Sýnir færslur með efnisorðinu USA. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu USA. Sýna allar færslur

þriðjudagur, ágúst 18, 2009

Broadway, here I come!

Sådan! eins og frumburðurinn segir þegar hún er ánægð með hinar ýmsu athafnir sínar. Þá er ég búin að skrá mig í jazzdans, byrja eftir tvær vikur-þ.e.a.s. ef það eru laus pláss á þeim tíma sem ég skráði mig. Reikna fastlega með að verða það góð eftir fáeina tíma að ég muni droppa út úr doktorsnáminu strax upp úr áramótum og flytja lögheimili mitt til USA þar sem ég verð fastráðin sem dansari á Broadway. Hver veit nema jólakortin í ár til familíunnar verði stíluð á Broadway í stað Trørød?! Aldrei að vita!

mánudagur, mars 09, 2009

Ameríka, kafli 2

Jæja, nú er orðið langt síðan ég skrifaði síðast enda er ég orðin mjög löt við að blogga svona. Ég fer á Facebook orðið á hverjum degi og þar er maður e-n veginn í sambandi við flesta vinina og ættingja svo þessu er dálítið ofaukið e-n veginn.

Hvað varðar það sem ég skrifaði um síðast, þá fórum við og athuguðum leikskóla fyrir AD, þessi sem var í 1,5 km fjarlægð frá húsinu okkar. Það er auðvitað ekki langur gangur eins og margar ykkar bentu á í athugasemdunum, málið er bara að AD nennir oft ekki að vera í kerrunni og þá virka 1,5 km sem rosaleg vegalengd ef maður þarf hálfa leiðina að standa í ströggli við litla skottið :)
En niðurstaðan á þessu máli varð sú að þetta var einfaldlega of dýrt, við þurfum enn að greiða fyrir leikskólann hennar í Köben og gjaldið hérna hefði verið jafn dýrt og meira að segja aðeins dýrara. Svo hefur bara komið í ljós, að henni leiðist hreint ekki neitt hérna heima og nýtur þess hreinlega að vera heima með mér og litla bróður. Henni hefur farið svoooo mikið fram við að tala að það er hreint ótrúlegt! Hún er bæði orðin skýrmæltari og svo bætir hún stöðugt við orðaforðann. Þetta sýnir manni bara hvað það er ruglandi fyrir lítil börn að vera í svona tvítyngdu umhverfi. Svo er líka fín regla á dögunum hjá okkur og komin góð rútína á þau bæði systkinin hvað varðar svefn, útitíma, matartíma o.s.frv. Litli drengurinn er m.a. farinn að sofa í eigin rúmi-hann svaf uppi í okkar rúmi fyrstu 3 mánuðina-og nú sefur hann frá ca. 22 eða 23 og síðustu viku hefur hann sofið alla nóttina, ég læt hann drekka um miðnætti og svo sefur hann þetta til 6 eða 7 og þá drekkur hann aftur og sefur svo áfram til ca. 9 eða 10. Það er ósköp gott þegar þetta næturbrölt á börnunum fer að minnka, þá fer maður að verða svolítið ferskari sjálfur :)

Annars er allt gott að frétta héðan, okkur líður ofsalega vel og við höfum undanfarnar 2 helgar farið í keyrslutúra; um síðustu helgi fórum við að skoða vínekrur sem eru skammt frá Richland og í dag keyrðum við suður til Oregon fylkis í lítinn bæ sem ég man ekki alveg hvað heitir (úps!). Við fórum á Pizza Hut og svo í skemmtigarð og á leiðinni heim fórum við á Starbucks þar sem ég fékk viðbjóðslegasta smoothie í heimi! E-n prótínbættan vibba sem ég mun aldrei kaupa mér aftur. Jæja, en þetta var hin besta ferð og veðrið alveg dásamlegt! Myndir úr túrnum eru á leiðinni á barnaland.

Hlaupin hjá mér ganga ok, ef maður getur leyft sér að kalla það "hlaup" að fara á hlaupabretti og ganga og hlaupa til skiptis í samanlagt 15 mín :D En þetta er alla vega hressandi og ekki síst fyrir andann. Ég finn alltaf rosalegan mun á mér þegar ég fer að hreyfa mig, því mér hættir til að verða stressuð og þetta virkar eins og hálfgerð hugleiðsla fyrir mig eða hreinsun fyrir hugann. Ósköp hollt og gott.

