mánudagur, september 08, 2008

Gaviscon...

...er undrameðalið sem bjargar mér trekk í trekk þessa dagana. Undrameðal þetta myndar froðu sem leggst ofan á magaopið svo magasýrur nái ekki að laumast upp í hálsinn á viðkomandi... viðkomandi being me. Nú er drengurinn farinn að þrýsta svo á magann á mér og almennt öll líffæri að ég á orðið erfitt með að, tja nánast allt; sofa, borða, anda, you name it! Líklega verður þetta þó skárra þegar hann fer að síga svolítið og er búinn að skorða sig almennilega niðri í grindinni. Eins og er líður mér minnst x1 á dag eins og ég sé að springa! Annað hvort er ég með þrefalt lag af legvatni eða þá að drengurinn er töluvert stærri en systir hans. Nema líffærin í mér séu bara hreinlega að taka vaxtarkipp og þess vegna sé almennt orðið frekar plásslítið innan í mér? Þykir þetta síðastnefnda þó afar ólíklegt.

Annars var helgin góð, við hvíldum okkur og höfðum það gott og gerðum mest lítið. Jú, við fórum á kaffihús og McDonalds og kíktum líka í Ikea. Ég hafði komið auga á ansi sætan sófa í nýjasta Ikea bæklingnum og við ætluðum að skoða hann aðeins nánar en hann var svo skelfilega ljótur greyið að við nenntum ekki einu sinni að setjast í hann til að prófa hann. Er helst farin að hallast að því að kaupa stóran og feitan sófa með dumbrauðu riffluðu flauelisáklæði. Verst að eiginmanninum líst svona heldur illa á þá hugmynd. Sjáum til hvort sölumaður dauðans nær ekki að fá hann til að skipta um skoðun á næsta mánuði eða svo...

Er annars í vinnunni, var að koma af tónleikum hjá grænlenskum kór sem var hreint út sagt lovely! Þau voru 16 en hljómuðu eins og 50 manna kór, og ekki skemmir hvað grænlenska er heillandi mál. Ég sat bara alveg tárvot og svei mér þá ef drengurinn fékk ekki hikstakast á miðjum tónleikum. Hann hefur verið svona snortinn litli snúðurinn.

Jæja, best að enda á hinni týpísku setningu sem ég get bara sagt næstu 4 vikurnar: Farin að vinna!