu buxur í dökkbleiku, heldur stærri, og ég elska þær gjörsamlega! Ég veit ekki hvort þessi föt eru seld á Íslandi, merkið heitir Ida T, en ef þið barnafólkið sjáið það e-s staðar þá mæli ég eindregið með því, sérstaklega flauelisbuxum.

Nú, svo ég færi ykkur frekari fatafréttir þá atti ég þeim út í prjónakeppni, ömmunum tveimur, og þær eru báðar byrjaðar að prjóna á þann stutta. Amma Þó byrjuð að prjóna dásamlegt sett sem mun líta nokkurn veginn svona út og í þessum sömu litum:

Amma D. ætlar hins vegar að prjóna svona írska hettupeysu í hráhvítu útgáfunni:

Ég verð annars heima í dag. Mér var hálf illt í hálsinum í morgun og ákvað að keyra bara H í vinnuna og fara svo og sækja vinnutölvuna mína og vinna hér heima. Er reyndar ekki farin að vinna enn, er t.d. að blogga núna...

Annars kom norski leiðbeinandinn minn til Kaupmannahafnar í gær; hann er á leið til Grænlands til að hjálpa til við hluta af verkefninu mínu en átti ekki flug fyrr en í morgun svo hann gisti á hóteli hér í Köben í nótt. Við familían sóttum hann á Kastrup og hann borðaði kvöldmat hér heima; vorum með ansi gott kjúklingasalat í matinn og heitt brauð með. Salatið samanstendur af barbíkjúkjúklingi, rucola salati, baby laufum, cherry tómötum, gráðaosti, peru og svo mylur maður nachos snakk yfir í lokin og ristaðar furuhnetur. Ansi hreint lekkert. Þetta var samt í þurrara lagi í gær og ég gleymdi að setja peru, svo það vantaði dálítið sæta bragðið til að vega upp á móti salta snakkinu og gráðostinum. Þetta mæltist samt vel fyrir hjá Norðmanninum sem fékk sér 3 skammta (ég taldi...). Við töluðum mest um hluti algjörlega ótengda verkefninu mínu en ég náði samt að spurja hann að þeim hlutum sem ég var búin að vera að brjóta heilann um í langan tíma og e-n veginn ekki náð að tala við neinn um. Ég á nefnilega bara 8 vikur eftir þar til ég fer í leyfi en það er slatti sem ég myndi vilja ná áður en ég fer í leyfið. Þess vegna væri kannski sniðugt að vera ekki að blogga á vinnutímanum! Annars sagði leiðbeinandinn mér að ég hefði verið næsthæst á prófinu sem ég tók í lok sumaráfangans í júní. Ég sem var ekki einu sinni viss um að ég hefði náð!

Jæja, best að vinda sér í e-r af þeim verkefnum sem bíða mín á næstu 8 vikunum. Hafið það gott kæru lesendur og vonandi verður vikan ánægjuleg hjá ykkur öllum.

miðvikudagur, apríl 02, 2008

Vor í Vaglaskógi

Heyrðu, bíddu nú við, var þetta ekki titill á bloggi hjá Helenu vinkonu fyrir eigi svo löngu síðan? Jæja, ég stel honum þá bara enda á hann vel við í Danmörku þessa dagana. Í gær var glampandi sólskin og gott veður og þar sem ég átti tíma í klippingu þá ákvað ég í tilefni dagsins að gera eitthvað vorlegt við hárið á mér. Ég var við það að segja við hárgreiðslukonuna, "vertu ekkert að klippa meira en svona 2 millimetra af hárinu og svo bara laga toppinn örlítið...", en ég vissi líka að ég yrði hundleið á því að koma heim og líta í spegilinn og sjá gjörsamlega minimal breytingu á hárinu á mér! Svo ég sagði henni bara að klippa mig eins og henni þætti fínt og héldi að klæddi mig vel og gjarnan eitthvað sumarlegt. Og viti menn, þetta varð bara ansi sumarlegt, mun styttra en það var og fullt af styttum í hárinu. Svo keypti ég mér alveg frábært sprey sem heitir "sea spray", svona saltvatnssprey sem gerir hárið dálítið stamt og alls ekki feitt og lúðalegt. Alveg gorgeous stöff skal ég segja ykkur. Svo er ég strax búin að ákveða hvernig ég ætla að láta klippa mig næst, eða alla vega áður en við komum heim í sumar. Alltaf gott að hafa svona lítil plön fyrir framtíðina, kannski dálítið useless plön en samt...
Svo fer ég í dag að skoða gleraugu, fór í sjónmælingu á mánudaginn og sjónin hefur skánað á öðru auganu en versnað á hinu. Þetta er þess vegna mest af eintómu pjatti að ég ætla að fá mér ný gleraugu því ég gæti vel notað þessi gömlu áfram. Ég get þá notað þau með þessum nýju, mig hefur hvort eð er alltaf dreymt um að eiga minnst tvenn gleraugu, ef ekki þrenn. Hver verður ekki líka leiður á þessu drasli, kommonn! Maður er með þetta framan í sér allan daginn allan ársins hring! Maður myndi nú eitthvað segja ef maður ætti bara eina peysu til að vera í allan ársins hring, ha? Ég var nú reyndar með kínverskri stelpu í tíma hér við DTU fyrir ca. 2 árum síðan sem var alltaf í sömu peysunni, alla önnina. Mjög mystískt svo ekki sé nú annað sagt.
Jæja, farin að vinna. Hafið það gott skinkuskott!

