Sýnir færslur með efnisorðinu Brynhildur. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Brynhildur. Sýna allar færslur

laugardagur, apríl 05, 2008

Vandamál vikunnar...

...leystust farsællega. Ég lét klippa mig og þótt ég sé enn að venjast "stutta" hárinu þá er ég bara nokkuð ánægð. Svo fór ég í gær og pantaði... KÚLUgleraugun :) Hlakka mikið til að fá þau á nefið eftir ca. viku. Talandi um atburði komandi viku þá er von á góðum gestum á fimmtudaginn, Arngunnur og Brynhildur mínar ástkæru vinkonur koma í heimsókn og Brynhildur verður að þessu sinni Æsulaus. Síðast þegar þær systur komu í heimsókn, í nóvember (er það ekki rétt munað hjá mér?) þá kom Æsa Sigurbjörg með en nú er hún orðin svo stór að hún verður heima hjá pabba sínum sem ætlar að fóðra hana á suðusúkkulaði og sykurdjúsi á meðan mamma hennar er í úgglöndum ;) Ég hef þetta beint frá pabba stúlkunnar (sem var reyndar að grínast).

Af okkur er annars allt gott að frétta. Anna Dúfa fór að ganga í vikunni og vá hvað hún er dugleg! Hún er svo stöðug á litlu löppunum og dettur nánast aldrei. Ég var líka búin að segja það við Hjört að hún var löngu tilbúin til að fara að ganga svona líkamlega séð, ég sá að á henni þegar hún sleppti húsgögnunum og tók nokkur skref í "lausu lofti". Hún er hins vegar mjög varkár í eðli sínu (á ekki langt að sækja það, foreldrarnir ekki beint mestu wildcats í heimi!) svo hún fór sér hægt í þetta en svo var hún líka farin að ganga eins og stálpuð stúlka allt í einu. Nú gengur hún um allt og þvílíkt frelsi fyrir hana! Hún er svo montin og ánægð og hlær og skríkir í hverju skrefi. Það erfiða er hins vegar að fá hana til að vera í kerrunni sinni eða í fanginu á manni þegar maður fer með hana eitthvert út því nú vill hún einungis ganga. Við fórum t.d. út að versla í gær og eftir að hafa haldið henni rólegri alla búðarferðina með vínberjum og jarðarberjum sem ég hafði náð í, frekar frústreruð, í ávaxtadeildinni, þá var Göngu-Hrólfur (eða Reynir Pétur, eins og pabbi hennar kallaði hana um daginn) búin að fá nóg af þessari smábarnalegu kerru og vildi ganga. Ég tók hana þess vegna upp úr og ætlaði að leiða hana um verslunarmiðstöðina en nei takk, hún vildi ganga sjálf og þá fann ég "nýjan" og áður óþekktan ótta læðast að mér-hvað ef ég missti sjónar af henni í bara nokkrar sekúndur og einhver stæli henni eða hún týndist?! Svona er það að eiga barn; maður er stanslaust með lífið í lúkunum. Þegar hún var nýfædd þá var ég lengi vel hrædd um að hún andaði ekki ef hún lá sofandi í rúminu sínu (og believe me, ég er ekki eina móðirin sem hefur upplifað þetta, þetta virðist vera afar útbreitt meðal nýbakaðra foreldra) og þegar hún fór að eldast og átti að byrja á vöggustofunni þá gat ég tárast bara við tilhugsunina um að nú gæti ég ekki lengur haft auga með henni allan daginn heldur þyrfti að treysta öðru fólki fyrir henni helminginn af deginum. Nú þegar hún er farin að ganga og hefur öðlast meira frelsi verð ég enn hræddari! Ég talaði einu sinni um þetta við mömmu, þennan stanslausa ótta sem býr innra með manni og hvort þetta yrði skárra því eldri sem börnin yrðu. Hennar svar var að hún væri enn jafn "hrædd" um okkur systkinin og við erum á bilinu 29 til 47 ára! Ef við yrðum veik eða værum einhvers staðar á ferðalagi þá væri henni aldrei alveg sama, sérstaklega ef við værum ein. Já, það er skrýtið að vera foreldri, maður elskar þessa litlu rassálfa frá því augnabliki sem maður sér þá, gjörsamlega skilyrðislaust og mun alltaf gera og maður breytist í raun og veru í lamað tilfinningabúnt daginn sem maður eignast þau. Það gerði ég alla vega. En um leið er þetta líka það besta og mesta undur sem ég hef upplifað og líf mitt hefur aldrei verið viðburðarríkara en eftir að ég varð mamma. Það gerist einfaldlega eitthvað nýtt á hverjum degi! Betra en að fara í sirkus kvöld eftir kvöld... hver yrði nú ekki leiður á því eftir ca. þrjú kvöld?

