fimmtudagur, október 23, 2008

Í tilefni frjósemi og hamingju :)

Þetta er eitt það fallegasta sem ég hef séð lengi. Og nei, það er ekkert að gerast hjá mér en drengurinn hefur svo sem ennþá 14 tíma upp á að hlaupa. Ég er annars sultuslök, veit bara ekki hvað ég á að finna mér til dundurs í dag, kannski ég afþíði frystinn? Guð en ótrúlega boring! Ég held ég sitji frekar og horfi á þetta myndband aftur og aftur og borði kanelsnúða. Svo er líka ný færsla hérna fyrir neðan...
Njótið áhorfsins!