"Þess voru dæmi að ökumenn hringdu í lögregluna í gær og kvörtuðu undan því að komast ekki leiðar sinnar um Vesturlandsveg þar sem honum hafði verið lokað í báðar áttir í kjölfar banaslyss er varð rétt norðan við gatnamót Þingvallavegar um 17.30 í gær (mánudag). Karl Steinar Valsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir þetta fólk hafa sýnt því lítinn skilning að þarna hefði orðið alvarlegt slys."
Þetta fréttabrot er tekið af mbl.is og þar er líka hægt að sjá sjónvarpsfréttina í fullri lengd. Þar segir ofangreindur aðstoðaryfirlögregluþjónn Karl Steinar Valsson m.a. að það sé ekki eftir fólki hafandi hvað það sagði í símann þegar það var að hringja í stresskasti niður á Lögreglustöð og kvarta undan því að Vesturlandsveginum hefði verið lokað. Getur stressið hugsanlega orðið meira?! Ég bara spyr? Ég er orðlaus hreinlega. Eflaust hafa þarna verið manneskjur sem nauðsynlega þurftu að komast leiðar sinnar og jafnvel út af einhverju alvarlegu en þó grunar mig að um ósköp (ó-)venjulegt stress hafi verið að ræða hjá flestum. Hefur desember og, afsakið væmnina, blessuð jólin þessi áhrif á fólk?? Ég hef oft hugsað um það hvort fólk á Norðurlöndunum geri kannski meira úr jólunum heldur en fólk í "heitu löndunum", af því að aðventan og jólin eru svo kærkomin upplyfting í skammdeginu, kuldanum og myrkrinu. Ég finn það alla vega hvað mér finnst þetta þægilegur tími; það er orðið dimmt hér í Kaupmannahöfn strax upp úr klukkan fjögur á daginn og þá er voðalega næs að kveikja á jólaljósunum í gluggunum og kertum um alla íbúð og hlusta á einhverja smúðð músík.
En kannski eru jólin farin að snúast um einhverja allt aðra hluti og miklu veraldlegri heldur en þau í raun og veru ættu að gera? Kannski snýst þetta allt orðið um að kaupa sem flottustu gjafirnar og þá þarf auðvitað að vinna meira til að eiga fyrir gullunum og þar af leiðandi gefst minni tími til að sinna þessum annars huggulegu erindagjörðum eins og að skrifa jólakort, skreyta heimilið, kaupa gjafir og bara hanga heima hjá sér og gera ekki neitt! Oft finnst mér fólk vera farið að líta á jólaundirbúning sem einhverja gríðarlega kvöð og maður heyrir gjarnan "úff, ég á eftir að gera ALLT! Baka allar smákökutegundirnar, kaupa gjafirnar, pakka öllu inn, þrífa ofninn, ísskápinn og alla skápana og... STREEEESS!" Ég viðurkenni það að ég á oft erfitt með að hemja mig þegar heimilisþrif eru annars vegar og ég hreinlega þrífst ekki í drasli svo ég verð oft að byrja daginn á því að ryksuga (það gera hundahárin) og laga aðeins til áður en ég get sest niður og byrjað að vinna (eins og núna...), en ég missi mig samt ekkert yfir því þótt að það sé þykkt ryklag uppi á öllum skápum, jafnvel þótt jólin séu á næstu leyti. Það sér nefnilega enginn þetta skáparyk og það er nægur tími til að dusta það í burtu í janúar og febrúar eða bara ennþá seinna...

Ætti maður ekki bara að slappa aðeins af og reyna að njóta þessa stutta og huggulega tíma og taka svo skápana í gegn seinna og reyna umfram allt að missa sig ekki í stressinu. Þetta eru nú bara blessuð jólin...

|