föstudagur, júlí 07, 2006

Myndir frá Grænlandi

Nú er ég búin að setja inn heilan helling af myndum úr Grænlandsferðinni. Hlekkurinn inn á myndasíðuna mína er hérna til hægri. Það eru fjögur albúm sem heita Ikamiut 1-4. Frumlegt ekki satt? Þegar þið komið inn á myndasíðuna þá sjáið þið titilinn á fyrsta myndaalbúminu (Ikamiut 1 24. júní-1. júlí) fyrir ofan myndirnar. Ef þið ýtið á titilinn þá birtast öll hin myndaalbúmin, þ.á.m. hin þrjú myndaalbúmin frá Grænlandi. Þarna getið þið valið hvaða albúm þið viljið skoða. Vonandi virkar þetta hjá mér, forritara dauðans!