
Svona verða ferðaplönin MÖGULEGA (alls ekki ákveðið ennþá) í sambandi við námið árið 2008:
janúar: 2 daga ferð til Svíþjóðar og Noregs þar sem ég mun m.a. skoða margverðlaunaðan "rasteplads", hvíldarstað á hraðbrautinni (bensínstöð og fleira) þar sem notast er við þurrklósett og óhefðbundnar aðferðir við hreinsun á skólpinu.
janúar: 2 daga ferð til Svíþjóðar og Noregs þar sem ég mun m.a. skoða margverðlaunaðan "rasteplads", hvíldarstað á hraðbrautinni (bensínstöð og fleira) þar sem notast er við þurrklósett og óhefðbundnar aðferðir við hreinsun á skólpinu.
mars: 4-5 daga ferð til Grænlands á ráðstefnu (hvernig á ég að geta verið án AD í svo langan tíma??).
júní: 3 vikna ferð til Noregs vegna áfanga um óhefðbundnar hreinsunaraðferðir á skólpi. Ætla að kanna möguleikana á því að leigja sumarhús fyrir okkur H og AD og nýta þar með ferðina til smá sumarleyfis.
júlí-ágúst: 4-5 vikna ferð á Svalbarða (!!!) vegna áfanga um heimskauta-örverufræði. Er að kanna möguleikana á því að taka AD með og setja hana á vöggustofu í Longyearbyen (ljósmyndin hér að neðan er af húsum í bænum). H myndi líka koma með og vinna að sínu verkefni. Thank god for the Internet! Hérna væri líka möguleiki fyrir okkur familíuna að upplifa ýmislegt nýtt og framandi, alla vega um helgar; fara á hundasleða og sjá ísbirni (mmm, ég sé mig í anda með AD á handleggnum!).
Já, þetta er spennandi krakkar mínir. En eins og ég segi, þetta er ekki ákveðið ennþá en líklega mun ég fara í alla vega hluta af þessum ferðum. Meira um það síðar......góða helgi öll sömul og gleðilegan 3. sunnudag í aðventu (rétt rúm vika í jólin, pælið í því!)

|