Nýskilgreint frumefni:
Frumefni: Karlmaður
Hvar það finnst: Oftast á kaffihúsum, börum, bjórkrám, á öðrum endanum á vindli eðaveiðistöng. Sjaldan nálægt börnum.
Eðlisþyngd og form: 70 - 140 kg, breiðast um miðjuna.
Eðliseiginleikar: Þenst út í nálægð peninga og valda, skreppur saman í grennd við ryksugu og gólfskrúbb. Fuðrar upp við strokur og hól, slokknar á því við umræður um jafnrétti og kvenfrelsi.
Efniseiginleikar: Dregst að fokdýrum, dauðum hlutum, tækjum og tólum. Ofsafengin viðbrögð við skorti á umönnun og eftirtekt. Ósjálfbjarga án kvenna.
Notagildi: Nauðsynlegt (ennþá) til æxlunar, en ekki til teljandi gagns að öðru leyti.
Varúð: Getur eitrað líf kvenna ef þær eru ekki vel á verði.

