Sýnir færslur með efnisorðinu eyrnabólga. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu eyrnabólga. Sýna allar færslur

þriðjudagur, febrúar 12, 2008

Í fyrsta skipti í 1½ mánuð...

...svaf Anna Dúfa vært frá klukkan 20.30 til klukkan að verða 6 í morgun! Jeiiiii! Þá fékk hún að drekka hjá mömmz og svaf svo vært til kl. 8. Kannski er vökvinn að minnka í litlu eyrunum og kannski fer hún barasta að sofa betur litla músin? Hún var líka einkar kát þegar hún vaknaði og borðaði heil ósköp af bæði graut og brauði sem hún bleytti samviskusamlega í mjólkinni í könnunni sinni. Og munurinn á manni sjálfum þegar maður sefur almennilega! Jeminn eini! Mér leið hreinlega illa í gær, Anna Dúfa vaknaði nefnilega x4 þarsíðustu nótt og ég þarf á þessari önn að mæta kl. 7.30 á mánudögum og fimmtudögum til að geta farið heim kl. 15 (vinnuskyldan er bara 7,5 tímar hér í DK, lúxus?) því HJ er í áfanga á þessum dögum. Nú, meiningin er sem sagt að það okkar skilar Önnu Dúfu á vöggustofuna sé á bílnum, því strætóinn í sveitinni sem við búum í gengur bara x2 á klukkutíma og það má ekki miklu muna að maður missi af honum; ein óvænt bleyja þegar maður er að hlaupa út úr dyrunum og þá er maður allt í einu orðin mega seinn fyrir! Ég átti þess vegna að fara með strætó og eitthvað var ég taugaveikluð yfir því að þurfa að vakna svona snemma og að ég myndi þá missa af sveitabússinum, sem ég hef ekki tekið í meira en ár og var þess vegna alltaf að vakna þess á milli sem Anna Dúfa vaknaði æpandi. Úff. Ég get svo svarið það, ég var eins og undin tuska í vinnunni í gær og svona svefnleysi fer beint í taugakerfið á mér. Ég var últra viðkvæm allan daginn, mistúlkaði allt sem Hjörtur sagði og var stressuð og sveitt. Ekki bætti úr sök að ég hafði ekki tíma til að fara í sturtu og fór í vinnuna í ljótustu fötum í heimi! Ég sofnaði þess vegna glöð með Önnu Dúfu kl. 20.30 í gærkvöldi og er hreint eins og nýsleginn túskildingur í dag. Ekkert stress, bara sultuslök og engar ranghugmyndir og mistúlkanir hjá frúnni. Ég fer hins vegar að verða stressuð ef ég fer ekki að sinna vinnunni... Have a nice day öll sömul, vonandi ósveittan og óstressaðan!

föstudagur, desember 07, 2007

Föndursmöndur...

...múahahaha! Hver nennir svoleiðis?! Ekki ég! Undanfarin ár hef ég reynt að vera voðalega sniðug og listræn og hef sett mig í kreatívu stellingarnar fyrir hver jól, kveiki á reykelsum og fer í batíkmussuna mína, fæ Hjört til að lita hárið á mér með hennalit og hlusta á harikrisna-músík, sest svo niður og byrja að klippa og líma og föndra jólakort til saklausra vina minna og ættingja úti um allan heim. Árangurinn hefur verið misjafn og stemningin í kringum kortagerðina sömuleiðis. Tvö eða þrjú ár tókum við Arngunnur og Brynhildur okkur saman og gerðum kort í sameiningu sem voru, tja, skelfileg mörg hver! Þau áttu reyndar að vera það og okkur tókst svona líka andskoti vel til. Við unnum allar ljótukortakeppnir þau árin skal ég segja ykkur. En í ár hef ég ákveðið að leyfa batíkmussunni að liggja óhreyfðri í kommóðunni og nýtti mér nútímalega þjónustu ákveðinnar verslunar hér í Köben og "hannaði" jólakortin inni á heimasíðu þeirra og svo fæ ég þau bara send heim, glóðvolg úr prentmaskínunni þeirra og þá er ekkert eftir nema að skrifa utan á umslögin (sem fylgja líka með!). Þið getið því öll átt von á að fá fansísmansí jólakort ca. í næstu viku (þ.e.a.s. þið sem eruð dugleg að kvitta, þið hin fáið ekkert kort...). Þið megið annars endilega senda mér póst með heimilisfanginu ykkar ef þið búið á öðrum stað en í fyrra eða ef ykkur grunar að ég sé ekki með heimilisfangið ykkar.
Jæja, farin að vinna og dríf mig svo heim til litlu eyrnabólgumúsarinnar minnar og pabba hennar. Góða helgi öll sömul og góðan 2. sunnudag í aðventu!