Jæja, nú ætla ég að setja myndir á barnaland og svo ætla ég að fara að sofa. Hafið það gott og takk fyrir lesturinn :)

fimmtudagur, febrúar 12, 2009

Allt er STÓRT...

í Ameríku, að því er ég búin að komast þessa 12 daga sem við erum búin að vera hérna. Búðirnar, bílarnir, matarskammtarnir á veitingastöðum... you name it! Okkur líður mjög vel og þetta hefur gengið glettilega vel hjá okkur finnst mér. Anna Dúfa varð reyndar mjög lasin strax eftir að við komum, fékk streptokokka í hálsinn og er fyrst núna að jafna sig enda enn að taka inn sýklalyf. Við Gunnar fengum síðan augnsýkingu og hann er enn að eiga við þann fjanda, þótt lítið sé.
Annars er ég byrjuð að vinna í vöggustofu/leikskólamálum fyrir Önnu Dúfu. Ég hringdi á leikskóla sem er rétt hjá hverfinu okkar í gær, en þar eru engin pláss laus. Eftir smá stund, þegar ég er búin að skrifa þetta blogg, ætla ég að hringja í leikskóla sem er rétt hjá vinnunni hans HJ. Hann gæti þá skilað henni á morgnana og jafnvel skutlað henni heim í hádeginu og fengið sér þá löns með okkur mæðgunum í leiðinni. Annars gæti ég svo sem labbað og sótt hana í hádeginu, mér veitir svo sem ekkert af hreyfingunni en þetta er 1,5 km hvora leið og mér finnst það skrambi langt :( Er það bara aumingjaskapur í mér? Kannski hefði maður bara gott af því að fá sér svona hraustlegan göngutúr x3 í viku. Planið er sem sagt að hafa hana 3 hálfa daga í viku, ef það er í boði. Ef henni líkar svakalega vel og fæst til að sofa þá væri möguleiki að hafa hana kannski 2 heila daga og 1 hálfan. Við sjáum bara til. Svo getur líka vel verið að henni líki þetta bara alls ekki, og þá verður hún auðvitað bara heima hjá mér. En mikið skelfing hefði hún samt gott af því að hitta önnur börn, ég finn það oft á henni að henni leiðist og vantar skemmtilegri leikfélaga en mig. Ég vona bara að þetta leysist og ég geti sagt ykkur leikskólafréttir í næsta bloggi :)
Jæja, ætla að nýta þann stutta tíma sem gefst á meðan Anna Dúfa sefur til að senda póst hingað og þangað. Það er alltaf nóg að gera ;) Og endilega, kíkið á barnaland, þar eru fullt af myndum héðan.

Hafið það gott!

mánudagur, janúar 26, 2009

3 dagar í USA

Já, þið lásuð rétt, það eru 3 sólarhringar þangað til við verðum úti á Kastrup og um það bil að leggja í hann til Seattle. Þangað fljúgum við um hádegisbil, flugið tekur um 10 tíma (hólí smók!) og í Seattle tekur svo við 4-5 tíma bið eftir innanlandsflugi til borgarinnar Pasco í Washington fylki á Vesturströndinni. Þegar við lendum í Pasco verður klukkan eitthvað um 22 eða 23 að staðartíma og þá þurfum við að koma okkur á eitthvað mótel í borginni Richland þar sem við munum dvelja næstu 3 mánuðina. Það eru ca. 3 km frá Pasco til Richland svo við ættum að vera fljót að keyra á milli, þ.e.a.s. ef við villumst ekki! Haha! Annars fáum við bíl sem verður vonandi tilbúinn fyrir okkur á flugvellinum í Pasco. Ef við fáum hann ekki fyrr en næsta dag þá tökum við bara leigubíl, og þá er ég ákveðin í því að kalla á leigubílinn eins og í amerískum bíómyndum og Sex and the City og svoleiðis þáttum, þið vitið, stíg út á götuna með öðrum fætinum og veifa til leigubílstjórans og æpi "Taxi!". Ég verð kannski ekki eins dauðlekker og Carry Bradshaw í Sex and the City, ég verð svona meira eins og klippt út úr breskum heimildaþætti um einstæðar, þreyttar mæður, með úfið og reytt hárið og gubb í fötunum, Gunnar í magapokanum og Önnu Dúfu á möðminni. Fyrir aftan mig stendur svo Hjörtur, frekar teygður á svip með 3 ferðatöskur, tvíburakerru, burðarrúm og skiptitösku. Nú hljómar þetta eflaust eins og ég sé frekar kvíðin fyrir þessu langa ferðalagi en merkilegt nokk er ég það ekki. Við fórum í 10 tíma rútuferð í sumar með Önnu Dúfu þegar við vorum í Noregi við Hjörtur, og það gekk prýðilega. Stúlkan svaf tvisvar og var eins og engill. Ekki það, það ferðalag var auðvitað léttara því við stoppuðum ca. þrisvar á leiðinni svo hún gat teygt úr sér en það er öllu erfiðara í flugvél. Það verður samt vonandi meira pláss en í Express vélunum þar sem Hjörtur situr með hnén uppi í enni. Að öllu gamni slepptu þá kvíði ég þessu sem sagt ekki, ég er bara með svona "nenni þessu alls ekki"-tilfinningu gagnvart þessu ferðalagi. En ég hlakka ofboðslega til að komast í íbúðina okkar og það sem ég hlakka mest til er að fara út og versla í matinn fyrsta daginn! Ég hef heyrt það frá mörgum að amerískar matvöruverslanir séu ÆÐI, og ef það er eitthvað sem við elskum hjónin þá er það að versla góðan mat.

