
Annars er fátt í fréttum, ég pantaði flugmiða fyrir okkur mús í fyrradag; við fljúgum til Osló 3. júní og komum aftur heim 28. júní. Fjölskyldufaðirinn keyrir hins vegar á áfangastað því við erum með svo mikinn farangur; barnastól, leikföng, ferðatöskur... og svo verður líka gott að vera á bílnum svo við getum farið í stuttar ferðir um helgar og reynt að hafa þetta svolítið sumarfríslegt. Við erum ekkert í miklu stuði fyrir lestar og strætó, æ það er ósköp leiðinlegt finnst okkur. Hundurinn fer á hótel sem búið er að panta fyrir hana, voðalegur lúxus. Hún hefur verið þarna áður og leiddist það alls ekki, alla vega var hún ekkert spennt að koma með okkur aftur heim þegar við sóttum hana eftir síðasta frí (það segir vonandi meira um gæði hótelsins en bresti okkar sem hundaeigendur!). Henni finnst eflaust gaman og mikil tilbreyting í því að vera með heilum flokk af hundum á hverjum degi í stað þess að hafa nær eingöngu kompaní af okkur gamla settinu og smábarninu.
Nú, svo förum við til Íslands 6. júlí. Á dagskránni er eins og áður sagði að borða fullt af fiski og bragðaref frá Snælandi á hverjum degi (minnst 1 á dag), fara í sund, hitta vini og ættingja, fara í bústað... Þetta verður voða næs. Ekki er verra að mín kæra vinkona Abba verður búin að eignast frumburðinn (það ætti nú að gerast á næstum tveimur vikum) og Loftur frændi og Hildur kærastan hans eignast sitt fyrsta barn í júní. Svo á Birna vinkona von á sínu fyrsta barni í ágúst og sömuleiðis Daníel frændi og Halla kærastan hans. Við frændsystkinin ákváðum að gera þetta svona, eignast börn með tveggja mánaða millibili; Loftur byrjar í júní, svo kemur Daníel í ágúst og svo ég í október. Tveimur mánuðum seinna, um jólin sem sagt, ætlum við svo að halda sameiginlega veislu með þemanu frjósemi. Þetta síðastnefnda er nú reyndar bara bull. Kom meira að segja frekar illa út á prenti.
Farin að vinna...