Sýnir færslur með efnisorðinu Ísland. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Ísland. Sýna allar færslur

föstudagur, ágúst 14, 2009

Still going strong

Ákvað að vekja gamla góða bloggið aftur til lífsins, þó ekki væri nema til að halda dagbók fyrir sjálfa mig. Var nefnilega að lesa eigin bloggfærslur frá 2005, 2006 o.s.frv. og komst að því að þetta er bara fínasta leið til að halda dagbók. Prentaði meðal annars út nokkrar af gömlu færslunum og er að hugsa um að kaupa mér lekkera möppu til að setja herlegheitin í. Það verður án efa gaman að geta lesið þetta seinna og rifjað upp Danmerkurárin þegar maður er fluttur aftur í kuldann (og kreppuna?!) í Norðri.
Hef þetta samt ekkert lengra að sinni, er að vinna og vil ekki svíkja Danina meira að sinni... góða helgi öll sömul!

mánudagur, janúar 12, 2009

Fyrsta blogg ársins 2009

Jæja, ansi er nú liðinn langur tími frá síðustu skrifum, ha? Af okkur er allt glimrandi gott að frétta, jólafríið á Íslandi var yndislegt, hittum alla fjölskylduna og meira að segja ættingja sem ég fæ mjög sjaldan tækifæri til að hitta eins og systkini mömmu. Svo var Gunnar skírður og það heppnaðist allt saman mjög vel, veislan var fín og athöfnin dásamleg. Eins og við skírn Önnu Dúfu sá Anna Sigga hálfnafna hennar um sönginn og fórst það mjög vel úr hendi eins og við var að búast. Svo hitti ég líka stelpurnar sem er auðvitað alltaf jafn gaman :) Jólin sjálf voru mjög hugguleg, afslöppuð og næs. Við vorum svo heppin að fá að vera í íbúð Helgu frænku og Gunnars og það gerði fríið alveg ótrúlega þægilegt og gott. Það er nú nógu mikill þeytingur á manni í svona fríum og rútínur barnanna vilja fara alveg úr skorðum en við náðum að halda svona nokkuð góðri rútínu á Önnu Dúfu með svefn og mat og annað. Ég vil nota tækifærið og þakka þér enn og aftur fyrir íbúðina Helga mín og afnot af bílnum góða :) Knús og þakkir fyrir það.
Nú, annars gengur allt út á að undirbúa USA-ferðina þessa dagana. Við förum í viðtal í fyrramálið í ameríska sendiráðinu og Hjörtur er búinn að vera í meira en mánuð að undirbúa alla pappíra sem þarf að taka með. Fórum svo í myndatöku í dag en það er nauðsynlegt fyrir vegabréfsáritun. Fengum ótrúlega fínar myndir af börnunum, passamyndir sem sagt, og alveg hreint sæmilegar af okkur gamla fólkinu.
Svo fljúgum við út 29. janúar og lendum seint að kvöldi að staðartíma. Næsta dag fáum við síðan íbúð með húsgögnum og öllum græjum og vonandi bíl líka. Helgina ætlum við svo að nota í versla og gera íbúðina okkar að heimili og skoða okkur um. Svo byrjar Hjörtur að vinna strax á mánudeginum og við börnin förum þá að koma okkur upp e-i góðri rútínu. Við ætlum annars að athuga möguleikana á því að setja Önnu Dúfu á leikskóla ca. 3 daga í viku, ég er búin að finna 3 leikskóla sem mér líst mjög vel á og ætla að kanna þá betur og fá að fara í heimsókn þegar við komum á staðinn.
Jæja, nú er Gunnsi litli farinn að kvarta, orðinn þreyttur og svangur og þarf að fá nýja bleyju. Haldið þið að það sé nú meðferð á litla barninu, ha? Þið látið engan vita af þessu...

föstudagur, desember 12, 2008

Jólin alveg að koma...