Svo ætla ég að fara strax í næstu viku og kynna mér hvernig það er með vöggustofur í borginni og vita hvort ég get fengið eitthvað gestapláss fyrir Önnu Dúfu. Mig langar til að koma henni á e-n góðan leikskóla ca. 3 hálfa daga í viku svo hún geti hitt önnur börn. Það kemur líka meiri rútínu á hið daglega líf, ekki bara fyrir hana heldur líka fyrir mig, því mér finnst dagarnir auðveldlega geta orðið dálítið losaralegir þegar maður er einn heima með börnin og ekkert sérstakt fyrir stafni. Ég er líka að vona að ég nenni að hreyfa mig eitthvað þá daga sem skottið færi á leikskóla, þ.e.a.s. ef það plan gengur upp og henni líkar það vel. Þetta er svona leiguíbúða-"kompleks", ég veit ekki alveg hvað það heitir á íslensku, en þetta er ekkert ósvipað því að búa á kollegíi eins go við búum á núna. Í þessu "kompleksi" er þvottahús þar sem maður getur látið þvo og þurrka þvott fyrir sig gegn mjög vægu gjaldi og svo er ágætis líkamsræktarstöð. Þótt ég sé lítið fyrir svona líkamsræktartæki- og tól ýmiskonar, þá ætla ég samt að reyna að pína mig á eitthvað hlaupabretti svona x2-3 í viku til að ná af mér þessum síðustu 5 kílóum. Annars verður þetta nú kannski frekar spurning um að halda aukinni þyngd frá sér því ef ég þekki okkur hjónin rétt þá munum við liggja í amerísku ostakökunum og Ben og Jerry's ísnum. Svo er Starbucks í ca. 500 metra fjarlægð frá hverfinu okkar, og þangað mun ég eflaust trítla daglega eftir morgunkaffinu mínu :) Þetta verður næs... og fitandi! Og þá er nú gott að hafa líkamsræktarstöð just around the corner, þ.e.a.s. ef maður hefur sjálfsagann til að nota hana.

