fimmtudagur, október 23, 2008

SETTUR DAGUR!

Langar bara að benda ykkur á litla barnið sem liggur hérna til vinstri á síðunni. Þar segir sem sagt "0 weeks and 0 days to go". Ótrúlegt hvað þetta hefur liðið hratt. Nú er bara að sjá hvort drengurinn verði jafn stundvís og systir hans sem fæddist á settum degi. Ég man að ég vakti til kl. 2 nóttina áður en ég átti Önnu Dúfu, þá sat ég reyndar og skrifaði í lokaverkefninu mínu en núna sit ég og sinni mjög svo óprófessjónal verkefni; sit og er að hlusta á Queen í bland við Ragnhildi Gísladóttur syngja "Eitt lítið jólalag" í riiiiisastórum heddfónum! Mér finnst einhvern veginn mjög svo viðeigandi að vaka til 2 þessa nótt fyrir settan dag. Maður veit aldrei nema það hafi verið vakan sem gerði gæfumuninn 14. janúar 2007! Hvað veit maður?!

Dagurinn var annars mjög fínn, byrjaði á því að fara með lúsina mína á leikskólann og svo fór ég ásamt ferfætlingnum í morgunkaffi til Völu. Eftir það hélt ég heim á leið og lagði mig í heila 2 tíma, sem er líklega ástæðan fyrir hinum ótrúlega hressleika akkúrat núna. Sótti síðan leikskólaskottið og við fórum heim að dunda okkur og svo út að leika. Eyddi síðan kvöldinu í að baka snúða sem ég einhverra hluta vegna er búin að vera með á heilanum undanfarna daga; kanelsnúða með marsípani eftir uppskrift frá Brynhildi bestaskinni vinkonu. Það var greinilega vel þess virði að hafa verið með þessa snúðaþráhyggju því þeir bragðast hreint wunderbar vel! Magnið varð reyndar brjálæðislegt, er að hugsa um að fara með ca. 20 stykki á vöggustofuna á morgun og fara svo bara út í strætóskýli og deila ca. 100 stykkjum út til þreyttra og svangra nemenda sem hanga og bíða eftir hinum vonlausa strætisvagni sem kemur iðulega of seint. Nú, restina, ca. 40 stykki, get ég svo dundað mér við að borða sjálf.

Nú ætla ég hins vegar að fara að bursta tennur og fara að sofa enda klukkan farin að nálgast 2 og músin vaknar víst alveg ábyggilega á sínum vanalega tíma þótt mamma hennar sé í syngjandi sveiflu langt fram á nótt, núna að hlusta á Stevie Wonder syngja "Isn't she lovely" sem var einmitt spilað á Rás 1 eða 2 daginn sem ég fæddist með kveðju til mömmu frá fyrrum vinnufélögum hennar á Útvarpinu.

...og svo að lokum þá var bumbumyndin að þessu sinni tekin í kvöld, sem sagt 39 vikna og 6 daga gömul bumba takk fyrir. Á barnalandi eru síðan fullt af nýjum og gömlum bumbumyndum ásamt myndum af aðalstjörnu þeirrar síðu.