...og Gunnar orðinn kvefaður :( Hann kvefaðist á þriðjudaginn og var bara ansi hreint lasinn á miðvikudaginn, aðallega vegna þess að hann fékk hita. Hann var meira að segja með það mikinn hita (38,3 gráður) um kvöldið að okkur var sagt af lækni á læknavaktinni, ég hringdi sem sagt þangað, að við yrðum að mæla hann á klukkutíma fresti því hann mætti alls ekki fá hærri hita, þá yrðum við að bruna með hann á læknavaktina og láta skoða hann. Allt svona gerir mig mjög nervusa og ég svaf eftir því illa því ég var alltaf að vakna og tjekka á honum og mæla hann með reglulegu millibili. Hann var hins vegar orðinn hitalaus næsta morgun en við vorum samt bara heima fyrir mæðginin í gær og ætlum að gera það sama í dag. Þetta er svo mikill ungi að maður þorir ekki að taka neina sjensa. Vont líka fyrir brjóstabarn að verða svona stíflað í nefinu, svo ég vona að hann hristi þetta af sér sem fyrst.

Annars eru jólin bara að koma í huga mínum; ég er búin að kaupa ca. helming jólagjafanna og á bara eftir að kaupa 2 gjafir hérna í Danmörku. Við Gunnar förum í svoleiðis leiðangur í fyrramálið, þau feðginin HJ og AD verða líklega bara heim því AD hefur takmarkað úthald í verslunum :) Restina af gjöfunum ætlum við svo að kaupa fyrir "mini-krónur" á Íslandi.
Á mánudaginn fer ég svo í klippingu, og ætli ég verði ekki bara villingur og fái mér hina margumtöluðu Katie Holmes-klippingu. Er orðin sikk leið á hárinu á mér og nenni ekki að vera svona mikið tjikken alltaf hreint að halda í e-r þunnar lýjur sem eru hvort eð er ekki neitt neitt. Iss, þetta vex þá aftur. Förum hvort eð er til USA í lok janúar og ég get þá látið hárið á mér vaxa á meðan við erum þar, ég verð nú líklega ekki mjög púkó miðað við sítt að aftan-herdúin sem ráða ríkjum í USA. Eða það ímynda ég mér alla vega. Nú, svo er ferðinni heitið yfir hafið á fimmtudaginn og á föstudaginn förum við í útskriftarveislu hjá frænda mínum. Svo eru það bara blessuð jólin og jólaboðin, skírn Gunnars og samvera með fjölskyldu og vinum. Get ekki beðið!
Jæja, nú er Gunnar vaknaður, farin að gefa drengnum svo hann horist ekki niður fyrir ferðalagið. Hafið það gott öll sömul og njótið 3. sunnudags í aðventu....

föstudagur, október 10, 2008

miðvikudagur, október 08, 2008

Á tímum kreppunnar

Ég fékk þetta sent frá eiginmanninum, veit ekki hvaðan hann fékk þetta en skemmtilegt er það:
Þessa færslu ætla ég að helga skemmtilegustu stundunum frá tíma útrásarinnar. Ég ætla að biðja ykkur að hjálpa mér að rifja þær upp.
  • Hannes Smárason og Jón Ásgeir í Gumball kappakstrinum.
  • Tom Jones að syngja fyrir veislu útrásarvíkinga um áramót í London.
  • Elton John í afmæli Ólafs Ólafssonar.
  • Existabræður á þyrlunni að kaupa pylsu.
  • Þegar Fréttablaðið kaus Hannes Smárason sem markaðsmann ársins.
  • 50cent í partíi Björgólfs yngri í Karíbahafinu.
  • Tónleikar Stuðmanna í Albert Hall.
  • Galaveisla Glitnis í Laugardalshöll.
  • Þegar forseti Íslands veitti Baugi útflutningsverðlaun forsetans. Jafnvel þótt Baugur flytji ekkert út, nema kannski fjármagn.
  • Kynningarfundurinn í London þegar næstum því var búið að selja orkulindirnar í hendurnar á Hannesi, Jóni Ásgeiri og Bjarna Ármannssyni.
  • Partíin á Three Vikings snekkjunni.
  • Uppboðið þar sem selt var ómálað verk eftir Hallgrím Helgason fyrir 20 milljónir.
  • Laugardagarnir í stúkum íslensku bankanna og fjármálafyrirtækjanna á enskum knattspyrnuvöllum.
Það eru miklu fleiri dæmi. Endilega hjálpið mér að rifja þau upp!

