Sýnir færslur með efnisorðinu Þórelfur. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Þórelfur. Sýna allar færslur

miðvikudagur, desember 05, 2007

Aðventan í Köben

Þetta hefur verið alveg fínasta aðventa, það sem af er liðið af henni að minnsta kosti. Þórelfur mamma hans Hjartar kom til okkar í heimsókn á þriðjudaginn í síðustu viku og fór heim í gær. Hún er held ég búin til úr gulli hún Þórelfur, hún er svo góð. Það er sko ekki til í mér eitthvað svona "oooh, tengdó, leiðindi...", það er ekki hægt með svona eðalmanneskju. Hún er bæði góð og skemmtileg, gjafmild og greind. Það var þess vegna frekar tregafullt að kveðja hana í gær en ég passaði mig bara á því að einbeita mér að því að hugsa um það hversu gaman það væri búið að vera hjá okkur. Þá varð þetta hreint ekkert svo tregafull kveðjustund, þótt ég hefði alveg viljað hafa hana hjá okkur áfram að prjóna lopapeysur á restina af familíunni (Anna Dúfa fékk eitt stykki, sjá myndir á ofangreindum hlekk) og kjafta við okkur og segja okkur sögur úr uppvextinum með systkinum sínum níu og foreldrum. Mmmmm, huggulegt.
Jæja, annars er orðið ansi jólalegt hjá okkur, ég er búin að skreyta dálítið; hengja upp seríu í stofuna og tvo glerkransa sem Þórelfur bjó til handa mér og svo lét ég búa til eitt piparkökuhjarta með nafninu hennar Önnu Dúfu sem ég hengdi upp. Það er meira að segja ennþá kökuilmur af því. Vonandi að það breytist ekki í e-a verri lykt þegar líða tekur á aðventuna.
Svo er ég búin að kaupa allar jólagjafir sem áttu að fara til Íslands, afgreiddi það allt á laugardaginn var. Ég fór með gullkonunni ofangreindu og verslaði milljón gjafir á 2 tímum og svo var öllu pakkað inn þegar færi gafst á kvöldin. Nú á ég bara eftir að kaupa handa Hirti og mömmu og pabba en er búin að ákveða hvað þau eiga að fá. Og jú, líka handa tengdaforeldrum mínum en ég er líka búin að ákveða hvað þau eiga að fá. Ég skrifa alltaf "ég er búin að ákveða", en Hjörtur fær alveg að vera með í ráðum. Svolítið alla vega.

Nú er ég hins vegar orðin svo þreytt að ég er að leka út af. Byrjaði í náminu á mánudaginn og þar með komin í 100% stöðu sem þýðir vinna frá 9-17. Úff.. Hjörtur vinnur frá 7-15 til að sækja snótina dálítið snemma en ég mun skila henni á morgnana. Ætlum að sjá hvernig þetta kemur út núna í desember alla vega.

Hafið það gott og njótið aðventunnar. Ekkert stress, verið þið hress...
Jólakveðjur frá Hemma Gunn aka Ragnhildur Gunn