Sýnir færslur með efnisorðinu húsnæði. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu húsnæði. Sýna allar færslur

mánudagur, október 06, 2008

Næstum því barnseignarleyfi

Jæja, þá er ég svona NÆSTUM ÞVÍ byrjuð í barnseignarleyfinu, sem er dálítið skrýtið finnst mér. Ég er samt með svona "æi, af hverju náði ég ekki að sinna fleiri hlutum fyrir verkfefnið mitt áður en ég fór í leyfið"-tilfinningu í maganum þessa dagana. Ég var líka heima á föstudaginn sem átti annars að vera síðasti dagur fyrir leyfi hjá mér, ég einfaldlega komst ekki út af heavy samdráttarverkjum. Við erum búin að vera bíllaus í viku, bíllinn hætti einfaldlega að starta upp úr þurru svo það varð að draga hann á verkstæði. Það gerði það að verkum að ég þurfti að fara í vinnuna með strætó í síðustu viku, og fann hvað samdráttarverkirnir versnuðu með hverjum göngutúrnum út í strætóskýli sem leið. Ég held líka að drengurinn hafi verið að skorða sig enn betur að undanförnu, alla vega er ég mun verri orðin í grindinni en ég var og finnst ég vera að gliðna í sundur suma daga! Mjög næs tilfinning. Ég hef það svona á tilfinningunni að drengurinn muni fæðast aðeins fyrir settan dag, en það er líklega mikilli óskhyggju um að kenna. Ég get ekki beðið eftir því að fá hríðarnar og sé þann dag/nótt fyrir mér í miklum dýrðarljóma. Ég verð líka að segja að ég hlakka til fæðingarinnar þótt ég sjái svo sem fyrir mér að ég muni allra helst vilja hætta við þegar á hólminn er komið. Ég er alla vega búin að tala við ljósmóðurina um það að fá að vera á spítalanum á meðan á hríðunum stendur þannig að ég mun ekki hanga hér heima eins og síðast. Þá er kannski e-r sjens að ég geti nýtt mér það sem er í boði eins og að fara í pottinn, fá nálastungu eða eitthvað annað. Svo ætlar ljósmóðirin að skrifa í sjúkraskrána mína að það eigi að panta mænudeyfingu um leið og ég hringi út á spítala þegar ég fæ hríðarnar. Hún vorkenndi mér svo agalega þegar hún las sjúkraskrána og sá hvernig fæðingin og aðdragandi hennar gekk fyrir sig síðast að hún vildi reyna að "tryggja mér" mænudeyfingu að þessu sinni, þótt það sé auðvitað ekkert hægt. Ég hugsa líka um þetta þannig, að ef þetta kemur til með að ganga hratt fyrir sig og það næðist e-a hluta vegna ekki að gefa mér mænudeyfingu, þá er þetta yfirstaðið á ca. hálfum sólarhring (vonandi ekki meira!) og ca. einni mínútu eftir fæðinguna er maður búin að gleyma sársaukanum og er til í að gera þetta aftur strax næsta dag þess vegna! Þannig leið mér alla vega síðast :)

En alla vega, hvað varðar barnseignarleyfið þá þarf ég að skreppa út í skóla á miðvikudaginn. Ég fer á fund með 3 nemendum sem eru á leið til Grænlands og vantar ráðleggingar varðandi ýmislegt, bæði praktískt og faglegt. Í leiðinni þarf ég að sinna svona ýmsum smáatriðum sem ég ætlaði mér að klára á föstudaginn. Eftir það er ég komin í ALGJÖRT leyfi.
Annars er fátt á planinu hjá mér í leyfinu. Familían fer öll í klippingu á morgun og svo er sem sagt vinna hjá mér á miðvikudaginn. Á fimmtudaginn er ég að hugsa um að skreppa út og kaupa vetrarfatnað á litlu leikskólalúsina mína; hana vantar orðið bæði kuldaskó og vetrarúlpu. Svo ætla ég í plokkun og handsnyrtingu e-n tímann í vikunni eða næstu viku bara og einhvern daginn ætlum við hjónin að skreppa í bíó í hádeginu. Það finnst mér stórsniðugt, og er í raun eini tíminn sem við getum farið í bíó. Svo er ljósmóðurskoðun á föstudaginn, vonandi sú síðasta. Að öðru leyti ætla ég bara að hafa það náðugt hérna heima og það er alveg föst regla hjá mér að ég Á að leggja mig á hverjum degi, sama hversu óþreytt og vel upplögð mér finnst ég vera. Ég ætla hreinlega að leggjast upp í rúm með bók eftir hádegismatinn á hverjum degi, mjög kellingalegt en nytsamlegt á síðustu metrunum.

