Sýnir færslur með efnisorðinu Danmörk. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Danmörk. Sýna allar færslur

föstudagur, ágúst 14, 2009

Still going strong

Ákvað að vekja gamla góða bloggið aftur til lífsins, þó ekki væri nema til að halda dagbók fyrir sjálfa mig. Var nefnilega að lesa eigin bloggfærslur frá 2005, 2006 o.s.frv. og komst að því að þetta er bara fínasta leið til að halda dagbók. Prentaði meðal annars út nokkrar af gömlu færslunum og er að hugsa um að kaupa mér lekkera möppu til að setja herlegheitin í. Það verður án efa gaman að geta lesið þetta seinna og rifjað upp Danmerkurárin þegar maður er fluttur aftur í kuldann (og kreppuna?!) í Norðri.
Hef þetta samt ekkert lengra að sinni, er að vinna og vil ekki svíkja Danina meira að sinni... góða helgi öll sömul!

mánudagur, nóvember 17, 2008

Gunnar 3 vikna...


...og mamma hans er að fylla út umsókn um vöggustofupláss. Virkar kannski svolítið snemmt en er það í raun og veru ekki því við þurfum að vera búin að sækja um áður en drengurinn verður 8 vikna. Hann verður 8 vikna um jólin e-n tímann, svo það er alveg eins gott að drífa þetta af því þá verðum við í partýstandinu á Íslandi og höfum engan tíma til að hugsa um svona praktíska hluti! En engu að síður er þetta snemmt, litli snúðurinn er svo mikil písl ennþá. Alla vega virkar litla ungbarnasnuddan hans riiiiisastór í litla andlitinu :)

þriðjudagur, september 30, 2008

Danskur húmor

Eiginmaðurinn glaðlegi segir í boxinu lengst til hægri: "Geturðu ekki flokkað þvottinn einhvers staðar annars staðar?!" Nice!