mánudagur, janúar 28, 2008

Allt við það sama í DK

Jæja, þá er þessi helgi liðin og enn ein vikan að byrja. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, ekki satt? (og tókuð þið eftir hvað þessi setning var ljóðræn hjá mér?)
Það gengur allt prýðilega hjá okkur hér í DK; barnið unir sér á vöggustofunni og er farin að borða eins og herforingi, alla vega eins og lítill herforingi. Hún er farin að prófa sig áfram með að drekka sjálf úr könnunni sinni og verður alltaf jafn hissa þegar henni tekst að koma upp í sig einum sopa! Bregður alltaf en lítur svo stolt á okkur Hjört. Af skólamálum er fátt að frétta, þannig séð, Hjörtur er að fara til Stokkhólms í næstu viku og í lok mánaðarins fer ég til Grænlands í fimm daga. Ég hlakka nú bara svolítið til, á að halda kynningu á ráðstefnu sem verður haldin í Sisimiut og þess utan ætlum við, ég og leiðbeinendurnir mínir þrír, að setjast niður og ákveða út á hvað rannsóknirnar mínar eiga að ganga næstu 3 árin. Við erum svona með nokkuð grófa mynd af því en ætlum að fastákveða það á þessum fundi. Ég þarf nefnilega að skila af mér námsáætlun í lok apríl sem svokölluð doktorsnámsnefnd hér við skólann þarf að samþykkja. Í þessari áætlun þarf maður að tilgreina út á hvað rannsóknirnar eiga að ganga, hvaða bækur maður ætli að lesa, hvaða áfanga maður ætli að taka, hvaða ráðstefnur maður ætli á, hvort maður stefni á að skrifa og fá birtar (eða að reyna að fá birtar) e-r greinar o.s.frv. Það verður voðalega gaman að geta sett þetta niður fyrir sig og sjá þetta svona betur fyrir sér. Akkúrat núna er þetta svolítið losaralegt, ég veit bara að ég verð í þessu námi í 3 ár í viðbót en ekkert nákvæmlega hvað ég er að fara að gera :)

Nú, en aftur að Grænlandi. Í þau tvö skipti sem ég hef farið til Grænlands hefur verið sumar og því alls ekki fært að gert allt það sem mér þykir mest spennandi og langar að prófa. Nú er ég að vona að það verði ekta vetur þegar við komum með miklum snjó og kulda. Norski leiðbeinandinn minn er mikill skíðamaður og mér finnst upplagt að hann fái að sjá að ég hef hæfileika á ýmsum sviðum, ekki bara á skólphreinsisviðinu, og þess vegna ætlum við að skella okkur á gönguskíði, ég og fleiri konur hér úr deildinni. Engin okkar hefur prófað það áður svo ég sé fyrir mér að við verðum álíka rennilegar og flokkur kálfa í kraftgöllum með skíði bundin neðan á lappirnar. Fyrir utan skíðaíþróttirnar ætlum við að nýta frítímann til að fara á hundasleða ef færi gefst á því! Það er eitthvað sem mig hefur dreymt um að prófa síðan ég var unglingur og nú gefst líklega tækifæri til að láta drauminn rætast. Þetta verður endalaust skemmtilegt! Það eina óskemmtilega við þessa ferð verður fjarveran frá Önnu Dúfu, 4 nætur er ansi mikið í mínum huga en hún á nú góðan pabba litla músin svo hún verður í traustum og góðum höndum :)

Jæja, nú þarf ég að fara að vinna að þessari kynningu sem ég var að tala um. Hafið það gott... (mjög svo andlaus endir)

fimmtudagur, janúar 17, 2008

Heia Norge!

