...sem gekk glimrandi vel. Fékk 11. Þá er því lokið og nú mega jólin barasta fara að bresta á.
Við fengum annars risastóran böggul í morgun frá Íslandi með gjöfum frá mömmu og pabba og Baldvini bróður og svo var í pakkanum hangikjötslæri og rúgbrauð og flatkökur, lagtertur og Síríus súkkulaði og súkkulaðirúsínur og ég veit ekki hvað og hvað! Við vorum heillengi að veiða þetta allt saman upp úr kassanum og raða þessu góðgæti í ísskápinn.

Tveimur tímum síðar kom svo annar pakki, að þessu sinni með gjöfum frá Helgu frænkuvinkonu og Gunnari kærastanum hennar. Takk kærlega fyrir öll sömul! Jólakortin ykkar fara í póst í vikunni ásamt síðustu gjöfum :)
Nú fer ég hins vegar að fá mér kaffi og skrifa í lokaverkefninu.

Hafið það gott öll sömul!

|