Jæja, ég ætla að fara að horfa á e-a bíómynd þar sem Mike Myers leikur kolrangeygðan starfsmann hjá flugfélagi, allt of vel girtur og sinnir því starfi að þjálfa nýjar flugfreyjur í starfi. Frekar sjúklegur karakter sýnist mér.
Góða helgarrest!
Langar bara að benda ykkur á litla barnið sem liggur hérna til vinstri á síðunni. Þar segir sem sagt "0 weeks and 0 days to go". Ótrúlegt hvað þetta hefur liðið hratt. Nú er bara að sjá hvort drengurinn verði jafn stundvís og systir hans sem fæddist á settum degi. Ég man að ég vakti til kl. 2 nóttina áður en ég átti Önnu Dúfu, þá sat ég reyndar og skrifaði í lokaverkefninu mínu en núna sit ég og sinni mjög svo óprófessjónal verkefni; sit og er að hlusta á Queen í bland við Ragnhildi Gísladóttur syngja "Eitt lítið jólalag" í riiiiisastórum heddfónum! Mér finnst einhvern veginn mjög svo viðeigandi að vaka til 2 þessa nótt fyrir settan dag. Maður veit aldrei nema það hafi verið vakan sem gerði gæfumuninn 14. janúar 2007! Hvað veit maður?!Þetta er svona það sem ég man eftir. Mikið af tímanum hef ég nú bara eytt í tölvugláp en því miður ekki nógu mikið í svefn og hvíld. Ég lofa sjálfri mér því t.d. á hverjum morgni þegar ég skreiðist fram úr með Önnu Dúfu upp úr klukkan 7 að ég muni fara snemma að sofa að kvöldi þess tiltekna dags. Það gerist því miður mjög sjaldan, ég veit ekki hvaða hangs er á mér öll kvöld. Það kannast víst margir við þetta, ekki satt?
Annars er allt gott að frétta af mér svona heilsufarslega séð. Ég var að vonast til að allt færi af stað eftir gærdaginn en þá fór ég í bæinn með Völu og gekk allt Strikið, fór í búðir og mátaði skó, borðaði heavy kryddaðan börger á BurgerKing en það virðist ekki hafa virkað. Ég er samt alltaf að fá einhverja litla verki en samt ekkert "alvöru". Ég er farin að bíða mjöööög spennt eftir því mómenti sem ég fæ fyrstu hríðina, get hreinlega ekki beðið! Við erum búin að ordna öllu með pössun fyrir AD og það er almennt allt tilbúið fyrir komu litla snúðsins; rúmið hans er tilbúið og vagninn sömuleiðis, búið að sjóða fyrir hann pínuaggalitlar snuddur, pakka heimferðarfötum fyrir hann niður í tösku (og sömuleiðis á mömmuna). Nú tekur þess vegna bara biðin við...
Læt að lokum fylgja með bumbumynd vikunnar sem sýnir hversu praktísk bumban er orðin; ég get notað hana sem hillu undir músina! Þetta er samt vonandi ein af síðustu bumbumyndunum. Góða helgi öll sömul.
Fjórar bækur sem ég hef lesið oft
Ég ætla að breyta þessu í "Fjórar bækur sem ég hef lesið oftar en einu sinni", ég man ekki eftir neinni bók sem ég hef lesið OFTOFTOFT, nema ef vera skyldi e-r barnabækur þegar maður var á Önnu Dúfu aldri en þeim er ég löngu búin að gleyma...
Svo ætla ég að klukka Helgu frænku, Birnu, Helenu og Öbbu.
Vil líka benda á að það eru tvær nýjar færslur hérna fyrir neðan...

Bumbumynd vikunnar var tekin á Østerbro þegar ég var gengin 31 viku og 3 daga með. Værsgo'