Ég var klukkuð af Arngunni vinkonu og sambumbu, og hér eru svörin mín:
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina
- Aðhlynning og skúringar á Hrafnistu
- Svaraði í símann hjá LÍN tvö sumur
- Aðhlynning þroskaheftra og fatlaðra á m.a. Bjarkarási og á sambýli á Álftanesi
- Doktorsnemi við DTU, sem er jú launað starf :)
Fjórir staðir sem ég hef búið á
- Fellahverfið
- Norður Karólína í USA
- Álaborg
- Kaupmannahöfn
Fjórar bíómyndir sem ég held upp á
- Deer Hunter
- Thelma & Louise
- Sound of Music
- Með allt á hreinu
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar
- Desperate Housewives
- Forbrydelsen, besta krimmasería sem ég hef séð, 20 þættir
- Prison Break (1. og 2. serían, hef ekki fylgst með því nýjasta)
- American Idol (flokkast það ekki undir þætti?)
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum
- Munaðarnes
- Mallorca
- Portúgal
- London
Fjórar síður sem ég skoða daglega, fyrir utan blogg
- Draumabörn
- Trendsales
- Hotmail (ekki hotmale)
- RÚV
Fernt sem ég held upp á matarkyns
Guð, þetta verður nú erfitt fyrir mig, ég er svo agalega lítið fyrir mat-ég er svona týpan sem borða til að lifa en ekki öfugt... NOT!
- Góðar súkkulaðikökur með þykku kremi
- Gul kiwi
- Gráðostur
- Fiskibollur með sítrónusósu og rifnum gulrótum
Fjórar bækur sem ég hef lesið oft
Ég ætla að breyta þessu í "Fjórar bækur sem ég hef lesið oftar en einu sinni", ég man ekki eftir neinni bók sem ég hef lesið OFTOFTOFT, nema ef vera skyldi e-r barnabækur þegar maður var á Önnu Dúfu aldri en þeim er ég löngu búin að gleyma...
- Íslandsklukkan
- Dagbók Bridget Jones
- Bækurnar eftir Arnald Indriðason
- Sjálfstætt fólk
Svo ætla ég að klukka Helgu frænku, Birnu, Helenu og Öbbu.
Vil líka benda á að það eru tvær nýjar færslur hérna fyrir neðan...