fimmtudagur, september 18, 2008

Jólin 2008



Jibbíííí! Vorum að panta okkur flugmiða heim um jólin hjá Iceland Express. Við náðum góðum tilboðsmiðum, ég sat límd við tölvuskjáinn á slaginu 12 að íslenskum tíma, sem sagt 14 að dönskum, og rétt náði í skottið á góðum miðum. Komum heim 18. desember um eftirmiðdaginn, sem er alveg hreint lovely því ég hata það að þurfa að vakna um miðja nótt með lítið barn (börn, þegar þar að kemur) og fara út í náttmyrkrið til að koma sér út á flug. Svo fljúgum við aftur heim 1. janúar, sömuleiðis um eftirmiðdaginn svo við verðum lent í Köben rétt fyrir kl. 20. Flugtíminn gæti ekki verið þægilegri á báðum leiðum, svei mér þá. Ég pantaði reyndar óvart forfallatryggingu sem ég geri aldrei og ætlaði mér heldur ekki að gera núna en þetta klúðraðist eitthvað aðeins hjá mér; puttarnir á mér voru eins og skjálfandi kokkteilpulsur á lyklaborðinu, svo mikið var stressið! Ef íslenska krónan heldur áfram að veikjast svona (danska krónan var rúmlega 18 krónur íslenskar þegar við pöntuðum!) þá munum við fá flugmiðana á ansi góðum kjörum þegar við fáum Euro reikninginn. Aldeilis stórfínt :)

Sjáumst þess vegna eftir nákvæmlega 3 mánuði!

fimmtudagur, júlí 24, 2008

Komin heim

Einhvern veginn finnst mér eins og ég hafi notað þennan sama titil fyrir eigi svo löngu síðan, kannski þegar við komum heim frá Noregi? Alla vega... við Anna Dúfa erum komnar aftur heim til Kaupmannahafnar eftir dásamlegt frí á Íslandi! Eins og alltaf höfðum við nóg að gera við að heimsækja vini og ættingja en við gáfum okkur líka tíma til að hreinlega gera ekki neitt, sofa og hvíla okkur barasta. Við gátum heldur ekki annað því litla mús varð lasin, fékk eyrnabólgu og var algjörlega á skjön við sjálfa sig í 3 eða 4 daga, þá fór ég með hana til læknis en var sagt að þetta væri líklega bara tanntakan að pirra hana (hún er að taka 4 jaxla þessa dagana, jæks!). Mér fannst hins vegar dálítið undarlegt að læknirinn skyldi ekki líta í eyrun á henni en sagði samt ekki neitt. Næsta dag fór ég aftur með hana til læknis, þá á læknavaktina, því greyið litla hafði vaknað grátandi á hálftíma fresti alla nóttina. Sú læknisskoðun tók án þess að ýkja 2 mínútur-barnið með mikla eyrnabólgu á vinstra eyra. Við fengum kraftmikið sýklalyf sem virkaði það vel að barnið svaf vært í fyrsta skipti í marga daga-hún fékk fyrsta skammt kl. 10 um morgun og kl. 12 sofnaði hún úti í kerrunni sinni og svaf til 16! Næsta dag var hún hins vegar komin með útbrot um allan líkamann svo ég fór með hana aftur á læknavaktina því ofnæmi fyrir pensilíni getur verið ansi alvarlegt. Lækninum fannst líklegast að útbrotin stöfuðu af sýklalyfinu svo hún var látin hætta á því enda eyrnabólgan næstum horfin eftir einungis þrjá skammta af þessu undralyfi. Síðan hefur stúlkan bara sofið vært og verið eins og hún á að sér að vera, ljúf, skapgóð og yndisleg.

