föstudagur, desember 07, 2007

Föndursmöndur...

...múahahaha! Hver nennir svoleiðis?! Ekki ég! Undanfarin ár hef ég reynt að vera voðalega sniðug og listræn og hef sett mig í kreatívu stellingarnar fyrir hver jól, kveiki á reykelsum og fer í batíkmussuna mína, fæ Hjört til að lita hárið á mér með hennalit og hlusta á harikrisna-músík, sest svo niður og byrja að klippa og líma og föndra jólakort til saklausra vina minna og ættingja úti um allan heim. Árangurinn hefur verið misjafn og stemningin í kringum kortagerðina sömuleiðis. Tvö eða þrjú ár tókum við Arngunnur og Brynhildur okkur saman og gerðum kort í sameiningu sem voru, tja, skelfileg mörg hver! Þau áttu reyndar að vera það og okkur tókst svona líka andskoti vel til. Við unnum allar ljótukortakeppnir þau árin skal ég segja ykkur. En í ár hef ég ákveðið að leyfa batíkmussunni að liggja óhreyfðri í kommóðunni og nýtti mér nútímalega þjónustu ákveðinnar verslunar hér í Köben og "hannaði" jólakortin inni á heimasíðu þeirra og svo fæ ég þau bara send heim, glóðvolg úr prentmaskínunni þeirra og þá er ekkert eftir nema að skrifa utan á umslögin (sem fylgja líka með!). Þið getið því öll átt von á að fá fansísmansí jólakort ca. í næstu viku (þ.e.a.s. þið sem eruð dugleg að kvitta, þið hin fáið ekkert kort...). Þið megið annars endilega senda mér póst með heimilisfanginu ykkar ef þið búið á öðrum stað en í fyrra eða ef ykkur grunar að ég sé ekki með heimilisfangið ykkar.
Jæja, farin að vinna og dríf mig svo heim til litlu eyrnabólgumúsarinnar minnar og pabba hennar. Góða helgi öll sömul og góðan 2. sunnudag í aðventu!