Sýnir færslur með efnisorðinu Æsa Sigurbjörg. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Æsa Sigurbjörg. Sýna allar færslur

mánudagur, nóvember 19, 2007

Yndisleg helgi að baki


Arngunnur og Brynhildur og Æsa Sigurbjörg komu í heimsókn um helgina; komu á fimmtudagskvöldið og ég tók á móti þeim á Kastrup og hafði meira að segja keyrt sjálf í fyrsta skipti út á völl! Ég hélt að þetta væri svo flókið því ég er svo mikill rati í að rata (hahaha) svo ég hafði aldrei lagt í þetta. En þetta reyndist lítið mál og ég stóð vazzgreidd og beið eftir þeim þegar þær komu með Æsu í magapokanum. Dásamlegt. Við byrjuðum á því að setjast niður á Starbucks og fá okkur kaffi og kjafta saman og svo keyrðum við heim í Ragnhildarkot. Á föstudeginum var lokað á vöggustofunni svo Anna Dúfa var bara heima hjá systrunum og Æsu og var hin kátasta. Hún tók miklu ástfóstri við þær systurnar, að þeirra sögn sérstaklega við Arngunni, kallaði hana meira að segja mömmu :) Nú, svo fórum við með ungana okkar smáu niður í Lyngby eftir vinnu og fórum á kaffihús þar sem við fengum lýgilega góða afgreiðslu, segi frá því bara seinna. Svo versluðu stelpurnar slatta af jólagjöfum og Brynhildur keypti góðan bunka af fötum á yndismúsina Æsu. Svo komum við heim þar sem Hjörtur beið okkar með kálfasteik og ofnbakað rótargrænmeti (kartöflur sem sagt og gulrætur).
Á laugardeginum fórum við í göngutúr um sumarhúsahverfi sem er við hlið kollegísins okkar, og svo fórum við aftur niður í Lyngby til að versla pínu meira eftir hádegið ;) Um kvöldið elduðum við svínakótelettur og höfðum það kósý og kjöftuðum frá okkur allt vit. Í gær fórum við svo í túristabíltúr og á kaffihús niðri í bæ. Fengum svo pizzur í kvöldmatinn, aðra svakalega góða en hina miður góða :(

Keyrði svo stelpurnar á völlinn í morgun og kvaddi þær alveg án tára. Ég er nefnilega orðin ansi góð í því að hugsa stíft um allar góðu stundirnar og hugsa um það hvað það verði t.d. gaman fyrir Arngunni að koma heim og hitta börnin sín, í stað þess að hugsa "oooh, ég vildi að við gætum verið saman ALLTAF" eða "æ ég vildi að þær gætu verið einn dag í viðbót..." Það þýðir ekkert og gerir mann bara dapran. Þá er nú betra að vera glaður í sinni og rifja upp hversu skemmtileg helgin var og hvað það er dásamlegt að eiga svona yndislegar vinkonur sem manni þykir svona vænt um. Takk fyrir mig stelpur mínar og verið ÆTÍÐ velkomnar til okkar aftur hvenær sem þið viljið!

Að lokum... myndin hérna efst af okkur systkinunum og mömmu var tekin á 65 ára afmælinu hennar mömmu þegar ég og Anna Dúfa komum til landsins í október. Ég á nefnilega ekki bara góðar vinkonur á Íslandi heldur líka stóra og góða fjölskyldu, svo það er um að gera að rumpa þessu námi af og flytja aftur heim, líklegast eftir 3 ár í allra síðasta lagi! Guð hvað ég hlakka til! Takk fyrir þessa fallegu mynd Helga mín :)