Sýnir færslur með efnisorðinu tannlæknir. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu tannlæknir. Sýna allar færslur

fimmtudagur, ágúst 14, 2008

Sófaskoðun og innlit í SM verslun

Svona næstum því! Við hjónin erum nefnilega farin að huga að því að kaupa okkur nýjan sófa en um daginn sá ég draumasófann okkar auglýstan á Den Blå Avis; myndirnar lofuðu mjög góðu og sófinn tæplega árs gamall svo við ákváðum að fara og kíkja á hann því eigendurnir vildu gjarnan selja á mjög góðu verði út af flutningi til útlanda. Þau feðginin sóttu mig þess vegna í gær eftir vinnu og við keyrðum inn í miðbæ Kaupmannahafnar og þræddum okkur inn þröngar götur með hjálp gps tækisins góða og enduðum við götu eigi svo langt frá Strikinu. Eftir langa mæðu fundum við stæði og HJ varð að taka Austin Powers taktana til að komast inn í stæðið, þ.e.a.s. bakka og keyra áfram millimeter í einu í ca. 10 mínútur. Mér var svolítið farið að líða eins og þegar ég var 16 ára í bíl með mömmu ef mér fannst hún keyra illa og langaði helst að hverfa inn í sætið á bílnum. Það þurfti nú reyndar ekki mikið til að maður dæi úr skömm á þeim aldri, en nóg um það. Eftir að hafa komist inn í stæðið fór að heeeellirigna en við hlupum út og ég æddi í vitlausa átt með barnið á mjöðminni, vafða inn í peysuna mína. Hjörtur náði þó að lóðsa mig í rétta átt og eftir smá stund fundum við húsnúmerið sem ég taldi mig vera fullvissa um að muna. Eigandinn hafði sem sagt skrifað mér tölvupóst með heimilisfanginu en mér láðist að biðja um símanúmerið. Mikil mistök því þetta var hreint ekkert íbúðarlegur inngangur sem tilheyrði þessu húsnúmeri. E-r dyrabjöllur voru þarna en engin þeirra merkt eiganda sófans. Nú voru góð ráð dýr og mér datt ekkert annað í hug en að hringja í pabba í vinnuna og biðja hann að athuga póstinn frá sófaseljandanum og athuga hvort þetta væri ekki rétt númer. Eftir mikið bras náði ég í pabba sem fann póstinn og jú jú, þetta var rétt húsnúmer. Eitthvað voru nú vegfarendur farnir að gefa mér og Hirti hornauga þar sem stóðum þarna dálítið brúnaþung inni í portinu og ég með barnið hálfblautt hangandi á mjöðminni með bumbuna út í loftið. Allt í einu verður mér litið til hliðar inn um dyrnar sem ég stóð við. Það var þá inngangur að þessari líka glæsilegu SM-sadómasó-verslun með tilheyrandi gluggaútstillingum. Þar var kannski skýringin komin á augngotum fólks? Ætli fólk hafi ekki hugsað: "Kræst, gátu þau ekki alla vega fengið pössun fyrir barnið áður en þau fóru út í SVONA verslunarleiðangur??"
Nú, þetta endaði svo með því að ég ýtti á allar bjöllurnar og að lokum svaraði e-r stelpa sem reyndist vera sófaseljandinn. Við vorum fljót að skoða sófann; hann var forljótur og blettóttur, þvert á það sem stelpan hafði sagt mér, og svo var hann allur hálf kraminn og harður að sitja á. Ég sá strax fyrir mér öll partýin sem höfðu verið í þessari íbúð, bæði út af staðsetningunni í bænum og svo voru stelpurnar sem bjuggu þarna ansi djammkenndar sjálfar. Það hafa eflaust ófáir fengið að "krassa" á þessum sófa. Mig langaði einhvern veginn ekkert mikið til að dröslast heim með þennan útdjammaða sófa og eiga svo að brjóstfæða litla drenginn þar eftir 2 mánuði. Æ nei. Við skelltum okkur bara á Makkdí við hjónin og ákváðum í snarheitum að bíða bara aðeins með sófakaupin og fara frekar og kaupa okkur glænýjan um mánaðamótin september/október. Ég á örugglega eftir að setja inn eina af mínum skemmtilegu skoðanakönnunum þegar nær dregur með mismunandi sófum. Þið bíðið örugglega spennt, get ég ímyndað mér!?

