Einhvern veginn finnst mér eins og ég hafi notað þennan sama titil fyrir eigi svo löngu síðan, kannski þegar við komum heim frá Noregi? Alla vega... við Anna Dúfa erum komnar aftur heim til Kaupmannahafnar eftir dásamlegt frí á Íslandi! Eins og alltaf höfðum við nóg að gera við að heimsækja vini og ættingja en við gáfum okkur líka tíma til að hreinlega gera ekki neitt, sofa og hvíla okkur barasta. Við gátum heldur ekki annað því litla mús varð lasin, fékk eyrnabólgu og var algjörlega á skjön við sjálfa sig í 3 eða 4 daga, þá fór ég með hana til læknis en var sagt að þetta væri líklega bara tanntakan að pirra hana (hún er að taka 4 jaxla þessa dagana, jæks!). Mér fannst hins vegar dálítið undarlegt að læknirinn skyldi ekki líta í eyrun á henni en sagði samt ekki neitt. Næsta dag fór ég aftur með hana til læknis, þá á læknavaktina, því greyið litla hafði vaknað grátandi á hálftíma fresti alla nóttina. Sú læknisskoðun tók án þess að ýkja 2 mínútur-barnið með mikla eyrnabólgu á vinstra eyra. Við fengum kraftmikið sýklalyf sem virkaði það vel að barnið svaf vært í fyrsta skipti í marga daga-hún fékk fyrsta skammt kl. 10 um morgun og kl. 12 sofnaði hún úti í kerrunni sinni og svaf til 16! Næsta dag var hún hins vegar komin með útbrot um allan líkamann svo ég fór með hana aftur á læknavaktina því ofnæmi fyrir pensilíni getur verið ansi alvarlegt. Lækninum fannst líklegast að útbrotin stöfuðu af sýklalyfinu svo hún var látin hætta á því enda eyrnabólgan næstum horfin eftir einungis þrjá skammta af þessu undralyfi. Síðan hefur stúlkan bara sofið vært og verið eins og hún á að sér að vera, ljúf, skapgóð og yndisleg.
Nú, úr sjúkrasögunum yfir í sumarsögurnar. Svo ég segi ykkur í stuttu máli hvað við gerðum á Íslandi þá notuðum við fyrri vikuna okkar til að heimsækja ættingja Hjartar því hann fór aftur út til Köben viku á undan okkur. Við heimsóttum held ég alla hans nánustu ættingja, m.a. föðurömmu hans og móðurafa. Amma hans Hjartar hafði aldrei hitt Önnu Dúfu svo nú fannst okkur kominn tími til að þær hittust og það var auðvitað mjög gaman. Langafi hennar Önnu Dúfu hafði hitt hana í skírninni hennar og sagði einmitt eftir að hafa skoðað á henni litlu hendurnar að hún yrði ábyggilega listakona. Tengdamamma mín hefur einmitt sagt mér að hendurnar á Önnu Dúfu minni hana á hendur mömmu hennar, sem Anna Dúfa heitir í höfuðið á, og það var víst mjög listræn kona og flink í höndunum. Það er held ég fátt skemmtilegra en að pæla í því hvaðan börnin manns hafa hitt og þetta; á heildina litið mjög lík pabba sínum, með augnlitinn minn en eyrun hans Hjartar, hárlitinn frá pabba og munninn minn, nef úr föðurættinni og sömuleiðis hendur og svo á hún auðvitað fullt bara sjálf. Skapið, hmmm, ég kannast við margt frá sjálfri mér og móðurættinni minni en svo er líka margt í henni sem mér finnst ég hvergi hafa séð áður og er bara einhver skemmtileg samsuða af okkur pabba hennar og okkar fólki. Sniðugt og skemmtilegt.
Jæja, hvert var ég komin? Já fríið! Við héldum síðan upp á afmælið okkar, grilluðum læri og kvöldinu áður gerðum við tengdamamma mín 2 gallon af kartöflusalati, ansi góðu bara, og svo gerðum við ferskt salat og vorum með kaldar grillsósur og buðum svo upp á rauðvín. Þetta var bara mjög vel lukkað og það skemmtilega var að það komust næstum því allir sem við buðum og það gerist nú ekki oft, sérstaklega á sumrin. Því fann ég hins vegar fyrir þegar ég ætlaði að bjóða vinkonum mínum í kaffi helgina á eftir, þá var nánast engin heima af þeim sem ég náði í og allir á leiðinni út á land í bústað eða á ættarmót eða hreinlega af landi brott. En ég náði þó að hitta nokkrar af vinkonunum, m.a. Arngunni og Brynhildi og Helenu vinkonu sem býr í Brussel en var á Íslandi á sama tíma og ég og sömuleiðis Öbbu vinkonu og litlu músina hennar. Vonandi næ ég að hitta ykkur hinar þegar við komum til landsins næst, hvenær sem það verður.
Annars gengur allt vel, meðgangan gengur eins og draumur og mér líður bara vel þessa dagana; finn einstaka sinnum fyrir brjóstsviða og pínu bakverk en ekkert alvarlegt þó. Ég fer einmitt í skoðun á morgun, þá fyrstu í bráðum 2 mánuði og hlakka mikið til að heyra hjartsláttinn í litlu lúsinni og sérstaklega hlakka ég til að heyra hvað ljósmóðirin heldur um stærðina á barninu. Mér finnst ég sjálf vera orðin ansi mikil bumba, alla vega miðað við síðast, en það þarf samt ekkert að þýða að barnið sé eitthvað stærra. Ætli ég sé ekki bara öll dálítið slappari og bumban virki þess vegna stærri :) Ég gæti best trúað því.
Það er auðvitað fullt sem þarf að gera á heimilinu fyrir fæðingu lukkutröllsins, alla vega tókst mér að skrifa heila A4 síðu af verkefnum. Það mikilvægasta er að koma Önnu Dúfu vel fyrir í barnaherberginu, við erum einmitt að fara út og kíkja á barnarúm handa henni um helgina því mér var sagt að það væri gott að venja eldra systkinið á nýtt herbergi og nýtt rúm með góðum fyrirvara. Ég get alveg ímyndað mér að það sé full mikið sjokk að vera fleygt út úr hjónaherberginu og eignast lítið systkini sem hangir allan daginn framan á mömmunni á sama tíma. Þess vegna ætlum við að byrja á barnaherberginu fljótlega og byrja að venja hana á að sofa þar inni ein enda er hún farin að sofa nánast alla nóttina svo það ætti að ganga ágætlega. Nú, svo þarf að taka smá skurk á baðherberginu, þrífa eldhúsið og endurraða í skápana, finna barnaföt og þvo, finna barnahluti eins og brjóstagjafapúða og ömmustól og viðra úr því háaloftslyktina, og margt fleira. Ég sem hélt að ég væri svo sultuslök yfir þessu, ég er það nú reyndar og hef bara gaman af því að dunda mér við eitthvað svona heima fyrir og gera heimilið meira kósý. Um að gera að nota tækifærið og þrífa og fleygja drasli, ekki veitir nú víst af.
Jæja, nú er þetta að verða full kellingalegt blogg. Að lokum segi ég bara takk fyrir samverustundirnar á Íslandi kæru vinir og ættingjar, takk fyrir bíóferðina stórskemmtilegu elsku Brynja og Helga og alla göngutúrana um Mosó pabbi minn og... ég gæti haldið endalaust áfram en hætti núna því vinnan kallar :)