Eða réttara sagt heia Köbenhavn því ég kom heim í gærkvöldi eftir tveggja daga ferð til Noregs. Ég fór ásamt þremur vinnufélögum mínum, m.a. öðrum danska leiðbeinandanum mínum (ég er með tvo danska leiðbeinendur sem báðir vinna við deildina mína) en ferðin var farin fyrir mig og verkefnið mitt. Fórum sem sagt til að hitta þriðja leiðbeinandann minn sem er norskur prófessor við Umhverfis- og lífvísindaháskólann í Ási í Noregi; Universitetet for Miljø- og Biovitenskap i Ås i Norge fyrir ykkur sem hatið fólk sem íslenskar alla skapaða hluti (eins og ég geri...). Við lögðum af stað kl. 6 á þriðjudagsmorguninn, keyrðum þetta sem sagt og vorum komin á áfangastað rúmlega 14. Eyddum deginum í að skoða rannsóknarstofur við norska háskólann og fórum svo í mat til leiðbeinandans um kvöldið. Mjög huggulegt! Vorum hins vegar svo lúin að við fórum snemma heim og sofnuðum, eða ég hefði átt að sofna, kl. 22 en ég naut hins vegar "frelsisins" og las í jólabókinni minni Óreiða á striga til kl. 1, vitandi það að ég gat sofið án truflana alla nóttina. Þetta var einmitt fyrsta nóttin mín frá Önnu Dúfu mús og ég var búin að kvíða því svolítið en þetta reyndist mér nú bara nokkuð létt skal ég segja ykkur.
Á miðvikudagsmorgninum fórum við að skoða fleiri rannsóknarstofur og var svo boðið í hádegismat á þeirri síðustu sem við skoðuðum, ekki inni á rannsóknarstofunni þó en í matsalnum. Fengum brauð með norskum mysuosti sem bragðast nákvæmlega eins og sá íslenski, salat og jógúrt og kaffi og meira brauð og det ene og det andet. Lögðum svo af stað aftur til Köbenhavn kl. 13, komum við á sænsku hraðbrautarklósetti sem hefur fengið verðlaun fyrir að vera það snyrtilegasta sinnar tegundar í Sverige og brunuðum svo áfram og komum heim kl. 21. Mikið skelfing var ég fegin að hitta músarögnina mína (og Hjört auðvitað líka!) og hún fegin að hitta mig. Var greinilega farin að sakna þess að fá mjólkursopa hjá mömmu því hún "drakk yfir sig" og steinsofnaði með stútfulla bumbuna af mjólk og vaknaði svo upp úr miðnætti og kastaði einhver ósköp upp, litli ljúfingurinn minn! Hún fór þess vegna í miðnæturbað og við skiptum á rúminu og fórum svo að sofa. Er samt ekki laust við að ég sé bara ansi hreint sybbin orðin núna og klukkan rétt að verða sjö. Ja hérna hér. Jæja, ætli við Hjörtur förum ekki að koma okkur út í búð ásamt Önnu Dúfu og fáum okkur kannski bara eitthvað í gogginn á Pizza Hut, það er alltaf svo ágætur staður. Uppáhalds staðurinn minn reyndar :) Fyrir utan McDonalds... það þarf svo lítið til að gleðja Fellavillinga, farið þið með okkur á McDonalds og við setjum upp sparibrosið og vatnsgreiðum okkur og líður eins og á frönsku veitinahúsi með hvítum dúkum. Jæja, hætt þessu bulli. Takk fyrir lesturinn. Munið að kvitta og góða helgi.

föstudagur, desember 14, 2007

Ferðaárið mikla 2008



Svona verða ferðaplönin MÖGULEGA (alls ekki ákveðið ennþá) í sambandi við námið árið 2008:

janúar: 2 daga ferð til Svíþjóðar og Noregs þar sem ég mun m.a. skoða margverðlaunaðan "rasteplads", hvíldarstað á hraðbrautinni (bensínstöð og fleira) þar sem notast er við þurrklósett og óhefðbundnar aðferðir við hreinsun á skólpinu.

mars:
4-5 daga ferð til Grænlands á ráðstefnu (hvernig á ég að geta verið án AD í svo langan tíma??).

júní:
3 vikna ferð til Noregs vegna áfanga um óhefðbundnar hreinsunaraðferðir á skólpi. Ætla að kanna möguleikana á því að leigja sumarhús fyrir okkur H og AD og nýta þar með ferðina til smá sumarleyfis.

