Þetta er svo sem ekki neinn leikur með stóru L-i, ég fór bara að hugsa um það hvað það væri sem mér þætti vera sérstaklega jólalegt og hvað ég tengdi við jólin. Það er voðalega misjafnt hjá fólki held ég; sumir tengja sérstakan mat við aðfangadag eða jóladag, ákveðin jólaboð sem eiga sér stað á hverju ári á sama stað, öðrum finnst nauðsynlegt að steikja laufabrauð eða baka ákveðnar smákökusortir, enn öðrum finnst möst að setjast að borðum kl. 18hundruð sléttar á aðfangadag og svona mætti lengi telja. Mér finnst ansi skemmtilegt og krúttlegt að heyra hvað fólk tengir við jólin og nú ætla ég að telja upp nokkur af þeim atriðum sem ég tengi við aðfangadag og jóladag. "Leikurinn" felst síðan í því að þið skrifið nokkur atriði sem skipta ykkur máli í athugasemdirnar.
- Jólakveðjurnar á Gufunni á þorláksmessu
- Að þrífa íbúðina og skreyta jólatréð á þorláksmessu, og hlusta á hinar ofannefndu kveðjur á meðan
- Ég ólst ekki upp við neinn ákveðinn mat á aðfangadag, en það er samt alltaf eitthvað sérstakt bragð af matnum og alltaf dálítið svipað, sama hvort maður er með önd, hamborgarhrygg, gæs, rjúpur eða eitthvað annað. Ég held að þetta sérstaka jólabragð leynist í sósunni ;)
- Pakka inn síðustu gjöfunum, oftast fyrir þá sem maður býr með, að þorláksmessukvöld
- Hálfmánarnir hennar mömmu
- Ástandskökur (haframjöls- og rúsínusmákökur)
- Heitt súkkulaði á aðfangadagsmorgun
- Bræður mínir koma í heimsókn til mömmu og pabba á aðfangadag um miðjan dag og allir skiptast á gjöfum og tala dálítið hátt (eitt af því sem ég mun sakna í ár)
- Við vorum ekki vön að vera sest að borðum klukkan sex á aðfangadag nema kannski þegar ég var lítil og spenningurinn yfir pökkunum var að fara með mig (ég var oft bókstaflega græn af spenningi!) en eftir að ég fór að eldast man ég að við borðuðum oft frekar seint miðað við aðrar fjölskyldur. Það er hins vegar möst að hlusta á kirkjuklukkurnar á Gufunni klukkan 18 á aðfangadag og heyra hina gullnu setningu, "Kæru landsmenn, gleðileg jól", og kyssa fjölskylduna þegar klukkurnar hringja. Thank God fyrir internetið svo ég þurfi ekki að missa af kirkjuklukkunum í ár! Ég get þá kysst Hjört og Söshu á slaginu 18, eða réttara sagt á slaginu 19 hér hjá okkur.
- Jólaboð hjá systkinum mömmu á jóladag og hjá systkinum mínum á jóladagskvöld
- Ilmurinn af steiktu rauðkáli og soðnu hangikjöti á aðfangadag
- Hangikjöt í matinn á jóladagskvöld
- Lagið "Yfir fannhvíta jörð" með Pálma Gunnarssyni
- Heims um ból, en það má eiginlega bara hlusta á það á aðfangadag, það er of hátíðlegt til að hlusta á fyrir þann tíma finnst mér.
Þetta er nú svona það helsta sem ég man eftir. Ég bæti kannski við listann ef það dúkkar eitthvað fleira upp í teflonheilanum...
Gleðileg jól öll sömul!

|