Já, ég er svo sannarlega farin að bíða. Þegar ég gekk með Önnu Dúfu var ég sannfærð um að ég myndi ganga minnst viku fram yfir svo ég var ekkert farin að bíða. Ég var meira að segja búin að skipuleggja fund 14. janúar með einum af kennurunum úti í deild hjá mér því hann ætlaði að hjálpa mér með ákveðinn hluta lokaverkefnisins. Ég var alveg handviss um að stúlkan myndi fæðast í fyrsta lagi 20. janúar svo ég sat sultuslök alla daga og öll kvöld og skrifaði lus í verkefninu mínu. Ég man einmitt að ég sat til kl. 2 nóttina áður en Anna Dúfa fæddist og fékk svo fyrstu hríð 6 klukkustundum síðar.
Það að ég skyldi eiga á settum degi síðast hefur gert það að verkum núna, að ég er farin að bíða óþreyjufull eftir komu drengsins og var farin að gera það strax um helgina. Það hefur eflaust haft einhver áhrif á mig líka að mér var sagt af ljósmóður á spítalanum að það væri algengt að konur ættu aðeins fyrir tímann ef það liði stuttur tími á milli tveggja meðgangna.
Nú, svo sagði pabbi mér að hann hefði dreymt sjálfan sig í nótt í skemmtigarði með lítinn dökkhærðan dreng. Pabbi er ansi berdreyminn og hefur oft dreymt fyrir hluti og samtöl sem eiga sér jafnvel orðrétt stað einhverju síðar. Ekki það, þessi draumur hans mun auðvitað koma fram í raunveruleikanum fyrr eða síðar en ég er svona að vona að hann sé að dreyma fyrir því að hann fæðist mjöööög fljótlega.
Annars leiddist mér svo í gær að það var alveg sorglegt. Stundum er maður svona, ég hefði vel getað fundið mér eitthvað að gera en fannst ég ekki geta gert NEITT! Átti ekkert að lesa, engin verkefni hérna heima fyrir sem ég gat sinnt, og allt almennt frekar leiðinlegt. Í dag er ég hins vegar búin að finna mér nokkur góð verkefni, ég ætla að taka klæðaskápinn hans Hjartar í gegn-hann er vonlaus hvað varðar skipulag í skápum (segir Monica Geller konan hans og hristir höfuðið full vandlætingar) og þar sem ég hef lítið sem ekkert að gera þá ætla ég að ganga í þetta mál fyrir hann. Svo ætla ég að baka kanelsnúða þótt mér leiðist gerbakstur óskaplega. Það er samt eitthvað svo huggulegt við það að baka svona snúða og ennþá huggulegra að borða þá með ískaldri mjólk! Svo ætla ég að sofa alveg slatta. Ég er búin að lofa sjálfri mér því að leggja mig á hverjum degi fram að fæðingu, jafnvel þótt mér finnist ég ekkert þreytt. Það margborgar sig þegar kemur að fæðingunni og ég tala nú ekki um tímabilið á eftir sem getur verið erfitt þótt það sé auðvitað að mestu leyti bara dásamlegt.

En jæja, best að hella sér út í verkefni dagsins! Svo er bara að sjá hvort ég finni mér eitthvað að gera á morgun. Það má þá alltaf hanga í tölvunni ef í harðbakkann slær...

|