Jæja, annars er allt gott að frétta, börnin blómstra og dafna en Anna Dúfa er samt á frekar erfiðu tímabili núna. Hún virðist samt ekki vera mjög afbrýðissöm út í Gunnar, sbr. nýjustu myndirnar af þeim systkinunum á Barnalandi, og hún er ekkert nema blíðlyndið og væntumþykjan í garð bróður síns. Hún veit fátt skemmtilegra en að fá að halda á honum og nú er hann líka farinn að brosa til hennar svo henni finnst hann eflaust skemmtilegri en hann var fyrir 1-2 mánuðum. Samt finnst henni auðvitað erfitt stundum að geta ekki fengið alla þá athygli sem hún vill, sérstaklega ef Gunnar grætur og ég þarf að gefa honum akkúrat þegar hana langar að sýna mér eitthvað eða leika við mig. Ég held að þetta erfiða tímabil sé meira tengt aldri hennar, Ameríkanar kalla þetta "The terrible two", þótt hún sé auðvitað ekkert "terrible" :) Hún er bara svolítill prakkari í sér og nennir takmarkað að hlusta á okkur foreldrana þegar við bönnum henni hitt og þetta, eins og að hoppa í sófanum, klifra upp á matarborð, reyta öll fötin sín út úr skápnum... you name it. Henni finnst við meira að segja frekar hlægileg og tekur ekki mikið mark á okkur.
Annars var ég að tala við leikskólakennarann hennar og hún heldur að henni sé farið að leiðast á vöggustofunni því hún er að verða sú elsta á deildinni og mikið af nýjum smábörnum. Hún á að fara á svokallaða millideild í sumar þar sem eru börn á aldrinum 2½-4 ára. Það verður eflaust mjög gott fyrir hana. Ég spurði leikskólakennarann jafnframt að því hvort hún héldi að það yrði of erfitt fyrir hana að fara á ameríska vöggustofu, en hún sagðist halda að það yrði þvert á móti bara spennandi fyrir hana. Hún sagði að hún væri svo gáfuð og fljót að læra *roðn* að það gæti bara orðið mjög skemmtileg upplifun fyrir hana og hressandi breyting, því henni væri einmitt farið að leiðast svolítið innan um smábörnin. Nú sjáum við bara til hvernig þetta fer en ég vona alla vega að hún komist í félagsskap við e-a jafnaldra svo hún morkni ekki úr leiðindum með hinum gömlu foreldrum sínum næstu 3 mánuðina.

Jæja, best að fara að gera eitthvað gáfulegt eins og að laga mér bláberjate og horfa á sjónvarpið. Næsta blogg verður síðan skrifað frá landi tækifæranna! Hipphipphúrreiiii!

mánudagur, janúar 12, 2009

Fyrsta blogg ársins 2009

Jæja, ansi er nú liðinn langur tími frá síðustu skrifum, ha? Af okkur er allt glimrandi gott að frétta, jólafríið á Íslandi var yndislegt, hittum alla fjölskylduna og meira að segja ættingja sem ég fæ mjög sjaldan tækifæri til að hitta eins og systkini mömmu. Svo var Gunnar skírður og það heppnaðist allt saman mjög vel, veislan var fín og athöfnin dásamleg. Eins og við skírn Önnu Dúfu sá Anna Sigga hálfnafna hennar um sönginn og fórst það mjög vel úr hendi eins og við var að búast. Svo hitti ég líka stelpurnar sem er auðvitað alltaf jafn gaman :) Jólin sjálf voru mjög hugguleg, afslöppuð og næs. Við vorum svo heppin að fá að vera í íbúð Helgu frænku og Gunnars og það gerði fríið alveg ótrúlega þægilegt og gott. Það er nú nógu mikill þeytingur á manni í svona fríum og rútínur barnanna vilja fara alveg úr skorðum en við náðum að halda svona nokkuð góðri rútínu á Önnu Dúfu með svefn og mat og annað. Ég vil nota tækifærið og þakka þér enn og aftur fyrir íbúðina Helga mín og afnot af bílnum góða :) Knús og þakkir fyrir það.
Nú, annars gengur allt út á að undirbúa USA-ferðina þessa dagana. Við förum í viðtal í fyrramálið í ameríska sendiráðinu og Hjörtur er búinn að vera í meira en mánuð að undirbúa alla pappíra sem þarf að taka með. Fórum svo í myndatöku í dag en það er nauðsynlegt fyrir vegabréfsáritun. Fengum ótrúlega fínar myndir af börnunum, passamyndir sem sagt, og alveg hreint sæmilegar af okkur gamla fólkinu.
Svo fljúgum við út 29. janúar og lendum seint að kvöldi að staðartíma. Næsta dag fáum við síðan íbúð með húsgögnum og öllum græjum og vonandi bíl líka. Helgina ætlum við svo að nota í versla og gera íbúðina okkar að heimili og skoða okkur um. Svo byrjar Hjörtur að vinna strax á mánudeginum og við börnin förum þá að koma okkur upp e-i góðri rútínu. Við ætlum annars að athuga möguleikana á því að setja Önnu Dúfu á leikskóla ca. 3 daga í viku, ég er búin að finna 3 leikskóla sem mér líst mjög vel á og ætla að kanna þá betur og fá að fara í heimsókn þegar við komum á staðinn.
Jæja, nú er Gunnsi litli farinn að kvarta, orðinn þreyttur og svangur og þarf að fá nýja bleyju. Haldið þið að það sé nú meðferð á litla barninu, ha? Þið látið engan vita af þessu...