Jæja, þá er Anna Dúfa búin að fara í sína fyrstu passamyndatöku. Við fórum í íslenska sendiráðið í morgun og sóttum um fyrsta passann hennar og sömuleiðis um nýjan fyrir pabba hennar. Myndin var alveg hreint ágæt sem var tekin af henni, hún var þó ekki eins glaðleg og hér að ofan enda dálítið alvarlegt mál að sækja um svona passa. Við fáum síðan nýju passana þeirra feðginanna senda með pósti eftir ca. viku. Aldeilis fín afgreiðsla.
Annars er alltaf voðalega gott og hressandi að fara niður í miðbæ þegar maður býr svona í úthverfi eins og við. Ég myndi ekki vilja búa með Önnu Dúfu og komandi litla systkini niðri í miðbæ Kaupmannahafnar en það er alveg dásamlegt að fara í smá göngutúr þar, eins og við gerðum eftir myndatökuna. Við fórum á kaffihús sem heitir Lagkagehuset, æðislegur staður! Þetta er svona sambland af bakaríi og kaffihúsi þar sem maður getur sest niður úti við glugga og fylgst með mannlífinu fyrir utan. Við hjónin plöntuðum okkur niður á barstóla við gluggann en passaportemúsin settist í gluggakistuna og fylgdist spennt með því sem fram fór á götum bæjarins. Hún er svo mikil urban-mús í sér, eins og ég hef alltaf sagt (annað en mamma hennar, alin upp í gettóinu, langt frá siðmenningu og kúltúr miðbæjarins), að hún hentist á fætur á kaffihúsinu þegar þjófavörn á nærliggjandi bíl fór af stað, og tók nokkur vel valin dansspor. Músík miðbæjarins sem sagt.
Nú erum við mæðgurnar komnar aftur heim í úthverfið í glampandi sól, barnið sefur úti í vagni undir sólfhlífinni en ég held mig innan dyra enda ekki mikill bógur í hita. Ég held ég lagi mér einn bolla af góðu kaffi og horfi svo á eins og eitt stykki Dr. Phil á meðan ég brýt saman þvottinn. Já, ég er sem sagt heima í dag út af verkfallinu á leikskólanum. Svo verðum við heima bæði á morgun (1. maí+uppstigningardagur, remember) og svo fer ég í vinnuna á föstudaginn. Frekar skrýtin vinnuvika. Í næstu viku tekur síðan rútínan aftur við því þá fer Anna Dúfa aftur á leikskólann.
Jæja, best að nýta tímann á meðan barnið sefur og slappa svolítið af og hafa það næs.
Takk fyrir lesturinn og munið endilega eftir að kvitta svo ég viti hver kemur hingað inn...



|