Sýnir færslur með efnisorðinu Grænland. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Grænland. Sýna allar færslur

mánudagur, september 08, 2008

Gaviscon...

...er undrameðalið sem bjargar mér trekk í trekk þessa dagana. Undrameðal þetta myndar froðu sem leggst ofan á magaopið svo magasýrur nái ekki að laumast upp í hálsinn á viðkomandi... viðkomandi being me. Nú er drengurinn farinn að þrýsta svo á magann á mér og almennt öll líffæri að ég á orðið erfitt með að, tja nánast allt; sofa, borða, anda, you name it! Líklega verður þetta þó skárra þegar hann fer að síga svolítið og er búinn að skorða sig almennilega niðri í grindinni. Eins og er líður mér minnst x1 á dag eins og ég sé að springa! Annað hvort er ég með þrefalt lag af legvatni eða þá að drengurinn er töluvert stærri en systir hans. Nema líffærin í mér séu bara hreinlega að taka vaxtarkipp og þess vegna sé almennt orðið frekar plásslítið innan í mér? Þykir þetta síðastnefnda þó afar ólíklegt.

Annars var helgin góð, við hvíldum okkur og höfðum það gott og gerðum mest lítið. Jú, við fórum á kaffihús og McDonalds og kíktum líka í Ikea. Ég hafði komið auga á ansi sætan sófa í nýjasta Ikea bæklingnum og við ætluðum að skoða hann aðeins nánar en hann var svo skelfilega ljótur greyið að við nenntum ekki einu sinni að setjast í hann til að prófa hann. Er helst farin að hallast að því að kaupa stóran og feitan sófa með dumbrauðu riffluðu flauelisáklæði. Verst að eiginmanninum líst svona heldur illa á þá hugmynd. Sjáum til hvort sölumaður dauðans nær ekki að fá hann til að skipta um skoðun á næsta mánuði eða svo...

Er annars í vinnunni, var að koma af tónleikum hjá grænlenskum kór sem var hreint út sagt lovely! Þau voru 16 en hljómuðu eins og 50 manna kór, og ekki skemmir hvað grænlenska er heillandi mál. Ég sat bara alveg tárvot og svei mér þá ef drengurinn fékk ekki hikstakast á miðjum tónleikum. Hann hefur verið svona snortinn litli snúðurinn.

Jæja, best að enda á hinni týpísku setningu sem ég get bara sagt næstu 4 vikurnar: Farin að vinna!

miðvikudagur, febrúar 27, 2008

Oooohhh.....

...hvað ég á eftir að sakna músarinnar minnar þessa fimm daga sem ég verð burtu. Ég er löngu orðin vön því að vera aðskilin frá Hirti í margar vikur þess vegna en ég hef aldrei verið lengur frá Önnu Dúfu en eina nótt! Ég er strax farin að hlakka til að kyssa hana og faðma á mánudagskvöldið! Gúdd næt evvrívonn...

Kvenleikinn skal í hávegum hafður...

...alltaf! Líka þegar maður er á göngu í 30 stiga brunagaddi og beljandi stórhríð. Eftir að hafa farið í gegnum annars mjög veglegt jakka- og yfirhafnasafn frúarinnar í fyrradag þá uppgötvaði ég að ég á engan svona praktískan jakka úr efni sem andar. Öll mín klæði, líka jakkarnir, eru ópraktískir með bróderuðu munstri, óvatnsheldir og úr efni sem andar totally not, meira svona kafnar. Fór þess vegna í gær á útsölu í sportvöruverslun og keypti mér skíðajakka á 50% afslætti, vínrauðan með e-u bleiku munstri og haldið ykkur fast... blúndufóðri innan í hettunni! Feminin takk fyrir! Keypti mér svo bleika skíðahúfu og tvö pör af vettlingum og rosalega þykka flíspeysu, kóralrauða. Konan á kassanum sagði það líka, "Ertu ein af þeim sem forðast það að kaupa svart? Þetta er allt svo litskrúðugt!" Skemmtilegt :)
Jæja, nú er hins vegar komin eitthvað undarleg lykt í kringum litlu bleyjumúsina. Best að fara að skipta á henni og fara svo að pakka fyrir förina. Ciao öll sömul!

Grænland, hér kem ég...

