fimmtudagur, júlí 06, 2006

Komin heim frá Grænlandi

Allt gekk vel og við náðum að gera allt það sem við höfðum planlagt. Veðrið var gott nánast allan tímann og við komum brúnar og sællegar til baka. Fórum í matarboð til Grænlendinga og fengum kjúkling og þurrkað selkjöt í eftirrétt. Það er ekki eitthvað sem ég þarf nauðsynlega að upplifa aftur, þ.e.a.s. þetta með selkjötið. Skrifa ferðasöguna bráðum og set inn myndir. Góða helgi.