þriðjudagur, september 30, 2008
föstudagur, september 26, 2008
TILKYNNING
Æ, þetta er reyndar svolítið gamalt en ég læt þetta samt flakka...
Borist hefur tilkynning um að nýtt frumefni hafi fundist: "FRUMEFNIÐ KARL"
Frumefnið finnst: Í sófum, á kaffihúsum, börum, bjórkrám, á öðrum endanum á vindli eða veiðistöng. Sjaldan þó nálægt börnum.
Eðlisþyngd : 70-140 kg. Og er breiðast um miðjuna.
Eðliseiginleikar: Þenst út í nálægð peninga og valds, skreppur samaní grend við ryksugu og gólfskrúbba, fuðrar upp við strokur og hól, slokknar á við umræður umjafnrétti og kvenfrelsi. Þó ósjálfbjarga án kvenna.
Efniseiginleikar: Dregst að fokdýrum dauðum hlutum, tækjum og tólum. Ofsafengin viðbrögð við skorti á ummönnun og eftirtekt, og eins og áður segir, ósjálfbjarga án kvenna.
Notkun: Nauðsynlegt (ennþá) til æxlunar en ekki til teljandi gagnsað öðru leiti. Hristist við notkun.
Varúð: Getur eitrað líf kvenna ef þær eru ekki á verði.
miðvikudagur, september 17, 2008
Námskeið við Háskólann á Bifröst
NÁMSKEIÐ FYRIR KARLA!
Hvert námskeið tekur tvo daga og efnið er eftirfarandi:
HVERNIG Á AÐ FYLLA ÍSMOLAMÓT ?
Skref fyrir skref með glærusýningu.
KLÓSETTRÚLLUR: VAXA ÞÆR Á KLÓSETTRÚLLUHALDARANUM?
Hringborðsumræður.
MUNURINN Á RUSLAFÖTUM OG GÓLFI
Æfingar með körfuefni (teikningar og módel).
DISKAR OG HNÍFAPÖR: FER ÞETTA SJÁLFKRAFA Í VASKINN EÐA UPPÞVOTTAVÉLINA?
Pallborðsumræður; nokkrir sérfræðingar.
LÆRA AÐ FINNA HLUTI
Byrja að leita á réttum stöðum í stað þess að snúa húsinu við gargandi -Opin umræða.
TÓMAR MJÓLKURFERNUR; EIGA ÞÆR AÐ VERA Í ÍSSKÁPNUM EÐA Í RUSLINU?
Hópvinna og hlutverkaleikir.
HEILSUVAKT; ÞAÐ ER EKKI HÆTTULEGT HEILSUNNI AÐ GEFA HENNI BLÓM
PowerPoint kynning.
SANNIR KARLMENN SPYRJA TIL VEGAR ÞEGAR ÞEIR VILLAST
Sönn saga frá manninum sem spurði til vegar.
ER ERFÐAFRÆÐILEGA ÓMÖGULEGT AÐ SITJA ÞEGJANDI MEÐAN HÚN LEGGUR BÍL?
Ökuhermir.
AÐ BÚA MEÐ FULLORÐNUM; GRUNDVALLARMUNUR Á ÞVÍ AÐ BÚA MEÐ MÖMMU ÞINNI OG MAKA
Fyrirlestur og hlutverkaleikir.
HVERNIG Á AÐ FARA MEÐ EIGINKONUNNI Í BÚÐIR
Slökunaræfingar, hugleiðsla og öndunartækni.
AÐ MUNA MIKILVÆGAR DAGSETNINGAR OG AÐ HRINGJA ÞEGAR ÞÉR SEINKAR
Komdu með dagatalið þitt í tímann.
AÐ LÆRA AÐ LIFA MEÐ ÞVÍ AÐ HAFA ALLTAF RANGT FYRIR SÉR
Einstaklingsráðgjöf og samtöl.
Skráning er hafin í s. 666-9999
þriðjudagur, febrúar 12, 2008
Leiðbeiningar: Að taka pening úr hraðbanka
LEIÐBEININGAR FYRIR KONUR
fimmtudagur, desember 20, 2007
BÚHÚÚÚÚÚÚÚ!
Hó, ég var næstum því búin að gleyma að segja ykkur hvað ég fékk í jólagjöf frá DTU-sem starfsmaður við skólann fæ ég auðvitað gjöf og tataramm, í ár var það (sneriltrommusóló)... FJÖLTENGI!!! Þar var ég aldeilis heppin, ha? Flatskjár hvað! Fjöltengi er án efa gjöf ársins 2007 og ykkur er frjálst að stela þessari góðu hugmynd ef ykkur vantar hygmyndir að gjöfum fyrir vini og vandamenn, ég tala nú ekki um fyrir kærastann/kærustuna. Rómantískt!
Jæja, farin að vinna. Rómantískar jólakveðjur frá DTU!



