Í dag ákvað ég að vera heima og vinna. Það eru nánast allir í vinnunni farnir í páskafrí, taka sér aukafrí þessa þrjá daga fram að löglegu páskafríi og skella sér á skíði til Svíþjóðar eða eitthvað. Mér fannst þess vegna frekar kuldalegt að sitja aaaalein úti í vinnu svo ég fór bara í morgun og sótti tölvuna mína-fartölvu sem sagt, ekki stóra hlunkaheimilistölvu ef þið voruð að sjá það fyrir ykkur-og kom svo aftur hingað heim. Ég komst reyndar að því þegar ég kom í vinnuna að það voru 3 konur í vinnunni svo þetta hefði nú ekkert verið svo trist en þar sem ég hafði leyft Söshu að koma með í bílinn þá varð ég að fara heim aftur. Á leiðinni heim ákvað ég að koma við í bakaríi og þá liggur leið manns fram hjá hinum svokallaða hundaskógi, þ.e.a.s. skóginum þar sem Sasha fær að hlaupa laus og hittir oft fullt af öðrum hundum. Hún þekkir þetta svæði og var löngu farin að hágráta af æsingi og taugatrekkingi í skottinu svo ég hafði ekki hjarta í mér til að bruna fram hjá skóginum án þess að koma aðeins við. Svona lætur maður allt eftir þessum "börnum" sínum :) Nú, það var svo sem ekki slæmt að komast aðeins út í náttúruna í þessu líka dásamlega veðri sem er hérna í dag, yndislega hlýtt en samt smá gola og sólskin. Mmmm, ekki dónalegt að byrja daginn á stuttum göngutúr í skóginum í svona rjómablíðu. Svo fórum við í bakaríið og keyptum rúnstykki og súkkulaðiskonsur sem reyndust vera gjörsamlega nýbakaðar með stökkri skorpu og lungamjúku innihaldi... þið skiljið. Nú, svo er ég bara komin heim í huggulegheitin og ætla að sitja hér og vinna af kappi þar til þær hringja af leikskólanum þegar Anna Dúfa er vöknuð upp úr kl. 14, þá fer ég út og sæki skottið.
Fengum annars páskaeggjasendingu frá mömmu og pabba í síðustu viku, við hjónin fengum egg nr. 7 frá Nóa og Síríus og unginn fékk egg nr. 2. Páskaeggin komu í þessum líka fína kassa sem litla páskakanínan er búin að dunda sér mikið við :) Sjá ofangreinda ljósmynd...
Fengum annars páskaeggjasendingu frá mömmu og pabba í síðustu viku, við hjónin fengum egg nr. 7 frá Nóa og Síríus og unginn fékk egg nr. 2. Páskaeggin komu í þessum líka fína kassa sem litla páskakanínan er búin að dunda sér mikið við :) Sjá ofangreinda ljósmynd...
Nú, best að snúa sér að alvöru lífsins. Mér þykir ekki líklegt að ég bloggi aftur fyrr en í næstu viku svo ég óska ykkur bara gleðilegra páska!
Halló halló, hvað varð um vorveðrið sem ég var að monta mig af nokkrum línum ofar? Það er farið að snjóa takk fyrir! Oh well, huggulegt samt sem áður...