Jæja, áður en ég verð of tilfinningarík á þessum laugardagsmorgni fyrir klukkan níu þá ætla ég að skella mér í eitthvað praktískt eins og að setja krúsönt í ofninn og laga kaffi latte og ferskan ávaxtasafa fyrir familíuna. Ég átti nefnilega morgunvakina frá því að lukkutröllið vaknaði kl. 6.40 en eftir morgunmatinn tekur rafmagnsverkfræðingurinn við og ég fæ að leggja mig með blöðin í nýja rúminu okkar. Mmmmm!
Góða helgi öll sömul!
Ragnhildur með taugaendana eins og slör á eftir mér...

mánudagur, nóvember 19, 2007

Yndisleg helgi að baki


Arngunnur og Brynhildur og Æsa Sigurbjörg komu í heimsókn um helgina; komu á fimmtudagskvöldið og ég tók á móti þeim á Kastrup og hafði meira að segja keyrt sjálf í fyrsta skipti út á völl! Ég hélt að þetta væri svo flókið því ég er svo mikill rati í að rata (hahaha) svo ég hafði aldrei lagt í þetta. En þetta reyndist lítið mál og ég stóð vazzgreidd og beið eftir þeim þegar þær komu með Æsu í magapokanum. Dásamlegt. Við byrjuðum á því að setjast niður á Starbucks og fá okkur kaffi og kjafta saman og svo keyrðum við heim í Ragnhildarkot. Á föstudeginum var lokað á vöggustofunni svo Anna Dúfa var bara heima hjá systrunum og Æsu og var hin kátasta. Hún tók miklu ástfóstri við þær systurnar, að þeirra sögn sérstaklega við Arngunni, kallaði hana meira að segja mömmu :) Nú, svo fórum við með ungana okkar smáu niður í Lyngby eftir vinnu og fórum á kaffihús þar sem við fengum lýgilega góða afgreiðslu, segi frá því bara seinna. Svo versluðu stelpurnar slatta af jólagjöfum og Brynhildur keypti góðan bunka af fötum á yndismúsina Æsu. Svo komum við heim þar sem Hjörtur beið okkar með kálfasteik og ofnbakað rótargrænmeti (kartöflur sem sagt og gulrætur).
Á laugardeginum fórum við í göngutúr um sumarhúsahverfi sem er við hlið kollegísins okkar, og svo fórum við aftur niður í Lyngby til að versla pínu meira eftir hádegið ;) Um kvöldið elduðum við svínakótelettur og höfðum það kósý og kjöftuðum frá okkur allt vit. Í gær fórum við svo í túristabíltúr og á kaffihús niðri í bæ. Fengum svo pizzur í kvöldmatinn, aðra svakalega góða en hina miður góða :(

Keyrði svo stelpurnar á völlinn í morgun og kvaddi þær alveg án tára. Ég er nefnilega orðin ansi góð í því að hugsa stíft um allar góðu stundirnar og hugsa um það hvað það verði t.d. gaman fyrir Arngunni að koma heim og hitta börnin sín, í stað þess að hugsa "oooh, ég vildi að við gætum verið saman ALLTAF" eða "æ ég vildi að þær gætu verið einn dag í viðbót..." Það þýðir ekkert og gerir mann bara dapran. Þá er nú betra að vera glaður í sinni og rifja upp hversu skemmtileg helgin var og hvað það er dásamlegt að eiga svona yndislegar vinkonur sem manni þykir svona vænt um. Takk fyrir mig stelpur mínar og verið ÆTÍÐ velkomnar til okkar aftur hvenær sem þið viljið!

Að lokum... myndin hérna efst af okkur systkinunum og mömmu var tekin á 65 ára afmælinu hennar mömmu þegar ég og Anna Dúfa komum til landsins í október. Ég á nefnilega ekki bara góðar vinkonur á Íslandi heldur líka stóra og góða fjölskyldu, svo það er um að gera að rumpa þessu námi af og flytja aftur heim, líklegast eftir 3 ár í allra síðasta lagi! Guð hvað ég hlakka til! Takk fyrir þessa fallegu mynd Helga mín :)