Nú, úr sjúkrasögunum yfir í sumarsögurnar. Svo ég segi ykkur í stuttu máli hvað við gerðum á Íslandi þá notuðum við fyrri vikuna okkar til að heimsækja ættingja Hjartar því hann fór aftur út til Köben viku á undan okkur. Við heimsóttum held ég alla hans nánustu ættingja, m.a. föðurömmu hans og móðurafa. Amma hans Hjartar hafði aldrei hitt Önnu Dúfu svo nú fannst okkur kominn tími til að þær hittust og það var auðvitað mjög gaman. Langafi hennar Önnu Dúfu hafði hitt hana í skírninni hennar og sagði einmitt eftir að hafa skoðað á henni litlu hendurnar að hún yrði ábyggilega listakona. Tengdamamma mín hefur einmitt sagt mér að hendurnar á Önnu Dúfu minni hana á hendur mömmu hennar, sem Anna Dúfa heitir í höfuðið á, og það var víst mjög listræn kona og flink í höndunum. Það er held ég fátt skemmtilegra en að pæla í því hvaðan börnin manns hafa hitt og þetta; á heildina litið mjög lík pabba sínum, með augnlitinn minn en eyrun hans Hjartar, hárlitinn frá pabba og munninn minn, nef úr föðurættinni og sömuleiðis hendur og svo á hún auðvitað fullt bara sjálf. Skapið, hmmm, ég kannast við margt frá sjálfri mér og móðurættinni minni en svo er líka margt í henni sem mér finnst ég hvergi hafa séð áður og er bara einhver skemmtileg samsuða af okkur pabba hennar og okkar fólki. Sniðugt og skemmtilegt.
Jæja, hvert var ég komin? Já fríið! Við héldum síðan upp á afmælið okkar, grilluðum læri og kvöldinu áður gerðum við tengdamamma mín 2 gallon af kartöflusalati, ansi góðu bara, og svo gerðum við ferskt salat og vorum með kaldar grillsósur og buðum svo upp á rauðvín. Þetta var bara mjög vel lukkað og það skemmtilega var að það komust næstum því allir sem við buðum og það gerist nú ekki oft, sérstaklega á sumrin. Því fann ég hins vegar fyrir þegar ég ætlaði að bjóða vinkonum mínum í kaffi helgina á eftir, þá var nánast engin heima af þeim sem ég náði í og allir á leiðinni út á land í bústað eða á ættarmót eða hreinlega af landi brott. En ég náði þó að hitta nokkrar af vinkonunum, m.a. Arngunni og Brynhildi og Helenu vinkonu sem býr í Brussel en var á Íslandi á sama tíma og ég og sömuleiðis Öbbu vinkonu og litlu músina hennar. Vonandi næ ég að hitta ykkur hinar þegar við komum til landsins næst, hvenær sem það verður.

Annars gengur allt vel, meðgangan gengur eins og draumur og mér líður bara vel þessa dagana; finn einstaka sinnum fyrir brjóstsviða og pínu bakverk en ekkert alvarlegt þó. Ég fer einmitt í skoðun á morgun, þá fyrstu í bráðum 2 mánuði og hlakka mikið til að heyra hjartsláttinn í litlu lúsinni og sérstaklega hlakka ég til að heyra hvað ljósmóðirin heldur um stærðina á barninu. Mér finnst ég sjálf vera orðin ansi mikil bumba, alla vega miðað við síðast, en það þarf samt ekkert að þýða að barnið sé eitthvað stærra. Ætli ég sé ekki bara öll dálítið slappari og bumban virki þess vegna stærri :) Ég gæti best trúað því.
Það er auðvitað fullt sem þarf að gera á heimilinu fyrir fæðingu lukkutröllsins, alla vega tókst mér að skrifa heila A4 síðu af verkefnum. Það mikilvægasta er að koma Önnu Dúfu vel fyrir í barnaherberginu, við erum einmitt að fara út og kíkja á barnarúm handa henni um helgina því mér var sagt að það væri gott að venja eldra systkinið á nýtt herbergi og nýtt rúm með góðum fyrirvara. Ég get alveg ímyndað mér að það sé full mikið sjokk að vera fleygt út úr hjónaherberginu og eignast lítið systkini sem hangir allan daginn framan á mömmunni á sama tíma. Þess vegna ætlum við að byrja á barnaherberginu fljótlega og byrja að venja hana á að sofa þar inni ein enda er hún farin að sofa nánast alla nóttina svo það ætti að ganga ágætlega. Nú, svo þarf að taka smá skurk á baðherberginu, þrífa eldhúsið og endurraða í skápana, finna barnaföt og þvo, finna barnahluti eins og brjóstagjafapúða og ömmustól og viðra úr því háaloftslyktina, og margt fleira. Ég sem hélt að ég væri svo sultuslök yfir þessu, ég er það nú reyndar og hef bara gaman af því að dunda mér við eitthvað svona heima fyrir og gera heimilið meira kósý. Um að gera að nota tækifærið og þrífa og fleygja drasli, ekki veitir nú víst af.
Jæja, nú er þetta að verða full kellingalegt blogg. Að lokum segi ég bara takk fyrir samverustundirnar á Íslandi kæru vinir og ættingjar, takk fyrir bíóferðina stórskemmtilegu elsku Brynja og Helga og alla göngutúrana um Mosó pabbi minn og... ég gæti haldið endalaust áfram en hætti núna því vinnan kallar :)

