laugardagur, október 18, 2008

Barnseignarleyfið og bumban 39 vikna og 2 daga gömul

Jæja. Það var ýmislegt sem ég ætlaði mér að gera í barnseignarleyfinu en bjóst einhvern veginn við að ég myndi ekki nenna að framkvæma allt sem stóð á what-to-do-listanum sem ég var búin að gera (ég ELSKA lista og geri lista yfir allt!). Nú er ég hins vegar búin með hvert einasta atriði á listanum sem er dálítið sorglegt því nú tekur bara biðin við. Þetta er það sem ég er búin að dunda mér við undanfarnar 2 vikur síðan leyfið hófst:

  • Ganga frá fötum litla bróður og gera herbergið hennar AD endanlega klárt

  • Fara í klippingu

  • Fara í plokkun og handsnyrtingu

  • Fara í bíó með eiginmanninum

  • Fara í bæjarferð og á kaffihús

  • Klára að skrifa útdrátt úr grein (grein sem ég er ekki búin að skrifa reyndar, þannig að þetta var svona ímyndaður útdráttur)

  • Ljúka síðustu smáatriðum í vinnunni, alls konar lítil verkefni sem náðist ekki að klára fyrir leyfið

  • Baka fílakaramelluköku (hún var lovely, takk fyrir uppskriftina Arngunnur mín)

  • Klára sænsku krimmabókina mína

  • Stooppa í gat á nýja sængurverinu hans litla snúðs

Þetta er svona það sem ég man eftir. Mikið af tímanum hef ég nú bara eytt í tölvugláp en því miður ekki nógu mikið í svefn og hvíld. Ég lofa sjálfri mér því t.d. á hverjum morgni þegar ég skreiðist fram úr með Önnu Dúfu upp úr klukkan 7 að ég muni fara snemma að sofa að kvöldi þess tiltekna dags. Það gerist því miður mjög sjaldan, ég veit ekki hvaða hangs er á mér öll kvöld. Það kannast víst margir við þetta, ekki satt?

Annars er allt gott að frétta af mér svona heilsufarslega séð. Ég var að vonast til að allt færi af stað eftir gærdaginn en þá fór ég í bæinn með Völu og gekk allt Strikið, fór í búðir og mátaði skó, borðaði heavy kryddaðan börger á BurgerKing en það virðist ekki hafa virkað. Ég er samt alltaf að fá einhverja litla verki en samt ekkert "alvöru". Ég er farin að bíða mjöööög spennt eftir því mómenti sem ég fæ fyrstu hríðina, get hreinlega ekki beðið! Við erum búin að ordna öllu með pössun fyrir AD og það er almennt allt tilbúið fyrir komu litla snúðsins; rúmið hans er tilbúið og vagninn sömuleiðis, búið að sjóða fyrir hann pínuaggalitlar snuddur, pakka heimferðarfötum fyrir hann niður í tösku (og sömuleiðis á mömmuna). Nú tekur þess vegna bara biðin við...

Læt að lokum fylgja með bumbumynd vikunnar sem sýnir hversu praktísk bumban er orðin; ég get notað hana sem hillu undir músina! Þetta er samt vonandi ein af síðustu bumbumyndunum. Góða helgi öll sömul.