fimmtudagur, desember 14, 2006

Mánuður eftir!

Í gær var akkúrat mánuður í áætlaðan fæðingardag, 13. janúar. Nú er ég aldeilis farin að bíða spennt! Svo spennt að ég á erfitt með að einbeita mér að því sem ég virkilega þarf þennan mánuðinn, lokaverkefninu mínu. Planið var að skila ritgerðinni til yfirlestrar hjá leiðbeinandanum í fyrstu vikunni í janúar en eins og er finnst mér ég eiga dálítið mikið eftir og sé ekki alveg fram á hvernig ég á að ná þessu. Samt veit ég að ef ég myndi setjast niður og vinna af kappi þá ætti ég að ná að klára þetta á 3-4 vikum. Mér væri svo sem sama þótt ég gæti ekki skilað ritgerðinni fullkláraðri fyrir fæðingu og þyrfti að eyða smá tíma í það að leiðrétta og laga einhver smáatriði eftir að músin fæðist, en ef ég væri búin að skrifa allan "hráa" textann þá væri ég mun rólegri og myndi njóta leyfisins miklu meira.
Þess vegna ætla ég að vera lítið á netinu næstu vikurnar og einbeita mér að þessari blessaðri ritgerð. Skrifa nú samt eins og eina jóla-dagbókarfærslu milli jóla og nýárs...

...hafið það gott öll sömul og gleðileg jól!
Knús frá Köben