...ég er nú ögn nervus verð ég að viðurkenna. Þetta er munnlegt próf, eða svona kynning á verkefninu mínu sem ég skilaði í byrjun desember; Notkun þurrklósetta á Grænlandi. Sem sagt ekki lokaverkefnið mitt heldur "litla" aukaverkefnið sem varð óvart allt of langt. Úps. Ég á sem sagt að kynna verkefnið og niðurstöður þess kl. 10.15 í fyramálið og eftir það spyrja leiðbeinandi og prófdómari nokkurra spurninga og svo fer ég fram á gang og naga af mér allar neglur (það litla sem eftir er af þeim) og bíð á meðan þeir koma sér saman um einkunn. Svo kalla þeir aftur á mig og tarammmmm! Þá fæ ég einkunnina og annað hvort geng grátandi eða fagnandi aftur út. Vonandi samt fagnandi. Alla vega aðeins, svona til að eyðileggja ekki fyrir mér jólin.
Jæja, líklega best að æfa sig á kynningunni sem er, að ég held, frekar þurr og leiðinleg. Kannski ég skelli nokkrum myndum inn á glærurnar af jólasveinum og englum og einhverju öðru krúttlegu, ha? Myndi það ekki mælast vel fyrir í verkfræðingaskólanum? Setja síðan alveg brjálaða sándeffekta, sprengjur og ískrandi bílahljóð. Kannski ég prófi það...

...óskið mér góðs gengis í huganum.
Ragnhildur naglalausa og handsveitta
Ragnhildur naglalausa og handsveitta

|