miðvikudagur, september 03, 2008

Klukkeddíklukk

Ég var klukkuð af Arngunni vinkonu og sambumbu, og hér eru svörin mín:

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina
  • Aðhlynning og skúringar á Hrafnistu
  • Svaraði í símann hjá LÍN tvö sumur
  • Aðhlynning þroskaheftra og fatlaðra á m.a. Bjarkarási og á sambýli á Álftanesi
  • Doktorsnemi við DTU, sem er jú launað starf :)

Fjórir staðir sem ég hef búið á
  • Fellahverfið
  • Norður Karólína í USA
  • Álaborg
  • Kaupmannahöfn
Fjórar bíómyndir sem ég held upp á
  • Deer Hunter
  • Thelma & Louise
  • Sound of Music
  • Með allt á hreinu

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar
  • Desperate Housewives
  • Forbrydelsen, besta krimmasería sem ég hef séð, 20 þættir
  • Prison Break (1. og 2. serían, hef ekki fylgst með því nýjasta)
  • American Idol (flokkast það ekki undir þætti?)

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum
  • Munaðarnes
  • Mallorca
  • Portúgal
  • London

Fjórar síður sem ég skoða daglega, fyrir utan blogg
  • Draumabörn
  • Trendsales
  • Hotmail (ekki hotmale)
  • RÚV

Fernt sem ég held upp á matarkyns
Guð, þetta verður nú erfitt fyrir mig, ég er svo agalega lítið fyrir mat-ég er svona týpan sem borða til að lifa en ekki öfugt... NOT!
  • Góðar súkkulaðikökur með þykku kremi
  • Gul kiwi
  • Gráðostur
  • Fiskibollur með sítrónusósu og rifnum gulrótum

Fjórar bækur sem ég hef lesið oft
Ég ætla að breyta þessu í "Fjórar bækur sem ég hef lesið oftar en einu sinni", ég man ekki eftir neinni bók sem ég hef lesið OFTOFTOFT, nema ef vera skyldi e-r barnabækur þegar maður var á Önnu Dúfu aldri en þeim er ég löngu búin að gleyma...

  • Íslandsklukkan
  • Dagbók Bridget Jones
  • Bækurnar eftir Arnald Indriðason
  • Sjálfstætt fólk

Svo ætla ég að klukka Helgu frænku, Birnu, Helenu og Öbbu.

Vil líka benda á að það eru tvær nýjar færslur hérna fyrir neðan...