Sýnir færslur með efnisorðinu gjöf. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu gjöf. Sýna allar færslur

fimmtudagur, desember 20, 2007

BÚHÚÚÚÚÚÚÚ!


Ætlar engin(n) að kvitta fyrir lesturinn á þessum síðustu færslum mínum fyrir jól? Ég er búin að skrifa eins og vindurinn undanfarna viku en ég held að það séu ca. 2 búnir að kvitta :( Ekki það, þið eruð eflaust öll upptekin við jólaundirbúning en ef mér þætti samt agalega gaman að sjá hverjir kíkja við.

Hó, ég var næstum því búin að gleyma að segja ykkur hvað ég fékk í jólagjöf frá DTU-sem starfsmaður við skólann fæ ég auðvitað gjöf og tataramm, í ár var það (sneriltrommusóló)... FJÖLTENGI!!! Þar var ég aldeilis heppin, ha? Flatskjár hvað! Fjöltengi er án efa gjöf ársins 2007 og ykkur er frjálst að stela þessari góðu hugmynd ef ykkur vantar hygmyndir að gjöfum fyrir vini og vandamenn, ég tala nú ekki um fyrir kærastann/kærustuna. Rómantískt!

Jæja, farin að vinna. Rómantískar jólakveðjur frá DTU!

miðvikudagur, desember 19, 2007

Ég fæ jólagjöf, jólajólagjöf

Á laugardaginn næsta fæ ég aldeilis fína jólagjöf-píanó! Ég er búin að leita lengi að ódýru hljóðfæri því ég einfaldlega tími ekki að kaupa mér nýtt píanó enda eru þau mjög dýr og við eigum ekki eftir að búa hérna nema fáein ár í viðbót, þ.e.a.s. í Danmörku. Ég ákvað þess vegna að leita mér bara að einhverju gömlu hljóðfæri og fann þetta í gegnum Den Blå Avis. Ódýrt en ákaflega fallegt og líka gott að spila á það. Ég þarf bara að láta stilla það, það er dálítið falskt eins og er. Ég geri það bara í janúar eða febrúar þegar tími og tækifæri gefst. Myndirnar eru sem sagt af bjútíinu-bjútíinu MÍNU eftir 3 daga! Takk kæri jólasveinn :-*

miðvikudagur, desember 05, 2007

Aðventan í Köben

Þetta hefur verið alveg fínasta aðventa, það sem af er liðið af henni að minnsta kosti. Þórelfur mamma hans Hjartar kom til okkar í heimsókn á þriðjudaginn í síðustu viku og fór heim í gær. Hún er held ég búin til úr gulli hún Þórelfur, hún er svo góð. Það er sko ekki til í mér eitthvað svona "oooh, tengdó, leiðindi...", það er ekki hægt með svona eðalmanneskju. Hún er bæði góð og skemmtileg, gjafmild og greind. Það var þess vegna frekar tregafullt að kveðja hana í gær en ég passaði mig bara á því að einbeita mér að því að hugsa um það hversu gaman það væri búið að vera hjá okkur. Þá varð þetta hreint ekkert svo tregafull kveðjustund, þótt ég hefði alveg viljað hafa hana hjá okkur áfram að prjóna lopapeysur á restina af familíunni (Anna Dúfa fékk eitt stykki, sjá myndir á ofangreindum hlekk) og kjafta við okkur og segja okkur sögur úr uppvextinum með systkinum sínum níu og foreldrum. Mmmmm, huggulegt.
Jæja, annars er orðið ansi jólalegt hjá okkur, ég er búin að skreyta dálítið; hengja upp seríu í stofuna og tvo glerkransa sem Þórelfur bjó til handa mér og svo lét ég búa til eitt piparkökuhjarta með nafninu hennar Önnu Dúfu sem ég hengdi upp. Það er meira að segja ennþá kökuilmur af því. Vonandi að það breytist ekki í e-a verri lykt þegar líða tekur á aðventuna.
Svo er ég búin að kaupa allar jólagjafir sem áttu að fara til Íslands, afgreiddi það allt á laugardaginn var. Ég fór með gullkonunni ofangreindu og verslaði milljón gjafir á 2 tímum og svo var öllu pakkað inn þegar færi gafst á kvöldin. Nú á ég bara eftir að kaupa handa Hirti og mömmu og pabba en er búin að ákveða hvað þau eiga að fá. Og jú, líka handa tengdaforeldrum mínum en ég er líka búin að ákveða hvað þau eiga að fá. Ég skrifa alltaf "ég er búin að ákveða", en Hjörtur fær alveg að vera með í ráðum. Svolítið alla vega.

Nú er ég hins vegar orðin svo þreytt að ég er að leka út af. Byrjaði í náminu á mánudaginn og þar með komin í 100% stöðu sem þýðir vinna frá 9-17. Úff.. Hjörtur vinnur frá 7-15 til að sækja snótina dálítið snemma en ég mun skila henni á morgnana. Ætlum að sjá hvernig þetta kemur út núna í desember alla vega.

Hafið það gott og njótið aðventunnar. Ekkert stress, verið þið hress...
Jólakveðjur frá Hemma Gunn aka Ragnhildur Gunn