júlí-ágúst:
4-5 vikna ferð á Svalbarða (!!!) vegna áfanga um heimskauta-örverufræði. Er að kanna möguleikana á því að taka AD með og setja hana á vöggustofu í Longyearbyen (ljósmyndin hér að neðan er af húsum í bænum). H myndi líka koma með og vinna að sínu verkefni. Thank god for the Internet! Hérna væri líka möguleiki fyrir okkur familíuna að upplifa ýmislegt nýtt og framandi, alla vega um helgar; fara á hundasleða og sjá ísbirni (mmm, ég sé mig í anda með AD á handleggnum!).

Já, þetta er spennandi krakkar mínir. En eins og ég segi, þetta er ekki ákveðið ennþá en líklega mun ég fara í alla vega hluta af þessum ferðum. Meira um það síðar...
...góða helgi öll sömul og gleðilegan 3. sunnudag í aðventu (rétt rúm vika í jólin, pælið í því!)

miðvikudagur, desember 12, 2007

Hvernig finnst ykkur nýja lúkkið?


Úff, ég hef allt of mikinn tíma í þessu doktorsnámi sem sést á hinum tíðu færslum á vinnutíma. Nú er ég búin að eyða ca. 10 mínútum í að breyta útlitinu á síðunni. Er þetta ekki bara dálítið næs? Jæja, farin að vinna (hafið þið tekið eftir því að lang flestar færslur hjá mér enda á þessari yfirlýsingu?).


miðvikudagur, desember 05, 2007

Aðventan í Köben

Þetta hefur verið alveg fínasta aðventa, það sem af er liðið af henni að minnsta kosti. Þórelfur mamma hans Hjartar kom til okkar í heimsókn á þriðjudaginn í síðustu viku og fór heim í gær. Hún er held ég búin til úr gulli hún Þórelfur, hún er svo góð. Það er sko ekki til í mér eitthvað svona "oooh, tengdó, leiðindi...", það er ekki hægt með svona eðalmanneskju. Hún er bæði góð og skemmtileg, gjafmild og greind. Það var þess vegna frekar tregafullt að kveðja hana í gær en ég passaði mig bara á því að einbeita mér að því að hugsa um það hversu gaman það væri búið að vera hjá okkur. Þá varð þetta hreint ekkert svo tregafull kveðjustund, þótt ég hefði alveg viljað hafa hana hjá okkur áfram að prjóna lopapeysur á restina af familíunni (Anna Dúfa fékk eitt stykki, sjá myndir á ofangreindum hlekk) og kjafta við okkur og segja okkur sögur úr uppvextinum með systkinum sínum níu og foreldrum. Mmmmm, huggulegt.
Jæja, annars er orðið ansi jólalegt hjá okkur, ég er búin að skreyta dálítið; hengja upp seríu í stofuna og tvo glerkransa sem Þórelfur bjó til handa mér og svo lét ég búa til eitt piparkökuhjarta með nafninu hennar Önnu Dúfu sem ég hengdi upp. Það er meira að segja ennþá kökuilmur af því. Vonandi að það breytist ekki í e-a verri lykt þegar líða tekur á aðventuna.
Svo er ég búin að kaupa allar jólagjafir sem áttu að fara til Íslands, afgreiddi það allt á laugardaginn var. Ég fór með gullkonunni ofangreindu og verslaði milljón gjafir á 2 tímum og svo var öllu pakkað inn þegar færi gafst á kvöldin. Nú á ég bara eftir að kaupa handa Hirti og mömmu og pabba en er búin að ákveða hvað þau eiga að fá. Og jú, líka handa tengdaforeldrum mínum en ég er líka búin að ákveða hvað þau eiga að fá. Ég skrifa alltaf "ég er búin að ákveða", en Hjörtur fær alveg að vera með í ráðum. Svolítið alla vega.

Nú er ég hins vegar orðin svo þreytt að ég er að leka út af. Byrjaði í náminu á mánudaginn og þar með komin í 100% stöðu sem þýðir vinna frá 9-17. Úff.. Hjörtur vinnur frá 7-15 til að sækja snótina dálítið snemma en ég mun skila henni á morgnana. Ætlum að sjá hvernig þetta kemur út núna í desember alla vega.

Hafið það gott og njótið aðventunnar. Ekkert stress, verið þið hress...
Jólakveðjur frá Hemma Gunn aka Ragnhildur Gunn