Jæja, þá held ég af stað í mína þriðju ferð til Grænlands á morgun. Á að hitta vinnufélagana kl. 7.45 á Kastrup og svo er flogið kl. 9.15. Ráðstefnan byrjar á laugardaginn og ég á að vera með mína kynningu kl. 9 á sunnudagsmorguninn, sem sagt kl. 12 að íslenskum tíma og kl. 13 að dönskum tíma. Þá vitið þið öll/allar hvenær þið eigið að byrja að senda mér stáltaugastraumana svo ég standi nú ekki stamandi og hikstandi fyrir framan ráðstefnugestina. Oooh, ég fæ alveg svona nettan hnút í magann þegar ég skrifa þetta! Best að fá mér kamillute til að róa taugarnar...
Ef veðrið verður almennilegt og ég kemst á milli staða á Grænlandi þá kem ég heim á mánudagskvöldið. Ég set kannski inn fáeinar myndir úr ferðinni hérna í næstu viku. Góða helgi öll sömul og hafið það gott...

mánudagur, janúar 28, 2008

Allt við það sama í DK

Jæja, þá er þessi helgi liðin og enn ein vikan að byrja. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, ekki satt? (og tókuð þið eftir hvað þessi setning var ljóðræn hjá mér?)
Það gengur allt prýðilega hjá okkur hér í DK; barnið unir sér á vöggustofunni og er farin að borða eins og herforingi, alla vega eins og lítill herforingi. Hún er farin að prófa sig áfram með að drekka sjálf úr könnunni sinni og verður alltaf jafn hissa þegar henni tekst að koma upp í sig einum sopa! Bregður alltaf en lítur svo stolt á okkur Hjört. Af skólamálum er fátt að frétta, þannig séð, Hjörtur er að fara til Stokkhólms í næstu viku og í lok mánaðarins fer ég til Grænlands í fimm daga. Ég hlakka nú bara svolítið til, á að halda kynningu á ráðstefnu sem verður haldin í Sisimiut og þess utan ætlum við, ég og leiðbeinendurnir mínir þrír, að setjast niður og ákveða út á hvað rannsóknirnar mínar eiga að ganga næstu 3 árin. Við erum svona með nokkuð grófa mynd af því en ætlum að fastákveða það á þessum fundi. Ég þarf nefnilega að skila af mér námsáætlun í lok apríl sem svokölluð doktorsnámsnefnd hér við skólann þarf að samþykkja. Í þessari áætlun þarf maður að tilgreina út á hvað rannsóknirnar eiga að ganga, hvaða bækur maður ætli að lesa, hvaða áfanga maður ætli að taka, hvaða ráðstefnur maður ætli á, hvort maður stefni á að skrifa og fá birtar (eða að reyna að fá birtar) e-r greinar o.s.frv. Það verður voðalega gaman að geta sett þetta niður fyrir sig og sjá þetta svona betur fyrir sér. Akkúrat núna er þetta svolítið losaralegt, ég veit bara að ég verð í þessu námi í 3 ár í viðbót en ekkert nákvæmlega hvað ég er að fara að gera :)

Nú, en aftur að Grænlandi. Í þau tvö skipti sem ég hef farið til Grænlands hefur verið sumar og því alls ekki fært að gert allt það sem mér þykir mest spennandi og langar að prófa. Nú er ég að vona að það verði ekta vetur þegar við komum með miklum snjó og kulda. Norski leiðbeinandinn minn er mikill skíðamaður og mér finnst upplagt að hann fái að sjá að ég hef hæfileika á ýmsum sviðum, ekki bara á skólphreinsisviðinu, og þess vegna ætlum við að skella okkur á gönguskíði, ég og fleiri konur hér úr deildinni. Engin okkar hefur prófað það áður svo ég sé fyrir mér að við verðum álíka rennilegar og flokkur kálfa í kraftgöllum með skíði bundin neðan á lappirnar. Fyrir utan skíðaíþróttirnar ætlum við að nýta frítímann til að fara á hundasleða ef færi gefst á því! Það er eitthvað sem mig hefur dreymt um að prófa síðan ég var unglingur og nú gefst líklega tækifæri til að láta drauminn rætast. Þetta verður endalaust skemmtilegt! Það eina óskemmtilega við þessa ferð verður fjarveran frá Önnu Dúfu, 4 nætur er ansi mikið í mínum huga en hún á nú góðan pabba litla músin svo hún verður í traustum og góðum höndum :)

Jæja, nú þarf ég að fara að vinna að þessari kynningu sem ég var að tala um. Hafið það gott... (mjög svo andlaus endir)