þriðjudagur, júní 20, 2006

Einkunnir komnar í hús...

...fékk 10 í Umhverfisefnafræði og eitrunarfræði og 9 í Jarðvegs- og grunnvatnsmengun. Ansi fínt bara. Næst á dagskrá er fyrri ferð sumarsins til Grænlands. Við Birna ætlum að fara í bæinn á morgun og kaupa okkur stígvél og regngalla og svo leggjum við af stað á föstudagsmorguninn. Við fljúgum til Kangerlussuaq sem tekur 4 tíma og 40 mínútur! Þaðan fljúgum við til Aasiaat sem tekur 45 mínútur og frá Aasiaat siglum við með ferju til Ikamiut. Ég kvíði sjóferðinni mest því ég er svo hryllilega sjóveik! Að öðru leyti hlakka ég til ferðarinnar og hlakka til að eyða heilli viku úti í náttúrunni við sýnatöku og jarðvegsskoðun. Ég set svo inn myndir og stutta ferðasögu þegar ég kem til baka 1. júlí.
Öntill ðenn...