Ég fékk þetta sent frá eiginmanninum, veit ekki hvaðan hann fékk þetta en skemmtilegt er það:
Þessa færslu ætla ég að helga skemmtilegustu stundunum frá tíma útrásarinnar. Ég ætla að biðja ykkur að hjálpa mér að rifja þær upp.
- Hannes Smárason og Jón Ásgeir í Gumball kappakstrinum.
- Tom Jones að syngja fyrir veislu útrásarvíkinga um áramót í London.
- Elton John í afmæli Ólafs Ólafssonar.
- Existabræður á þyrlunni að kaupa pylsu.
- Þegar Fréttablaðið kaus Hannes Smárason sem markaðsmann ársins.
- 50cent í partíi Björgólfs yngri í Karíbahafinu.
- Tónleikar Stuðmanna í Albert Hall.
- Galaveisla Glitnis í Laugardalshöll.
- Þegar forseti Íslands veitti Baugi útflutningsverðlaun forsetans. Jafnvel þótt Baugur flytji ekkert út, nema kannski fjármagn.
- Kynningarfundurinn í London þegar næstum því var búið að selja orkulindirnar í hendurnar á Hannesi, Jóni Ásgeiri og Bjarna Ármannssyni.
- Partíin á Three Vikings snekkjunni.
- Uppboðið þar sem selt var ómálað verk eftir Hallgrím Helgason fyrir 20 milljónir.
- Laugardagarnir í stúkum íslensku bankanna og fjármálafyrirtækjanna á enskum knattspyrnuvöllum.
Það eru miklu fleiri dæmi. Endilega hjálpið mér að rifja þau upp!

|