mánudagur, janúar 28, 2008

Allt við það sama í DK

Jæja, þá er þessi helgi liðin og enn ein vikan að byrja. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, ekki satt? (og tókuð þið eftir hvað þessi setning var ljóðræn hjá mér?)
Það gengur allt prýðilega hjá okkur hér í DK; barnið unir sér á vöggustofunni og er farin að borða eins og herforingi, alla vega eins og lítill herforingi. Hún er farin að prófa sig áfram með að drekka sjálf úr könnunni sinni og verður alltaf jafn hissa þegar henni tekst að koma upp í sig einum sopa! Bregður alltaf en lítur svo stolt á okkur Hjört. Af skólamálum er fátt að frétta, þannig séð, Hjörtur er að fara til Stokkhólms í næstu viku og í lok mánaðarins fer ég til Grænlands í fimm daga. Ég hlakka nú bara svolítið til, á að halda kynningu á ráðstefnu sem verður haldin í Sisimiut og þess utan ætlum við, ég og leiðbeinendurnir mínir þrír, að setjast niður og ákveða út á hvað rannsóknirnar mínar eiga að ganga næstu 3 árin. Við erum svona með nokkuð grófa mynd af því en ætlum að fastákveða það á þessum fundi. Ég þarf nefnilega að skila af mér námsáætlun í lok apríl sem svokölluð doktorsnámsnefnd hér við skólann þarf að samþykkja. Í þessari áætlun þarf maður að tilgreina út á hvað rannsóknirnar eiga að ganga, hvaða bækur maður ætli að lesa, hvaða áfanga maður ætli að taka, hvaða ráðstefnur maður ætli á, hvort maður stefni á að skrifa og fá birtar (eða að reyna að fá birtar) e-r greinar o.s.frv. Það verður voðalega gaman að geta sett þetta niður fyrir sig og sjá þetta svona betur fyrir sér. Akkúrat núna er þetta svolítið losaralegt, ég veit bara að ég verð í þessu námi í 3 ár í viðbót en ekkert nákvæmlega hvað ég er að fara að gera :)

Nú, en aftur að Grænlandi. Í þau tvö skipti sem ég hef farið til Grænlands hefur verið sumar og því alls ekki fært að gert allt það sem mér þykir mest spennandi og langar að prófa. Nú er ég að vona að það verði ekta vetur þegar við komum með miklum snjó og kulda. Norski leiðbeinandinn minn er mikill skíðamaður og mér finnst upplagt að hann fái að sjá að ég hef hæfileika á ýmsum sviðum, ekki bara á skólphreinsisviðinu, og þess vegna ætlum við að skella okkur á gönguskíði, ég og fleiri konur hér úr deildinni. Engin okkar hefur prófað það áður svo ég sé fyrir mér að við verðum álíka rennilegar og flokkur kálfa í kraftgöllum með skíði bundin neðan á lappirnar. Fyrir utan skíðaíþróttirnar ætlum við að nýta frítímann til að fara á hundasleða ef færi gefst á því! Það er eitthvað sem mig hefur dreymt um að prófa síðan ég var unglingur og nú gefst líklega tækifæri til að láta drauminn rætast. Þetta verður endalaust skemmtilegt! Það eina óskemmtilega við þessa ferð verður fjarveran frá Önnu Dúfu, 4 nætur er ansi mikið í mínum huga en hún á nú góðan pabba litla músin svo hún verður í traustum og góðum höndum :)

Jæja, nú þarf ég að fara að vinna að þessari kynningu sem ég var að tala um. Hafið það gott... (mjög svo andlaus endir)