Sýnir færslur með efnisorðinu Hjörtur. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Hjörtur. Sýna allar færslur

þriðjudagur, september 02, 2008

Halló! Halló, er e-r heima?!

Það er líklega ekki það allra sniðugasta að leyfa 19 mánaða dóttur sinni að leika sér með gsm síma foreldra sinna; alla vega hefur minn eitthvað skaddast í höndunum-eða munninum-á skottinu því hann er hættur að virka. Þegar ég hringi í fólk þá heyri ég í viðkomandi þegar hann svarar en fólk heyrir ekkert í mér-mjög draugalegt! Ég er samt svo mikill lúði með svona hluti að mér var eiginlega slétt sama og sendi bara sms í staðinn. Hjörtur er ögn skynsamari því það er auðvitað hreint ekkert sneddí að vera á síðustu vikum meðgöngunnar með bilaðan síma. Hann pantaði þess vegna handa mér nýjan síma áðan, ansi stelpulegan og sætan. Hér er hann litla krúttið, síminn sem sagt, ekki Hjörtur...

fimmtudagur, desember 20, 2007

Og það er fjör, og það er fjör...

Jebb, það verður aldeilis stuð á umhverfisverkfræðingnum þessi jólin-fór í gær og lét klippa mig og er mjög ánægð með hair-dúið en eitthvað var það samt við nýja útlitið sem minnti mig á einhvern sem ég gat ekki komið fyrir mig. Svo gerðist það allt í einu í gærkvöldi þegar ég var að labba fram hjá spegli sem er í stofunni hjá okkur, að ég heyrði og sá fyrir mér... Eirík Fjalar með gítarinn og tennurnar að syngja "...og það er fjör, og það er fjör...". Ergó, ég er eins og Eiríkur Fjalar! Og af því að ég sá hann fyrir mér í þessar 2 sek sem ég horfði á spegilmynd mína þá var ég alveg miður mín þangað til ég fór að sofa og margspurði Hjört hvort ég væri orðin ALVEG EINS og Eiríkur Fjalar, hvort ég minnti hann ekki svolítið á hann? Hjörtur horfði bara á mig uppgefinn á svip og hristi höfuðið og fór að sofa, en eftir stóð ég við spegilinn og horfði ráðvillt á sjálfa mig og alltaf sönglaði í höfðinu á mér "...og það er fjör, og það er fjör, og það er fjör að vera umhverfisverkfræðingur!"

föstudagur, desember 14, 2007

Ferðaárið mikla 2008



Svona verða ferðaplönin MÖGULEGA (alls ekki ákveðið ennþá) í sambandi við námið árið 2008:

janúar: 2 daga ferð til Svíþjóðar og Noregs þar sem ég mun m.a. skoða margverðlaunaðan "rasteplads", hvíldarstað á hraðbrautinni (bensínstöð og fleira) þar sem notast er við þurrklósett og óhefðbundnar aðferðir við hreinsun á skólpinu.

mars:
4-5 daga ferð til Grænlands á ráðstefnu (hvernig á ég að geta verið án AD í svo langan tíma??).

júní:
3 vikna ferð til Noregs vegna áfanga um óhefðbundnar hreinsunaraðferðir á skólpi. Ætla að kanna möguleikana á því að leigja sumarhús fyrir okkur H og AD og nýta þar með ferðina til smá sumarleyfis.

júlí-ágúst:
4-5 vikna ferð á Svalbarða (!!!) vegna áfanga um heimskauta-örverufræði. Er að kanna möguleikana á því að taka AD með og setja hana á vöggustofu í Longyearbyen (ljósmyndin hér að neðan er af húsum í bænum). H myndi líka koma með og vinna að sínu verkefni. Thank god for the Internet! Hérna væri líka möguleiki fyrir okkur familíuna að upplifa ýmislegt nýtt og framandi, alla vega um helgar; fara á hundasleða og sjá ísbirni (mmm, ég sé mig í anda með AD á handleggnum!).

Já, þetta er spennandi krakkar mínir. En eins og ég segi, þetta er ekki ákveðið ennþá en líklega mun ég fara í alla vega hluta af þessum ferðum. Meira um það síðar...
...góða helgi öll sömul og gleðilegan 3. sunnudag í aðventu (rétt rúm vika í jólin, pælið í því!)

þriðjudagur, desember 11, 2007

Hún hefur stækkað svolítið...


...litla pabbamúsin. Á þessari mynd var hún 2 mánaða og 2 daga gömul. Á föstudaginn næsta verður hún 11 mánaða, næstum því eins árs! Það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt og þetta ár hefur liðið EINSTAKLEGA hratt. Það er kannski af því að þetta hefur hreinlega verið skemmtilegasta og besta ár lífs míns, svei mér þá.

Annars er allt gott að frétta af okkur; Anna Dúfa fékk hlaupabóluna um daginn og í ofanálag fékk hún eyrnabólgu í hæ. eyra litla greyið. Hún er því búin að vera á pensilíni í 5 daga og svo fær hún panódílstíla við verkjunum :( En nú er þetta allt að koma og músin er hin kátasta, fór á vöggustofuna í gær og í dag og var víst mjög lukkuleg að komast aftur á meðal barnanna enda búin að vera heima hjá gamla settinu í 10 daga! Úff, þvílík leiðindi! Reyndar var amma Þó hjá okkur fyrstu 4 dagana í veikindunum og það var sko ekki leiðinlegt enda er hennar sárt saknað, ömmunnar með prjónanna :)

Svo fórum við til tannlæknis í morgun í fyrstu tannskoðun Önnu Dúfu við mæðgurnar. Við fengum m.a. barnatannkrem, ég hef aldrei notað svoleiðis því mér finnst það svo sætt en ég fékk útskýringu á því af hverju það er haft svona sætt. Ástæðan er sem sagt sú að það á að vera mjög greinilegur munur á bragðinu á fullorðins- og barnatannkremi svo börnin ruglist ekki á tannkremstúpum. Það kemur nefnilega fyrir að börn borða heilu túpurnar af tannkremi og þau geta orðið þrællasin í maganum af fullorðins tannkreminu vegna þess að flúorinnihaldið er hærra en í barnatannkremi. Þeim verður þess vegna ekki meint af því að borða barnatannkremið, alla vega ekki eins mikið :)
Svo mælti hún með því að ég keypti Zendium tannkrem því það innihéldi ekki súlfat (Natrium Lauryl Sulfate) sem oft er sett í tannkrem til að fá það til að freyða. Það er meðal annars notað í Colgate tannkrem. Vandamálið er að mörg börn eru víst með ofnæmi fyrir súlfati, svo það er betra að kaupa Zendium. Ég mun gera það hér eftir held ég. Og svo ég haldi nú upplýsingaflæðinu áfram þá mælti hún EKKI með því að maður keypti jurtatannkrem eða einhver svona heilsu/lífrænt "ræktuð" tannkrem því þau innihéldu ekki flúor en það eiga tannkrem að gera.

Ollræt hvað þetta er orðin leiðinleg færsla! Kræst!!! Þið sem nenntuð að lesa alla þessa færslu munið deffenettlí fá jólakort í póstkassann á næstu dögum!
Farin að vinna,
Ragnhildur tannálfur