mánudagur, júní 30, 2008

Komin heim

Jæja, þá er hinni góðu Noregsdvöl okkar lokið-nokkrar myndir úr henni hér að ofan. Ótrúlegt hvað hún leið hratt enda gerðum við margt skemmtilegt, fórum til Bergen, Osló og keyrðum þess utan til nærliggjandi bæja og höfðum það almennt bara kósý. Eins og ég sagði frá í síðustu færslu fannst mér norski maturinn afar góður, greinilega MJÖG góður því frúin er búin að bæta á sig ca. 9 kg og ennþá tæpir 4 mánuðir eftir af meðgöngunni! Ég fékk hálfgert sjokk þegar ég fór á vigtina hérna heima og flýtti mér að finna sjúrnalinn minn frá því ég gekk með AD og sá að ég hafði á sama tíma á þeirri meðgöngu verið búin að þyngjast um 7 kg og endaði í 19 kílóa þyngdaraukningu! Oh jæja, ætli maður nái þessu ekki af sér aftur með e-u móti. Síðast fór ég út að hlaupa x3 í viku frá því að AD var 3 mánaða en ég stórefa að ég nenni því að þessu sinni um miðjan vetur í frosthörkunum. Ætli ég reyni þá ekki að synda í staðinn. Svo er nú planið að við förum til USA í mars og verðum þar í 3 mánuði, ég gæti þá farið á námskeið í því leikfimisæði sem verður heitast hjá Hollywood stjörnunum á þeim tíma. Ég var að lesa í e-u tímariti á leið heim frá Noregi að það vinsælasta hjá stjörnunum þessa dagana væri að fara í kraftgöngu á meðan maður verslaði! Spurning um að taka nokkra svoleiðis daga í Kringlunni í næstu viku? Djö.. væri maður góður með bumbuna á sprettinum á milli verslanna, ha? Þið látið mig bara vita ef ykkur langar með í svona kraftgöngusjoppingmaníu.

Annars lítur út fyrir að verða frekar þétt bókuð dagskráin hjá okkur á Íslandi eins og alltaf. Við þurfum auðvitað að heimsækja heilan haug af ættingjum og vinum og svo ætlum við að halda afmælisveislu fyrir systkini okkar, frændsystkini og foreldra föstudaginn 11. júlí og förum svo í bústað 12. júlí. Ég ákvað að skipta þessu upp og bjóða vinkonunum heim eitthvert kvöldið þegar við komum úr bústaðnum og geta þá átt huggulega kvöldstund með þeim í ró og næði. Þetta er orðið svo mikið af fólki því frændystkini mín eru öll orðin svo fullorðin og komin með kærasta/kærustur og meira að segja börn :) Mamma er sem sagt orðin langamma, haha! Systkini okkar, frændsystkini og foreldrar eru ca. 35 samanlagt og við erum ekki alveg búin að ákveða hvað við eigum að gefa fólkinu að borða en við erum með nokkrar hugmyndir. Hvað varðar vinkonuhitting þá hef ég samband við ykkur síðar stelpur mínar (þið sem lesið þetta) hvað varðar dagsetningu. Ég veit nefnilega ekki ennþá hvenær við komum heim úr bústaðnum þannig að ég þarf að ákveða daginn síðar.

Jæja, best að nýta tímann á meðan krílið sefur-við erum sem sagt heima í fríi í dag mæðgurnar-og laga mér kaffi og fara í fótabað. Mmmmm, últra kósý.
Hafið það gott öll sömul og vonandi hitti ég sem flest ykkar á Íslandi næstu vikurnar!

