Er að hugsa um að fara á dansnámskeið og nú megið þið giska hvar dansnámskeiðið er haldið... í DTU! Yeah, you heard me; byrjendanámskeið í Funk og Hip Hop dönsum á hverjum mánudegi frá 17-19 í Danmarks Tekniske Universitet. Sjáið þið fyrir ykkur dansfélaga mína á námskeiðinu? Vatnsgreiddir, eða kannski meira svona smjörgreiddir verkfræðinemar í Kentucky gallabuxum girtum upp að geirvörtum og í Squash skónum, gömlu góðu, að dansa Hip Hop?? Ekki það, ég held ekkert að ég verði the hottest lady in town þegar ég mæti á bláu íþróttaskónum mínum og... og hverju? Ég á engin íþróttaföt! Er ekki einhver góðhjartaður þarna úti sem á gamlan apaskinnsgalla til að lána mér? Djö... verður þetta flott, ha? Best af öllu er samt nafnið á dansfélaginu; Danc-ing. Verkfræðingur á dönsku er ingeniør þannig að þetta er blanda af dance og ingeniør=Danc-ing. Bara ööööörlítið lúðalegt :)
Hip Hop and out.
Ciao

|