sunnudagur, apríl 16, 2006

Gleðilega páska

Þar sem við eigum einstaklega elskulega ættingja á Íslandi þá höfum við fengið samtals 13 páskaegg og erum orðin feit og pattaraleg eftir því. Eggjabunkinn samanstóð af 10 eggjum nr. 1 og tveimur nr. 3 og einu nr. 4. Þess vegna erum við líka búin að fá heilan haug af málsháttum. Ég get farið að búa mér til málsháttamöppu, svei mér þá! Hérna er brot af þeim málsháttum sem við höfum fengið í hinum ljúffengu páskaeggjum frá Mr. Nóa & Ms. Síríus:
  • Engin keðja er sterkari en veikasti hlekkur hennar
  • Ágirndin er rót alls ills (úr Biblíunni)
  • Sjaldan er flas til fagnaðar
  • Að kvöldi skal ósáttum eyða
  • Allt orkar tvímælis þá er gert er (Úr Njáls sögu, uppáhaldinu mínu... not)
  • Sannleikanum verður hver sárreiðastur
  • Trúin flytur fjöll
  • Hverjum þykir sinn fugl fagur
  • Betra er að breyta vel en heita vel
  • Hugurinn ber mann hálfa leið (af hverju var mér ekki sagt þetta fyrr? Ég hefði getað sparað mikið á þessu í gegnum tíðina á ferðum mínum milli Íslands og Danmerkur!)
Og svo kemur uppáhaldið mitt:
  • Hvað tungan meiðir er torvelt að lækna