þriðjudagur, apríl 22, 2008

Íslandsferðin 2008

Þá erum við búin að panta okkur far til Íslands. Höfum ekki komið til landsins fagra í norðri síðan í ágúst 2007. Við komum heim 6. júlí og Hjörtur fer aftur 14. júlí en ég og Anna Dúfa verðum til 21. júlí. Það eru engin sérstök plön hjá okkur, önnur en að hitta vini og ættingja og jú, fara í sumarbústað með mömmu og pabba. Hjörtur yrði reyndar bara yfir helgi í bústaðnum og færi þá aftur til Reykjavíkur til að ná flugi aftur hingað út en við mús yrðum lengur ásamt parents. Svo ætlum við kannski að halda upp á afmælin okkar, ég verð jú þrítug 17. júlí og Hjörtur 1. september en þá getum við ekki haldið upp á það með fjölskyldunni, svo það getur verið að við höldum eitthvað smávegis á meðan við erum á landinu í faðmi fjölskyldunnar og vinanna. Hvaða snið yrði á því er þó alveg óráðið, þetta er allt saman bara á hugmyndastigi enn sem komið er. En sem sagt... hvað ætla ég prívat og persónulega að gera á Íslandi í júlí?
  • Sjá og halda á nokkrum nýfæddum börnum vinkvenna minna og frændfólks
  • Fara í sundlaugarnar með Önnu Dúfu milljón sinnum
  • Borða bragðaref úr Snælandi milljón sinnum
  • Hitta allar vinkonurnar
  • Hitta alla nánustu ættingja (það væri full ambitious að ætla sér að hitta ALLA ættingjana!)
  • Fara í sumarbústað
  • Halda upp á afmælið mitt/okkar HJ?
Og listinn á alveg örugglega eftir að lengjast einhver ösköp þegar líður að ferðalaginu.

Nú ætla ég hins vegar að fara að vinna og láta mig dreyma um íslenskar sundlaugar og bragðaref úr Snælandi í vinnupásunum (sem eru margar þessa dagana eftir að sólin fór að skína svo glatt).

fimmtudagur, janúar 31, 2008

ER EKKI ALLT Í LAGI HEIMA HJÁ ÞÉR!??

Ef Danir eða aðrir útlendingar spyrðu mig þessarar spurningar, þar sem "heima" þýddi "á Íslandi", þá yrði ég líklega að svara "nei", dálítið hnuggin en sorrý-það er bara ekki allt í lagi heima á Íslandi á sumum sviðum. Ég er nú ekki vön að tala um Ísland eða íslenskt samfélag á neikvæðu nótunum og er þar líklega hinum eilífa söknuði eftir landinu mínu fagra í norðri um að kenna en söknuðurinn þarf altså að vera gífurlegur og algjörlega blindandi ef maður á að geta flett brosandi og ligeglad í gegnum fasteignasíður Morgunblaðsins þessa dagana. Og þá er komið að kjarna þessarar færslu; FASTEIGNAMÁLIN! Hvað er málið??! Ég fletti í gegnum fasteignasíðurnar á mbl.is í morgun, sló inn þær kröfur til fermetra- og herbergjafjölda sem mér þykir líklegt að við Hjörtur munum þurfa að gera til húsnæðis þegar við flytjum heim eftir einhver 3 ár, og fram á skjáinn kom langur listi. Ég byrjaði að fletta í gegnum hann, dreyminn á svip en eftir því sem líða tók á listann fór kúristinn að verða fremur brúnaþungur og lundin tók sömuleiðis að þyngjast. Steininn tók úr þegar ég kom að auglýsingu fyrir hús á Frakkarstígnum. Afsakið að ég segi það en ekki merkilegt húsnæði af myndunum að dæma, ljótasta eldhús sem ég hef á ævi minni séð og virkaði með eindæmum óvandað, dimmar stofur, einstaklega ljótt gólfefni, m.a. í svefnherberginu þar sem var svona gulnuð sumarbústaðarfura. Allt í allt út frá myndum af dæma (sem segja auðvitað ekki nærri því allt, ég geri mér grein fyrir því) fremur lásí húsnæði. Brunabótamatið sagði líka sína sögu, ca. 10 milljónir. Fasteignamatið var öllu hærra, tæpar 18 eða 19 milljónir og ásett verð.... 50 MILLJÓNIR! Eruð þið að grínast í mér? Vill einhver útskýra þetta fyrir mér? Er þetta það verð sem seljendur búast við að fá fyrir eign sína? Og svo brennur kofinn og þá fær maður 1/5 af því sem maður keypti djönkið á? Jú jú, eins og tekið var fram í auglýsingunni þá er útsýnið úr svefnherberginu einstakt, "beint út að Hallgrímskirkju" (!) en er það 50 milljón króna virði? Það er auðvitað ekkert að marka mig, úthverfarottuna sem ólst upp í gettóinu og flutti svo í miðbæinn og bjó þar í rúmt ár og var eiginlega ekkert að fatta rómantíkina við það. Fannst bara "ógisslega þægilegt að þurfa ekki að taka leigubíl heim af djamminu". Það er auðvitað til fólk sem vill hvergi annars staðar vera en í 101 Reykjavík og það er líka í fínu lagi, en er maður tilbúin til að leggja allt í sölurnar til að komast í hinn bóhemíska anda miðbæjarins? Ég er alla vega fegin að ég er ekki 101-manneskja, líklega yrði ég alltaf hálf ólukkuleg á Íslandi, vitandi að ég ætti ekki sjens í að kaupa mér fasteign á draumastaðnum og yrði að láta mér nægja að húka í úthverfunum eða-haldið ykkur fast-úti á landi! Nei, ætli ég muni ekki bara útiloka 101 úr fasteignaskoðun minni næstu mánuðina til að koma í veg fyrir annað eins sálrænt uppþot og ég varð fyrir í morgun. Ja hérna hér. Jæja, nú er ég líklega búin að jafna mig á þessum æsingi og get þá farið að vinna aftur. Have a nice day hvar sem þið eruð stödd, í 101 eða 111 Reykjavík og allt þar á milli og þess utan...

