Sýnir færslur með efnisorðinu konur. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu konur. Sýna allar færslur

miðvikudagur, febrúar 27, 2008

Kvenleikinn skal í hávegum hafður...

...alltaf! Líka þegar maður er á göngu í 30 stiga brunagaddi og beljandi stórhríð. Eftir að hafa farið í gegnum annars mjög veglegt jakka- og yfirhafnasafn frúarinnar í fyrradag þá uppgötvaði ég að ég á engan svona praktískan jakka úr efni sem andar. Öll mín klæði, líka jakkarnir, eru ópraktískir með bróderuðu munstri, óvatnsheldir og úr efni sem andar totally not, meira svona kafnar. Fór þess vegna í gær á útsölu í sportvöruverslun og keypti mér skíðajakka á 50% afslætti, vínrauðan með e-u bleiku munstri og haldið ykkur fast... blúndufóðri innan í hettunni! Feminin takk fyrir! Keypti mér svo bleika skíðahúfu og tvö pör af vettlingum og rosalega þykka flíspeysu, kóralrauða. Konan á kassanum sagði það líka, "Ertu ein af þeim sem forðast það að kaupa svart? Þetta er allt svo litskrúðugt!" Skemmtilegt :)
Jæja, nú er hins vegar komin eitthvað undarleg lykt í kringum litlu bleyjumúsina. Best að fara að skipta á henni og fara svo að pakka fyrir förina. Ciao öll sömul!

mánudagur, febrúar 25, 2008

Fínar dömur vs alvöru konur

Þekkið þið fínar dömur og alvöru konur í sundur?
Fínar dömur: Ef þú hefur ofsaltað matinn sem þú ert að elda, þá skaltu setja kartöflu í pottinn. Hún dregur saltið í sig.
Alvöru konur: Ef þú ofsaltaðir matinn er það bara assgoti pirrandi.

Fínar dömur: Það er auðvelt að lækna höfuðverk með því að skera límónu í sundur og nudda henni á ennið.
Alvöru konur: Taktu límónu og blandaðu henni við tekíla og salt og drekktu. Höfuðverkurinn hverfur sennilega ekki, en þér verður alveg sama.

Fínar dömur: Ef þú setur sykurpúða í botninn á vöffluformi, þá lekur ísinn ekki í gegnum það.
Alvöru konur: Sjúgðu bara ísinn úr vöffluforminu. Þú liggur hvort eð er örugglega með fæturna upp í loft í sófanum og borðar hann.

Fínar dömur: Þú getur komið í veg fyrir að kartöflur spíri með því að setja epli í pokann með þeim.
Alvöru konur: Kauptu pakka af kartöflumús, hann geymist í heilt ár í eldhússkápnum.

Fínar dömur: Kökur fá jafna, slétta áferð ef þú penslar þær með eggjahvítu áður en þær fara í ofninn.
Alvöru konur: Betty Crocker segir ekkert til um penslun á kökunni. Slepptu þessu bara.

Fínar dömur: Ef þú átt erfitt með að opna sultukrukku er gott að setja á sig gúmmíhanska. Þannig færðu betra grip.
Alvöru konur: Biddu myndarlega, ríka og einhleypa nágrannann um að opna krukkuna!

Fínar dömur: Ekki hella afgangs rauðvíni. Það má frysta í ísmolabakka og nota í sósur seinna.
Alvöru konur: Hvað er afgangs rauðvín?

þriðjudagur, febrúar 12, 2008

Leiðbeiningar: Að taka pening úr hraðbanka


LEIÐBEININGAR FYRIR KARLMENN
1. Aktu að hraðbankanum.
2. Skrúfaðu niður hliðarrúðuna.
3. Settu kortið í hraðbankann og sláðu inn leyninúmerið þitt.
4. Sláðu inn upphæðina sem þú vilt taka út.
5. Taktu kortið, peningana og kvittunina.
6. Skrúfaðu upp rúðuna.
7. Aktu í burtu.

LEIÐBEININGAR FYRIR KONUR
1. Aktu að hraðbankanum.
2. Bakkaðu bílnum svo að hliðarrúðan sé við hraðbankann.
3. Settu bílinn í gang aftur.
4. Skrúfaðu niður hliðarrúðuna.
5. Finndu nú veskið þitt og tæmdu úr því innihaldið í farþegasætið og finndu kortið þitt.
6. Finndu nú snyrtidótið þitt og athugaðu hvort að andlitið sé OK í baksýnisspeglinum.
7. Reyndu að setja kortið þitt í hraðbankann.
8. Opnaðu bílhurðina svo að þú náir betur.
9. Settu kortið í hraðbankann.
10. Snúðu kortinu rétt.
11. Leitaðu nú að dagatalinu þínu í veskinu hjá þér, og lestu leyninúmerið sem þú skrifaðir innan á kápuna á dagatalinu.
12. Sláðu inn leyninúmerið.
13. Ýttu á "LEIÐRÉTTA" og sláðu inn rétt leyninúmer.
14. Sláðu inn upphæðina sem þú vilt taka út.
15. Athugaðu nú aftur hvort andlitið sé OK í baksýnisspeglinum.
16. Taktu peningana og minnismiðann.
17. Tæmdu aftur úr veskinu þínu og finndu seðlaveskið þitt, settu peningana í það.
18. Settu minnismiðann í tékkaheftið.
19. Athugaðu andlitið aftur.
20. Keyrðu tvo metra áfram.
21. Bakkaðu aftur að hraðbankanum.
22. Taktu kortið þitt.
23. Tæmdu veskið þitt og finndu hulstrið af kortinu og settu kortið þar.
24. Athugaðu andlitið.
25. Settu bílinn nú í gang aftur ! Aktu frá hraðbankanum.
26. Keyrðu nokkra kílómetra.
27. TAKTU BÍLINN ÚR HANDBREMSU!!!

miðvikudagur, desember 12, 2007

Brandari dagsins

Þrír menn sátu saman og voru að monta sig af því hvernig þeir höfðu látið nýju konurnar sínar fá skyldur og verkefni heima fyrir. Sá fyrsti hafði gifst konu frá Colarado og hann hafði sagt henni að hún ætti að þvo upp og þrífa húsið. Það tók nokkra daga en á þriðja degi kom hann heim í hreint hús og uppvaskið búið og frágengið.
Annar maðurinn hafði gifst konu frá Nebraska. Hann hafði skipað konu sinni að sjá um öll þrif, uppvask og eldamennsku. Fyrsta daginn hafði ekkert gerst, annan daginn hafði það aðeins skánað og þann þriðja var húsið hreint, uppvaskið búið og svaka steik og meðlæti í matinn.

Þriðji maðurinn hafði gifst konu frá Íslandi. Hann sagði henni að hennar verk væru að halda húsinu hreinu, sjá um uppvaskið, slá garðinn, þvo þvott og elda heita máltíð í hverjum matmálstíma. Hann sagði að fyrsta daginn hefði hann ekki séð neitt, annan daginn sá hann ekki neitt en á þriðja degi minnkaði bólgan aðeins svo hann sá aðeins með vinstra auganu, nóg svo hann gat útbúið sér eitthvað að borða og sett í uppþvottavélina!