laugardagur, október 25, 2008

Ekkert að frétta...

...annað en að ég hellti sjóðandi vatni yfir bumbuna á mér og uppskar 3 stórar brunablöðrur á bumbuna og sár. Hafi drengurinn ætlað sér að koma í heiminn í nótt þá er ég eflaust búin að hræða hann svo mikið að hann lætur ekki sjá sig fyrr en í fyrsta lagi um mánaðamótin! Ætli ég verði ekki bara send í gangsetningu í byrjun nóvember, svei mér þá. Það verður þá í síðasta lagi 6. nóvember.
Annars er ég merkilega róleg, miklu rólegri en ég hefði haldið svona miðað við að vera gengin 2 daga fram yfir, hafandi haldið í 9 mánuði að ég myndi fæða í allra síðasta lagi 23. október og líklegast fyrir settan dag. Ég er til dæmis mun rólegri núna en ég var á mánudag, þriðjudag og miðvikudag. Svo þegar fimmtudagurinn, hinn margumtalaði SETTI DAGUR, var liðinn þá var eins og ég yrði bara nokkuð slök. Auðvitað er ég spennt, eða réttara sagt að deyja úr spenningi yfir því að sjá litla hnoðrann en ég er ekkert frústreruð eða geðvond.. eða það held ég að minnsta kosti ekki! Kannski er þó vissara að spyrja Hjört álits hvað þetta varðar...

Jæja, ég ætla að fara að horfa á e-a bíómynd þar sem Mike Myers leikur kolrangeygðan starfsmann hjá flugfélagi, allt of vel girtur og sinnir því starfi að þjálfa nýjar flugfreyjur í starfi. Frekar sjúklegur karakter sýnist mér.

Góða helgarrest!