fimmtudagur, október 25, 2007

Celebrity...

...that's me!
Í morgun kom ritstjórinn hjá dönsku tæknitímariti og tók við mig viðtal um verkefnið sem ég gerði á Grænlandi sumarið 2006 og af því tilefni var tekin af mér mynd þar sem ég var með smurt bros-nördabrosið svokallaða. Eða nei. Celebrity brosið skulum við frekar kalla það. Ritstjórinn bað mig að skrifa 5-6 blaðsíðna grein og senda henni og svo reikna ég með að þessi grein ásamt myndinni góðu verði birt á næstu mánuðum. Spændende!

Og svo að næsta atriði: TIL HAMINGJU MEÐ STÓRAFMÆLIÐ MAMMA MÍN!

Nú, þriðja atriði; Íslandsferðin. Prógrammið var svona í stuttu máli:
föstudagur-Undirbúningur á afmæli mömmu. Veisla um kvöldið. Æðislegur matur. Mjög gaman.
laugardagur-Löns hjá familíu Hjartar. Enn og aftur, æðislegur matur og mjög gaman. Helga Finns kom í mat til mömmu og pabba um kvöldið og svo bara kósíheit heima fyrir.
sunnudagur-Skírn Æsu Sigurbjargar á Selfossi. Anna Dúfa komst því miður ekki með þar sem hún var lasin en hún hafði það gott heima hjá afa og ömmu í Mosó. Íslenskt lambalæri með frönsku ívafi heima hjá parents um kvöldið.
mánudagur-Kringluferð með mömmu og pabba þar sem músin græddi svolítið af fötum. Fórum á kaffihús og svo heim. Ég skrapp í heimsókn til pabba Hjartar um eftirmiðdaginn og um kvöldið kom mamma Hjartar í mat til parents, alíslenska og glæææænýja ýsu, bæði í brúnni sósu og steikta í raspi. mmmmmm..... fórum snemma að sofa (eða það var alla vega planið, ég sofnaði samt ekki fyrr en kl. 1.30!) eftir að hafa keyrt stuttan rúnt um Mosó og kvatt þau systkini mín sem búa í því ágæta bæjarfélagi. Vöknuðum kl. 4 um nóttina og flugum heim kl. 7.15 á þriðjudagsmorgni. Lentum á Kastrup eftir svona semi-þægilega flugferð þar sem Hjörtur minn ástkæri eiginmaður og músarpabbi tók á móti okkur. Fórum heim og við mæðgurnar sváfum lungann úr eftirmiðdeginum og sofnuðum svo ofur snemma um kvöldið, kl. 20.40 og sváfum til 8.30 næsta morgun, gjörsamlega búnar á því eftir allt partýstandið á Íslandi.

Jæja, þetta var stutt útgáfa af ferðasögunni. Samt ekkert svo stutt, ég sé það núna. Þetta átti að verða svona cool fréttaskeytasaga en ég gleymdi mér og þetta breyttist í væmna Barböru Cartland sögu. Oh well.
Nú er ég fara út að hitta stelpur sem voru með mér á Grænlandi, þær eru allar á síðasta ári í verkfræðinni svo þær eru enn hérna í skólanum. Við ákváðum þess vegna að hittast í hádeginu í matsal skólans og fá okkur löns saman. Þetta stefnir í að verða prýðis dagur held ég.
Hafið það gott og svo skelli ég inn nokkrum ferðamyndum á heimasíðu Önnu Dúfu við tækifæri.