Sýnir færslur með efnisorðinu ferðalag. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu ferðalag. Sýna allar færslur

mánudagur, mars 09, 2009

Ameríka, kafli 2

Jæja, nú er orðið langt síðan ég skrifaði síðast enda er ég orðin mjög löt við að blogga svona. Ég fer á Facebook orðið á hverjum degi og þar er maður e-n veginn í sambandi við flesta vinina og ættingja svo þessu er dálítið ofaukið e-n veginn.

Hvað varðar það sem ég skrifaði um síðast, þá fórum við og athuguðum leikskóla fyrir AD, þessi sem var í 1,5 km fjarlægð frá húsinu okkar. Það er auðvitað ekki langur gangur eins og margar ykkar bentu á í athugasemdunum, málið er bara að AD nennir oft ekki að vera í kerrunni og þá virka 1,5 km sem rosaleg vegalengd ef maður þarf hálfa leiðina að standa í ströggli við litla skottið :)
En niðurstaðan á þessu máli varð sú að þetta var einfaldlega of dýrt, við þurfum enn að greiða fyrir leikskólann hennar í Köben og gjaldið hérna hefði verið jafn dýrt og meira að segja aðeins dýrara. Svo hefur bara komið í ljós, að henni leiðist hreint ekki neitt hérna heima og nýtur þess hreinlega að vera heima með mér og litla bróður. Henni hefur farið svoooo mikið fram við að tala að það er hreint ótrúlegt! Hún er bæði orðin skýrmæltari og svo bætir hún stöðugt við orðaforðann. Þetta sýnir manni bara hvað það er ruglandi fyrir lítil börn að vera í svona tvítyngdu umhverfi. Svo er líka fín regla á dögunum hjá okkur og komin góð rútína á þau bæði systkinin hvað varðar svefn, útitíma, matartíma o.s.frv. Litli drengurinn er m.a. farinn að sofa í eigin rúmi-hann svaf uppi í okkar rúmi fyrstu 3 mánuðina-og nú sefur hann frá ca. 22 eða 23 og síðustu viku hefur hann sofið alla nóttina, ég læt hann drekka um miðnætti og svo sefur hann þetta til 6 eða 7 og þá drekkur hann aftur og sefur svo áfram til ca. 9 eða 10. Það er ósköp gott þegar þetta næturbrölt á börnunum fer að minnka, þá fer maður að verða svolítið ferskari sjálfur :)

Annars er allt gott að frétta héðan, okkur líður ofsalega vel og við höfum undanfarnar 2 helgar farið í keyrslutúra; um síðustu helgi fórum við að skoða vínekrur sem eru skammt frá Richland og í dag keyrðum við suður til Oregon fylkis í lítinn bæ sem ég man ekki alveg hvað heitir (úps!). Við fórum á Pizza Hut og svo í skemmtigarð og á leiðinni heim fórum við á Starbucks þar sem ég fékk viðbjóðslegasta smoothie í heimi! E-n prótínbættan vibba sem ég mun aldrei kaupa mér aftur. Jæja, en þetta var hin besta ferð og veðrið alveg dásamlegt! Myndir úr túrnum eru á leiðinni á barnaland.

Hlaupin hjá mér ganga ok, ef maður getur leyft sér að kalla það "hlaup" að fara á hlaupabretti og ganga og hlaupa til skiptis í samanlagt 15 mín :D En þetta er alla vega hressandi og ekki síst fyrir andann. Ég finn alltaf rosalegan mun á mér þegar ég fer að hreyfa mig, því mér hættir til að verða stressuð og þetta virkar eins og hálfgerð hugleiðsla fyrir mig eða hreinsun fyrir hugann. Ósköp hollt og gott.

Jæja, nú ætla ég að setja myndir á barnaland og svo ætla ég að fara að sofa. Hafið það gott og takk fyrir lesturinn :)

miðvikudagur, febrúar 27, 2008

Grænland, hér kem ég...

Jæja, þá held ég af stað í mína þriðju ferð til Grænlands á morgun. Á að hitta vinnufélagana kl. 7.45 á Kastrup og svo er flogið kl. 9.15. Ráðstefnan byrjar á laugardaginn og ég á að vera með mína kynningu kl. 9 á sunnudagsmorguninn, sem sagt kl. 12 að íslenskum tíma og kl. 13 að dönskum tíma. Þá vitið þið öll/allar hvenær þið eigið að byrja að senda mér stáltaugastraumana svo ég standi nú ekki stamandi og hikstandi fyrir framan ráðstefnugestina. Oooh, ég fæ alveg svona nettan hnút í magann þegar ég skrifa þetta! Best að fá mér kamillute til að róa taugarnar...
Ef veðrið verður almennilegt og ég kemst á milli staða á Grænlandi þá kem ég heim á mánudagskvöldið. Ég set kannski inn fáeinar myndir úr ferðinni hérna í næstu viku. Góða helgi öll sömul og hafið það gott...