Áður en ég lýk þessari færslu þá langar mig að koma smá auglýsingu á framfæri. Við hjónin erum að leita okkur að íbúð um jólin í Reykjavík eða nágrenni. Ef þið þekkið e-n sem er að fara til útlanda eða út á land og langar að lána eða leigja íbúðina sína þá megið þið ENDILEGA hafa samband við mig. Ég þarf varla að taka það fram að það verður ákaflega takmarkað partýstand á okkur hjónunum með börnin tvö; okkur langar bara mjög mikið til að vera í eigin íbúð um jólin. Maður veit ekkert hvernig barnið mun sofa og það væri best að geta haft Önnu Dúfu í sér herbergi svo hún fái sinn nætursvefn án þess að vakna í sífellu við grátandi smábarn. Annars kemur allt til greina, hversu smátt sem það er og í raun og veru hvar sem það er. Endilega, hafið augu og eyru opin :)
Jæja, farin að fá mér kaffi og brauð. Hafið það gott, hvar sem þið eruð í heiminum kæru vinir!

fimmtudagur, janúar 31, 2008

ER EKKI ALLT Í LAGI HEIMA HJÁ ÞÉR!??

Ef Danir eða aðrir útlendingar spyrðu mig þessarar spurningar, þar sem "heima" þýddi "á Íslandi", þá yrði ég líklega að svara "nei", dálítið hnuggin en sorrý-það er bara ekki allt í lagi heima á Íslandi á sumum sviðum. Ég er nú ekki vön að tala um Ísland eða íslenskt samfélag á neikvæðu nótunum og er þar líklega hinum eilífa söknuði eftir landinu mínu fagra í norðri um að kenna en söknuðurinn þarf altså að vera gífurlegur og algjörlega blindandi ef maður á að geta flett brosandi og ligeglad í gegnum fasteignasíður Morgunblaðsins þessa dagana. Og þá er komið að kjarna þessarar færslu; FASTEIGNAMÁLIN! Hvað er málið??! Ég fletti í gegnum fasteignasíðurnar á mbl.is í morgun, sló inn þær kröfur til fermetra- og herbergjafjölda sem mér þykir líklegt að við Hjörtur munum þurfa að gera til húsnæðis þegar við flytjum heim eftir einhver 3 ár, og fram á skjáinn kom langur listi. Ég byrjaði að fletta í gegnum hann, dreyminn á svip en eftir því sem líða tók á listann fór kúristinn að verða fremur brúnaþungur og lundin tók sömuleiðis að þyngjast. Steininn tók úr þegar ég kom að auglýsingu fyrir hús á Frakkarstígnum. Afsakið að ég segi það en ekki merkilegt húsnæði af myndunum að dæma, ljótasta eldhús sem ég hef á ævi minni séð og virkaði með eindæmum óvandað, dimmar stofur, einstaklega ljótt gólfefni, m.a. í svefnherberginu þar sem var svona gulnuð sumarbústaðarfura. Allt í allt út frá myndum af dæma (sem segja auðvitað ekki nærri því allt, ég geri mér grein fyrir því) fremur lásí húsnæði. Brunabótamatið sagði líka sína sögu, ca. 10 milljónir. Fasteignamatið var öllu hærra, tæpar 18 eða 19 milljónir og ásett verð.... 50 MILLJÓNIR! Eruð þið að grínast í mér? Vill einhver útskýra þetta fyrir mér? Er þetta það verð sem seljendur búast við að fá fyrir eign sína? Og svo brennur kofinn og þá fær maður 1/5 af því sem maður keypti djönkið á? Jú jú, eins og tekið var fram í auglýsingunni þá er útsýnið úr svefnherberginu einstakt, "beint út að Hallgrímskirkju" (!) en er það 50 milljón króna virði? Það er auðvitað ekkert að marka mig, úthverfarottuna sem ólst upp í gettóinu og flutti svo í miðbæinn og bjó þar í rúmt ár og var eiginlega ekkert að fatta rómantíkina við það. Fannst bara "ógisslega þægilegt að þurfa ekki að taka leigubíl heim af djamminu". Það er auðvitað til fólk sem vill hvergi annars staðar vera en í 101 Reykjavík og það er líka í fínu lagi, en er maður tilbúin til að leggja allt í sölurnar til að komast í hinn bóhemíska anda miðbæjarins? Ég er alla vega fegin að ég er ekki 101-manneskja, líklega yrði ég alltaf hálf ólukkuleg á Íslandi, vitandi að ég ætti ekki sjens í að kaupa mér fasteign á draumastaðnum og yrði að láta mér nægja að húka í úthverfunum eða-haldið ykkur fast-úti á landi! Nei, ætli ég muni ekki bara útiloka 101 úr fasteignaskoðun minni næstu mánuðina til að koma í veg fyrir annað eins sálrænt uppþot og ég varð fyrir í morgun. Ja hérna hér. Jæja, nú er ég líklega búin að jafna mig á þessum æsingi og get þá farið að vinna aftur. Have a nice day hvar sem þið eruð stödd, í 101 eða 111 Reykjavík og allt þar á milli og þess utan...