...kom til okkar í dag og verður í viku. Polle er reyndar ekki héri heldur hundur, ljósleitur labrador frá Grikklandi. Þannig er að eigendur hans, bróðir Hjartar og fjölskylda, skelltu sér í páskafrí til landsins litla og fagra í norðri og á meðan verður prinsinn gyllti hjá okkur í pössun. Við fengum líka bílinn þeirra að láni svo fram undan eru spennandi dagar með 2 hunda og fullt fullt af bíltúrum.
Annars er allt gott af okkur að frétta, það er farið að vora í Danmörku og fuglarnir syngja og blóm og tré vaxa og dafna. Ég er búin að kaupa grænmetisfræ af ýmsum gerðum sem ég ætla að planta í garðinum um páskana. Ég keypti m.a. maís, sykurertur, graslauk og radísur. Þetta ætla ég að setja í stóran jurtakassa og ég er jafnvel að hugsa um að kaupa ferskjutré sem ég sá um daginn, og jafnvel líka kirsuberjatré! Mig hefur alltaf dreymt um að eiga stóran og villtan garð, fullan af kryddjurtum, káli, kartöflum og alls kyns grænmeti en kaldir vindar föðurlandsins hafa aldrei kynt undir drauma um ávaxtaræktun. Hér er hins vegar möguleiki á því að rækta hvað sem er er og um að gera að nýta sér það til hins ýtrasta.
Jæja, nóg af grænmetisdraumum mínum. Við H ætlum út að keyra með hundana og leyfa þeim að hlaupa niðri á strönd sem er hérna rétt hjá og svo þurfum við að versla í matinn og fylla alla skápa af sælgæti fyrir kvöldið; ameríska Idolið er í kvöld og þá VERÐUR maður að eiga nammi!! Ég skelli svo inn mynd af þeim turtildúfunum Söshu og Polle páskahéra, við tækifæri.

|