Eftir tæplega áratugs langa bið er Pétur föndrari á leiðinni á TÓNLEIKA MEÐ RADIOHEAD!!! Þeir verða haldnir í byrjun maí í Kjupenhavn, nánar tiltekið í KB Hallen og ég er svo spennt að mig langar mest að skrifa alla færsluna með caps lock! Eins og ég segi þá eru þetta engir venjulegir tónleikar, þetta eru tónleikar sem ég er búin að bíða eftir í 8 ár!! 8 ár, pælið í því!! Fyrir 8 árum síðan útskrifaðist ég úr FB, fór til Portúgal og keypti mér OK Computer í fríhöfninni á leiðinni út, ekki af því að ég væri sérstakur Radiohead fan, mig langaði bara í einhverja nýja músík og viti menn; platan límdist á heilabörkinn á mér og hefur verið þar síðan. Heilinn á mér er eiginlega veggfóðraður með OK Computer eins og hún leggur sig og þessari hljómsveit almennt! Ég veit ekki hversu oft ég hef látið mig dreyma um að heyra NO SURPRISES á tónleikum eða enn þá betra; LET DOWN!!! Ég held að það að það muni renna frá mér táraflóð, nei, frekar svona tárafljót þegar ég heyri upphafstónana að þessum tveimur lögum. Ég mun sofna alsæl öll kvöld og vakna sæl næstu vikurnar! Pétur föndrari is off the table!!
miðvikudagur, mars 29, 2006
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|