Nú, ég er annars heima núna; er að fara til tannlæknis og á að vera mætt eftir klukkutíma. Er eitthvað meira scary en tannlæknar? Ég held ekki. Þetta er reyndar bara almenn skoðun hjá mér en svo brotnaði upp úr jaxli um daginn og ég er dauðhrædd um að það verði einhver major aðgerð!

Jæja, best að skella sér í sturtu og taka eitt maníukast með tannburstanum svo ég geti mætt brosandi til tannsa á eftir.

þriðjudagur, desember 11, 2007

Hún hefur stækkað svolítið...


...litla pabbamúsin. Á þessari mynd var hún 2 mánaða og 2 daga gömul. Á föstudaginn næsta verður hún 11 mánaða, næstum því eins árs! Það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt og þetta ár hefur liðið EINSTAKLEGA hratt. Það er kannski af því að þetta hefur hreinlega verið skemmtilegasta og besta ár lífs míns, svei mér þá.

Annars er allt gott að frétta af okkur; Anna Dúfa fékk hlaupabóluna um daginn og í ofanálag fékk hún eyrnabólgu í hæ. eyra litla greyið. Hún er því búin að vera á pensilíni í 5 daga og svo fær hún panódílstíla við verkjunum :( En nú er þetta allt að koma og músin er hin kátasta, fór á vöggustofuna í gær og í dag og var víst mjög lukkuleg að komast aftur á meðal barnanna enda búin að vera heima hjá gamla settinu í 10 daga! Úff, þvílík leiðindi! Reyndar var amma Þó hjá okkur fyrstu 4 dagana í veikindunum og það var sko ekki leiðinlegt enda er hennar sárt saknað, ömmunnar með prjónanna :)

Svo fórum við til tannlæknis í morgun í fyrstu tannskoðun Önnu Dúfu við mæðgurnar. Við fengum m.a. barnatannkrem, ég hef aldrei notað svoleiðis því mér finnst það svo sætt en ég fékk útskýringu á því af hverju það er haft svona sætt. Ástæðan er sem sagt sú að það á að vera mjög greinilegur munur á bragðinu á fullorðins- og barnatannkremi svo börnin ruglist ekki á tannkremstúpum. Það kemur nefnilega fyrir að börn borða heilu túpurnar af tannkremi og þau geta orðið þrællasin í maganum af fullorðins tannkreminu vegna þess að flúorinnihaldið er hærra en í barnatannkremi. Þeim verður þess vegna ekki meint af því að borða barnatannkremið, alla vega ekki eins mikið :)
Svo mælti hún með því að ég keypti Zendium tannkrem því það innihéldi ekki súlfat (Natrium Lauryl Sulfate) sem oft er sett í tannkrem til að fá það til að freyða. Það er meðal annars notað í Colgate tannkrem. Vandamálið er að mörg börn eru víst með ofnæmi fyrir súlfati, svo það er betra að kaupa Zendium. Ég mun gera það hér eftir held ég. Og svo ég haldi nú upplýsingaflæðinu áfram þá mælti hún EKKI með því að maður keypti jurtatannkrem eða einhver svona heilsu/lífrænt "ræktuð" tannkrem því þau innihéldu ekki flúor en það eiga tannkrem að gera.

Ollræt hvað þetta er orðin leiðinleg færsla! Kræst!!! Þið sem nenntuð að lesa alla þessa færslu munið deffenettlí fá jólakort í póstkassann á næstu dögum!
Farin að vinna,
Ragnhildur tannálfur