Ef Danir eða aðrir útlendingar spyrðu mig þessarar spurningar, þar sem "heima" þýddi "á Íslandi", þá yrði ég líklega að svara "nei", dálítið hnuggin en sorrý-það er bara ekki allt í lagi heima á Íslandi á sumum sviðum. Ég er nú ekki vön að tala um Ísland eða íslenskt samfélag á neikvæðu nótunum og er þar líklega hinum eilífa söknuði eftir landinu mínu fagra í norðri um að kenna en söknuðurinn þarf altså að vera gífurlegur og algjörlega blindandi ef maður á að geta flett brosandi og ligeglad í gegnum fasteignasíður Morgunblaðsins þessa dagana. Og þá er komið að kjarna þessarar færslu; FASTEIGNAMÁLIN! Hvað er málið??! Ég fletti í gegnum fasteignasíðurnar á mbl.is í morgun, sló inn þær kröfur til fermetra- og herbergjafjölda sem mér þykir líklegt að við Hjörtur munum þurfa að gera til húsnæðis þegar við flytjum heim eftir einhver 3 ár, og fram á skjáinn kom langur listi. Ég byrjaði að fletta í gegnum hann, dreyminn á svip en eftir því sem líða tók á listann fór kúristinn að verða fremur brúnaþungur og lundin tók sömuleiðis að þyngjast. Steininn tók úr þegar ég kom að auglýsingu fyrir hús á Frakkarstígnum. Afsakið að ég segi það en ekki merkilegt húsnæði af myndunum að dæma, ljótasta eldhús sem ég hef á ævi minni séð og virkaði með eindæmum óvandað, dimmar stofur, einstaklega ljótt gólfefni, m.a. í svefnherberginu þar sem var svona gulnuð sumarbústaðarfura. Allt í allt út frá myndum af dæma (sem segja auðvitað ekki nærri því allt, ég geri mér grein fyrir því) fremur lásí húsnæði. Brunabótamatið sagði líka sína sögu, ca. 10 milljónir. Fasteignamatið var öllu hærra, tæpar 18 eða 19 milljónir og ásett verð.... 50 MILLJÓNIR! Eruð þið að grínast í mér? Vill einhver útskýra þetta fyrir mér? Er þetta það verð sem seljendur búast við að fá fyrir eign sína? Og svo brennur kofinn og þá fær maður 1/5 af því sem maður keypti djönkið á? Jú jú, eins og tekið var fram í auglýsingunni þá er útsýnið úr svefnherberginu einstakt, "beint út að Hallgrímskirkju" (!) en er það 50 milljón króna virði? Það er auðvitað ekkert að marka mig, úthverfarottuna sem ólst upp í gettóinu og flutti svo í miðbæinn og bjó þar í rúmt ár og var eiginlega ekkert að fatta rómantíkina við það. Fannst bara "ógisslega þægilegt að þurfa ekki að taka leigubíl heim af djamminu". Það er auðvitað til fólk sem vill hvergi annars staðar vera en í 101 Reykjavík og það er líka í fínu lagi, en er maður tilbúin til að leggja allt í sölurnar til að komast í hinn bóhemíska anda miðbæjarins? Ég er alla vega fegin að ég er ekki 101-manneskja, líklega yrði ég alltaf hálf ólukkuleg á Íslandi, vitandi að ég ætti ekki sjens í að kaupa mér fasteign á draumastaðnum og yrði að láta mér nægja að húka í úthverfunum eða-haldið ykkur fast-úti á landi! Nei, ætli ég muni ekki bara útiloka 101 úr fasteignaskoðun minni næstu mánuðina til að koma í veg fyrir annað eins sálrænt uppþot og ég varð fyrir í morgun. Ja hérna hér. Jæja, nú er ég líklega búin að jafna mig á þessum æsingi og get þá farið að vinna aftur. Have a nice day hvar sem þið eruð stödd, í 101 eða 111 Reykjavík og allt þar á milli og þess utan...