...þegar þjófar far´á stjá. Þannig söng Bubbi í fyrrum uppáhalds laginu mínu, ef ég man rétt. Hér hafa kannski ekki margar þjófar verið á stjá en sumarið er alla vega komið í mínum huga. Í hugum Dana er þetta bara milt vor en fyrir mér er þetta tryllt sumar og mjög stutt í að ég dragi fram minipilsið og pínu-bikiníið (jiii hvað ég yrði smart í svoleiðis átfitti!). Helgin var full af sól, sumaryl og góðum stundum. Á laugardaginn fórum við á ströndina, hundinum og Önnu Dúfu til mikillar gleði og svo keyptum við okkur heimsins besta ís í tilefni góða veðursins. Ég fékk mér ísrétt sem samanstóð af þremur ískúlum og ís úr vél ofan á og að lokum einni krembollu ofan á öll herlegheitin! Mar er óléttur sko (lesist með Gyðu Sólar-tóni). Í gær fórum við á sveitabæ eigi svo langt frá heimili okkar, hálftíma akstur eða svo, á vorhátíð í tilefni þess að beljunum var hleypt út í gær. Þetta var ægilegt upplifelsi, aðallega fyrir litlu mús sem hefur aldrei séð kýr öðruvísi en á prenti. Svo fengum við mjólk og heimabakað brauð með spægipylsu sem gerð var á staðnum, óskaplega gott, og svo keyptum við okkur danska eplaköku með heilum haug af rjóma. Mmm! Ég þarf að fara að gera svoleiðis jömmí. Ákveðin í að bjóða upp á svoleiðis í næsta saumaklúbbi á Íslandi.Nú, svo borðuðum við fullt af góðum mat heima fyrir, ég gerði ansi gott ossó búkkó á laugardaginn og í gær vorum við með svínakótelettur. Á föstudaginn bakaði ég heimsins verstu gulrótaköku sem sykurgrísirnir alræmdu komu ekki einu sinni niður og þá er nú eitthvað mikið að!
Annars hef ég það fínt þessa dagana en ég er ansi lúin oft. Ég var að rifja það upp með sjálfri mér hvernig mér hefði liðið á meðgöngunni með Önnu Dúfu og komst að þeirri niðurstöðu að ég hefði verið miklu sprækari. Við nánari tilhugsun komst ég þó að því að líklega hefði ég verið alveg jafn þreytt en munurinn var sá að ég gat lagt mig þegar mér hentaði. Ég var í fyrsta lagi að vinna að lokaverkefninu mínu svo ég stjórnaði vinnutíma mínum gjörsamlega sjálf, öfugt við vinnuna í dag þar sem ég sit frá 8-15.30 eða 9-16.30. Svo er líka töluverður munur að eiga eitt lítið kríli sem þarf að hugsa um að loknum vinnudegi og þá getur maður ekki alltaf lagt sig þótt maður sé lúin og orkulítill. Síðustu viku hefur verið viðbjóðslega mikið að gera hjá mér við að klára skýrslu sem ég var að skrifa um meðhöndlun á rusli á Grænlandi, og Hjörtur þurfti að nýta hverja frístund um helgina til að vinna að skilaverkefni sem hann á að skila í dag kl. 13hundruð sharp! Það er þess vegna búið að vera pínu stress heima fyrir og lundin hjá mér oft búin að vera frekar ólétt-í bókstaflegri merkingu, haha! Æ ég vona samt að ég fari að hressast með hækkandi sól og að lund mín fari að léttast. Ég er að hugsa um að skella mér í sund x2 í viku og kaupa mér kannski e-a járnblöndu sem ég sá auglýsta sem á að vera góð í maga. Það kannski hressir mig við.
Jæja, áður en þetta verður of sjálfmiðað, sem þetta er nú þegar orðið, þá ætla ég að slútta þessari færslu og óska ykkur bara góðs vinnudags og almennt góðs dags.
Sjáumst svo í júlí, kæru vinir og ættingjar á Íslandi :)
